Vikan - 10.05.1979, Blaðsíða 21
Það ar aldrei að vita nama eitthvert
efni leynist i öllum þessum blöðum.
Páll gluggar I Dag frá Akureyri.
Hjálmar Ólafsson var meðal gasta þáttarins. Hann sagði að það vœri ekkert
erfitt að vakna svona snemma á morgnana. Hann vœri vanur því. Hér býður
Sigmar honum góðan daginn — með handabandi.
prófinu í skólanum. — Þá var
mest gefið 8. Ég gerði bara eina
villu. Hann setti ypsilon i nafnið
sitt, bætti Sigmar við.
Kaffið er ómissandi vökvi í
svona starfi, en Sigmar drekkur
bara austurlenskt te með öllum
vítaminum — þó mest C-víta-
mínum. Þeir sögðu að hér áður
fyrr, á meðan þeir enn héldu að
þeir ynnu á alvöruútvarpsstöð,
hefðu þeir gjarnan haft danskt
ákavíti í skápnum hjá sér en þeir
urðu að hætta því vegna þess að
aðrir starfsmenn útvarpsins
voru byrjaðir að mæta í vinnuna
klukkan 6 og drekka morgun-
kaffið með þeim. Aflagðist því
sá siður vegna þess að herbergi
þeirra félaga var ekki nógu stórt.
Á slaginu 7.25 byrja þeir að
senda út. Góðan daginn! segja
þeir, eins og langt sé liðið á
daginn, og svo hefst samfelld
dagskrá í 50 mínútur. Svona
gengur það á hverjum morgni,
alla virka daga.
Skoðið myndirnar.
EJ
Þafl var eftthvað afl vindlinum hans
Páls, en Sigmar var afl reyna afl
finna málshátt dagsins.
. tbl. VikanZl