Vikan - 06.09.1979, Page 46
áhugainálum sem hitt hafði ekki áhuga
á. t.d. Richard golfi og Cynthia bridge.
Philip, sonur þeirra, ætlaði að eyða helg-
inni hjá skólafélaga sínum.
Richard átti nú heilt síðdegi og kvöld
út af fyrir sig; næsta dag líka. Hann gæti
notað tímann til að líta yfir ólesin
læknarit; hann gæti lesið skáldsögu eða
farið i kvikmyndahús. Af einhverri
ástæðu leist honum ekki á neina þessara
hugmynda; í staðinn dró einhver óvið-
ráðanleg hvöt hann út i bilinn og í átt til
Risely.
Það var vor og fölgræn lauf pilviðar-
ins, sem óx meðfram ánni, voru að líta
dagsins Ijós þegar hann ók inn í garðinn
á bak við Svarta svaninn. Bíll Kate stóð
þar. Hvað ætli hún sé að gera núna? Það
var liðið á daginn. Skyndilega fannst
Richard hann vera vondur maður.
Henni yrði illa við þegar þau hittust.
Hann var að þvi kominn að snúa við og
aka á braut. En hvers vegna ekki að
stansa og fá sér te? Hann gæti látið sem
hann þekkti Kate ekki. Kannske sæi
hann hana ekki; hún gæti verið í rúminu
með elskhuga sinum.
Hann langaði til að hlæja að hug-
myndinni. Kate, af öllum! Það hlaut að
vera einhver kvæntur maður. En
hvernig hafði hún fundið hann? Og var
hann ábyrgur fyrir breytingu hennar?
Því breytt var hún, hún hafði breyst i
eftirsóknarverða konu.
Þegar Richard gekk inn I setustofu
Svarta svansins þetta vota síðdegi sat
Kate þar niðursokkin í skáldsögu sem
hún hafði fengið á bókasafninu, laus við
truflanirnar sem sóttu á hana hvenær
sem hún gerði sér eitthvað til
skemmtunar heima fyrir. Það var frekar
að hún fyndi það á sér en sæi það þegar
Richard kom, hún leit upp og örvinglað-
ist. Hún fölnaði og munnur hennar
myndaði „Ó”, þó ekkert hljóð heyrðist.
Richard settist niður við hlið hennar.
„Halló, Kate,” sagði hann. „Hvað
ertu að lesa?” en bætti siðan við i flýti,
„Það er allt í lagi, vertu ekki hrædd. Ég
skal ekki koma upp um þig, frú
Havant.”
„Ég skal útskýra allt,” sagði Kate óða-
mála og frú Havant gríman datt af
henni.
„Það er óþarfi." Richard skammaðist
sín fyrir að njósna um hana.
„Nei, ég verð. Þú munt skilja það,”
sagði Kate, hún vissi á þessu augnabliki
að hann myndi gera það.
Aö lokum stytti upp og þau fóru I
gönguferð. Frú Havant átti enga göngu-
skó en Kate Wilson geymdi stigvél aftur
I bilnum sínum vegna þess að hún ók
FRYSTIKISTA
TL 300 - 300 lítra
Utanmál:
HxBxL: 89x61x100,5 sm.
Frystigeta: 33 kg. pr. 24
klst. Er með hraðfrysti-
hnapp- og hólfi.
Meðalaflþörf: 1,9 KWh pr.
24 klst.
TL 400 - 400 lítra.
Utanmál: HxBxL:
89x68,5x131 sm.
Frystigeta: 44 kg pr. klst.
Er með hraðfrystihnapp-
og hólfi.
Meðalaflþörf: 2,2 KWh pr.
24 klst.
Fáanleg í 6 litum.
rm tm n viðurkennd
varahluta- og viðgerðarWánusta
í Austurveri, Háaleitisbraut 68,
sími 84445 og 86035
stundum með lyf til sjúklinga uppi i
sveit. Drapplituð regnkápa Kate Wilson
var einnig í bílnum og hún fór í hana.
En það var smekkleg hárgreiðsla frú
Havant sem Richard sá fyrir sér þegar
þau gengu niður mjóan stiginn niður að
ánni.
Þau gengu lengi lengi og Kate, án þess
að líta nokkurn tíma á hann, útskýrði
allt fyrir honum, meira að segja ferðirn-
ar í Kjarakaup. Richard var undrandi og
hrærður. Það var enginn maður í spil-
inu, hún var aðeins einmana kona í leit
að vellíðan.
„Starfsfólkið hérna er indælt. Sumir
hafa unnið hér árum saman. Þau þekkja
mig nú orðið. Þetta er einfalt,” sagði
Kate. „Ég fer ekki á vínstofuna eða neitt
HVAÐ ER
ÖLKELDUVATN?
Hugsið
vel um
heilsuna.
Bætið
steinefn^n
snauða
fæðu
með eini
glasi af
ölkeldu-
vatni
ádag.
ölkeldu-
vatnmeð
öllum
mat
INNKAUPASTJÓRAR
SÍMINN ER 21260 OG 39327.
VATNMJ ER FLÚO*^
Vió '
höfum
aiitfyr,r
skólonn
BÚKABÚÐ
F0SSV0GS
EFSTALANDI 26
46 Vikan 36. tbl.