Vikan - 06.09.1979, Síða 27
fram við þig eins og heimskan krakka.
Gerðu mér nú þann greiða að koma ekki
fram við mig eins og heimska móðui.
Til þess að þú hafir það á hreinu, þá
er ég ekki hrifin af neinum. Og sér-
staklega er ég ekki hrifin af Eric
Morgan. Ég yrði að leita lengi til þess að
finna einhvern sem jafnaðist á við pabba
þinn og við minna sætti ég mig ekki.
Skilið?”
„Skilið. Og þar til þu skiptir um
skoðun, treystu þá á mig. Ég verð alltaf
nálægur.”
Olive hringdi í mig næsta morgun.
nokkuð snemma og bað mig um að hitta
sig I hótelinu viðströndina.
„Pat, hvers vegna ferðu ekki — núna
strax?” spurði hún þegar við hittumst.
Áður en einnig þú verður særð. Það er
svo sannarlega sárt að láta fara með sig
eiris og „sumarmanneskju”, þú veist
það. Ég var...”
„Olive, ég er ekki „sumarmanneskja”,
sagði ég rólega og hún hló.
„Ekki það? Hvað voruð þið maðurinn
minn þá að gera á fjallinu í gær? Jú, jú,
þið sáust . . . billinn hans Erics er vel
þekktur.
„Sjáðu til, þér er sama um Eric og
mig. En þú verður að hugsa um Kevin.
Kevins vegna, Pat. Gerðu það...”
Við sátum í rökkvaðri vínstofu
hótelsins, Olive grét og ég klappaði
varlega á öxl hennar. „Ég er að fara,”
sagði ég. „Gráttu ekki, Olive. Gráttu
ekki. Éger aðfara.”
Ég gekk með henni út að bílnum og
hélt síðan ein áfram. Eg leit einu sinni
við til þess að sjá hana þar sem hún stóð,
sólin skein á hár hennar og háan og
grannvaxinn líkamann, svo fagran að
það þurfti ekki mikið til þess að sjá að
hún yrði aldrei annað en „sumar-
manneskja”.
Um það leyti sem ég kom heim og
byrjaði að pakka niður, grét ég vegna
þeirrar sem eitt sinn virtist hafa verið
óvinur minn, þegar ég i rauninni hafði
orðið óvinur hennar.
„Erum við að fara eitthvert?” spurði
Kevin. Hann stóð í dyrunum.
„Er Mexikóborg nógu góður staður?
Fyrirtækið bauð mér vinnu.”
Treystu á mig hafði Kevin sagt, og ég
vonaði að meðan hann þarfnaðist mín
gæti hann treyst á mig. Ég fann vellíðan
streyma um mig, jafnvel ánægju. Við
Kevin höfðum nú ákveðið okkur. Við
ætluðum að halda áfram að lifa og faðir
hans, maðurinn minn, hefði orðið
ánægður með okkur...
Endir
Ég skil aldrei hvernig hann fór aö þvi að koma
þessu í gegnum skipulagsnefndina.
fOX*St>j
• Ridgeway
& Jones
36. tbl. Vikan 27