Vikan - 06.09.1979, Qupperneq 44
Kate lá lengi andvaka
þessa nótt. Hún hafði
oft hugsað sér eitthvað
þessu líkt gerast sem
endaði á orðunum: „Þú
virðist á einhvern hátt
breytt,” sögð með rámri
röddu Pauls Fox.
Meðan hún var að hugsa um þetta ók
annar bíll upp að þeim. Karlmannshöf-
uð leit út um gluggann og glaðleg rödd
hrópaði:
„Þurfið þið á hjálp að halda, stúlkur?"
spurði Gary Browne og brosti til
stúlkunnar.
Kate sá björt brún augu, sem var
frekar stutt á milli, undir þykku, vel
greiddu og liðuðu hári þegar ungi
maðurinn steig út úr bifreiðinni. Hann
var i vel pressuðum fötum og hún tók
eftir fallegu bindinu, hann virtist
fullkomlega heiðarlegur. Hún hafði ekki
minnstu ónotatilfinningu þegar hún ók á
brott og skildi Söndru King eftir með
manninum sem myrti hana síðar um
kvöldið.
Það hafði komið olía á hendur Kate
þegar hún var að hjálpa stúlkunni en
hún var með pappírsþurrkur I bilnum
svo að hún gat hreinsað það mesta af
áður en hún gekk inn á hótelið sem hin
yfirvegaða frú Havant er starfsfólkið var
vant að sjá nokkrum sinnum á ári.
Gamli dyravörðurinn kom út til þess
að taka töskuna hennar.
„Gaman að sjá yður aftur, frú,” sagði
hann og Kate elti hann upp i herbergið
sem hún hafði haft áður. Það var stórt
og með útsýni yfir garðana sem lágu
niðuraðánni.
Henni fannst indælt að hafa tima til
að njóta þess að vera til, sérstaklega þó
að fá sér langt bað I vatni sem ilmaði af
dýrri baðolíu, gjöf frá sjúklingi og hafði
enst margar slíkar helgar. Henni þótti
gott að vefja sig inn i mjúkt hvítt hand-
klæðið — það kom hreint á hverjum
degi — og ganga berfætt um á þykku
teppinu. Hún fór I svartan siðkjól, sem
áður hafði verið í eigu eiginkonu eins af
kaupmönnum Ferringham, hún hafði
gefið vinnukonu sinni hann sem svo
aftur seldi hann strax í Kjarakaup.
Þegar hún hafði lokið við að bursta
lakkið úr hárinu, setja skugga á augn-
lokin, örlitinn kinnalit á kinnbeinin og
mála varirnar með fölbleikum varalit
var hún allt önnur manneskja en
ósmekklega konan sem farið hafði frá
Chestnut Avenue um morguninn.
Það var þessi algera kúvending
persónuleikans sem hafði heillað
Richard Stearne. Hann varð furðu
lostinn þegar hann kom eitt föstudags-
kvöld á Svarta svaninn til þess að snæða
kvöldverð eftir læknaráðstefnu og sá
hana. Hún sat við hornborð, kertaljósið
mildaði útlit hennar enn meira og það
fyrsta sem honum datt í hug var að þetta
væri heillandi kona. Þó fannst honum
eitthvað kunnuglegt við hana og honum
datt í hug að hún væri sjúklingur, sem
Enn aukin
þjónusta!
Ókeypis eyðublöð á afgreiðslunni:
Dagblaðið er smáauglýsingablaðið
Bíll: Sölutilkynningar, tryggingabréf, víxlar, afsöl. Dagblaðiðafgreiðsla Þverholti 11 sími 27022 |
Lausafé: Kaupsamningar, víxlar.
Húsnæði: Húsaleigusamningar.
Miðstöð smáauglýsingaviðskiptanna
Smáauglýsingaþjónustan.
T
iBIABlB
Dagblaðið er smáauglýsingablaðið Afgreiðsla Þverholti 11, sími 27022
44 Vikan 36. tbl.