Vikan - 06.09.1979, Blaðsíða 51
um raunverulegar lifandi verur að ræða, þótt látnar
séu, halda andstæðingar kenningarinnar um líf að
bessu loknu áfram að berjast gegn þessum sönnunum.
Til dæmis hefur því verið haldið fram, að það sem
hinn deyjandi sjái séu bara myndir af hinum látnu en
ekki þeir sjálfir. Að vísu skýrir það ekki heldur þá
fróðlegu vitneskju sem fram kemur í sýnunum um
bláókunnugar manneskjur. En hvað segja þessir
menn þá við því, þegar viðstaddur sér líka sýnir hins
deyjandi? Dæmi þess eru nefnd í rannsóknaskýrslum
sélarrannsóknamannsins Barretts. Ég tek hér eina frá-
sögn hans til dæmis um þetta:
Þessi frásögn er um konu sem átti dóttur sem dó
nitján ára gömul. Dóttirin hélt fullri vitund allt til
dauðastundar sinnar.
Hálfum mánuði áður en hún dó hrópaði stúlkan:
"Mamma mín, sjáðu þarna!” og benti með fingri
sínum. Konan fór eftir ábendingu dóttur sinnar og
segir svo frá:
»Ég sá mannsmynd, hann var mjallhvítur, þar sem
hann stóð og bar greinilega við dökkt tjaldið.” Þannig
sáu þær báðar sýnina og stúlkan kvað þetta vera föður
sinn.
Tilfelli sem enn fleiri urðu vitni að er að finna í
skýrslum Breska sálarrannsóknafélagsins (VI. bindi).
I þessu tilfelli var kona ein, Harriet Pearson að
nafni, að deyja og hjá henni voru þrjár frænkur og
ráðskona. Þegar dauðinn tók að nálgast sáu tvær
frænkanna óljósa veru, sem átti að vera elskuð systir
hinnar deyjandi konu, og að lokum sá hana einnig
þriðja frænkan sem sat hjá deyjandi konunni. Áður
en frú Pearson gaf upp öndina þetta sama kvöld, þá
skýrði hún frá því að systir sín hefði komið til þess að
sækja hana.
Við þetta sem hér hefur verið rakið má svo til
dæmis bæta sýnum viðstaddra, sem telja sig hafa bein-
línis séð viðskilnað sálar og líkama. Það er of langt
mál til þess að bæta því við það sem rakið hefur verið í
þessum þætti, og mun ég ef til vill gera því skil í
öðrum síðar.
Rannsóknir drs. Erlends Haraldssonar á dulrænni
reynslu Islendinga, sem hann lýsir i bók sinni Þessa
heims og annars, sýna svo ekki verður um villst, að
yfirgnæfandi meirihluti íslensku þjóðarinnar trúir að
líf sé að þessu loknu og dauðinn geti ekki verið endir
allrar mannlegrar reynslu. Það er mjög mikilvægt
hverjum manni að gera sér sem fyrst grein fyrir þess-
ari sannreynd, sökum þess að þessum sannleik fylgir
óhjákvæmilega skilningurinn á því, að reikningar
okkar verði ekki gerðir upp að fullu í þessu lífi. Það er
hverjum hugsandi manni alveg ljóst með því einu
að líta í kringum sig, að niðurstaðan af því að trúa
ekki á líf eftir dauðann hlýtur að leiða til þeirrar
skoðunar, að ekkert réttlæti sé til. Sú skoðun að þetta
líf sé öll tilvera mannsins getur því leitt til eyðileggj-
andi hugsunarháttar. Ef maður telur sig staddan í
frumskógi, þar sem ofbeldi, fals og fláræði eitt sé til
nokkurs gagns og sá sterki eigi tvimælalaust að ráða,
þá getur slíkt leitt til miskunnarlauss lífs, sem getur
eyðilagt viðkomandi persónu. Þeir sem trúa á annað
líf eða telja það beinlínis hafa verið sannað fyrir sér,
sökum þess sem þeir hafa upplifað, hljóta því jafn-
framt að gera sér þess fulla grein, að hver er sinnar
gcefu smiður. Að áminning Páls postula um, að eins
og maðurinn sái hljóti hann að uppskera, er lögmál
sem enginn kemst undan. En okkur gengur stundum
erfiðlega að átta okkur á því hvort gæfan er okkur
hliðholl, sökum rangs mats á því í hverju gæfa liggur.
Hverja trú sem menn þykjast játa opinberlega, þá
er það sannreynd, að á Vesturlöndum og víðast
annars staðar eru menn metnir eftir hæfileikunum til
þess að safna fé og græða það fyrst og fremst, enda
fylgir fénu hiðeftirsótta vald sem það veitir i ranglega
hugsandi heimi. Áhrifamesti guð Vesturlanda er
Mammon, þótt þess sé gætt að viðurkenna slíkt aldrei
opinberlega. Hér þarf því að hefjast endurmat þessara
skoðana, og er það reyndar þegar hafið hjá fjölda ungs
fólks meðal okkar, sem séð hefur á lífi foreldra sinna,
að gæfan er ekki föl fyrir fé né frama, þótt það virðist
ríkjandi skoðun.
Meðal annars af þessum ástæðum fögnum við
nýjum rannsóknum vísindanna, sem færa enn nýjar
stoðir skynseminnar undir þá skoðun, að látinn lifir.
Endir
36. tbl. Vikan 5X