Vikan - 26.07.1979, Blaðsíða 24
Mestir matmenn
og dugnaðarforkar
Vikan skoðar hótel og
veitingahús í Þýskalandi
7. Stuttgart og Svartiskógur
lllglfriliTTiliilTiiiBirníir~fT ^riiiÉikta inliTlíBMiiTiíBfigiTÍTi Tí^liiiiaMÉMMBlgiiTÍMriBBBggrmrri^BflÍ
Miðbærinn samfellt kerfi
göngugatna
Schwabarnlr í Baden Wurtemberg eru
taldir ntestu dugnaöarforkar og
auðmenn Þýskalands. Þeir eru líka
mestu matmennirnir, enda er hvergi i
ríkinu þéttara net góðra veitingahúsa.
Stuttgart er höfuðborg þessa hluta
Þýskalands. Þar búa tæplega 600.000
manns i svo góðursælum dal. að vin-
viðurinn vex upp að aðaljárnbrautar-
stöðinni. 1 miðbænum eru fagrir garðar
og grasgarðurinn er með hinum frægari i
heimi.
Hvergi hef ég séð jafnstórt net göngu-
gatna i stórborg og í Stuttgart. Mér
fannst eiginlega allur miðbærinn vera
samfellt kerfi göngugatna. Ásinn í þessu
kerfi er hin rúntlega kilómetra langa
verslunargata Königstrasse.
Hins vegar er ntinna af frægum
húsum í Stuttgart en í möreum öðrum
þýskum borgum. Þareru engar lOOOára
gamlar kirkjur, né 500 ára gamlar hallir.
Stuttgart er bara borg til að búa I.
í öðrum greinum þessa flokks unt
þýskar borgir hefur verið lögð áhersla á
að lýsa hótelum og veitingahúsum i
borgarmiðju. Í þessari grein verður vikið
frá reglunni. þvi að nágrenni Stuttgart er
mjög forvitnilegt. ekki sist Svartiskógur i
vestur og suður frá borginni. Við
skulum sanit byrja á miðbænum.
Lítil og notaleg hótel, auk hinna
stóru
Skarthótelið i Stuttgart er STEiGEN
BERGER HOTEL GRAF ZEPPELIN
við Arnulf-Klett-Platz 7, sjálft brautar-
stöðvartorgið. Þetta er stórt 280
herbergja hótel og herbergin kosta 61-
115 mörk fyrireinn, 160 mörk fyrir tvo.
Mun minna hótel. 125 herbergja, er
AM SCHLOSSGARTEN, einnig and
spænis járnbrautarstöðinni, við Schiller-
strasse 23 í fallegum garði. Það er
nýtískulegt hótel með vel búnum her-
bergjum á 75-120 mörk fyrir einn og
138-150 mörk fyrir tvo.
Ódýrara hótel í nágrenni brautar-
stöðvarinnar er UNGER við Kronen-
strasse 17. Þar eru 84 herbergi, ekki
alveg öll með baði, og kosta 50-72 mörk
fyrir einn, 96-115 fyrir tvo.
Litið og notalegt hótel með góðu
útsýni er BUC’HENHOF við Hasen
bergsteige 90. Þar eru herbergin aðeins
15, flest með baði, og kosta 32-48 mörk
fyrir einn, 50-76 mörk fyrir tvo.
Enn ódýrara hótel í miðbænum er
BELLEVUE við Schurwaldstrasse 45.
14 herbergi. sunt með baði, á 30 39
ntörk fyrir einn og 46-53 mörk fyrir tvo.
Spátzle og Maultaschen, sér-
greinar Schwaba
Í vetur kom ég einu sinni á besta
veitingahúsið i Stuttgart. Það er ALTE
POST við Friedrichstrasse 43. rétt við
OKKAR
TEPPI
24 Vikan 30. tbl.