Vikan


Vikan - 06.09.1979, Side 62

Vikan - 06.09.1979, Side 62
PÓSTURLW Oh . .. eitt af svona bréfum! Sæll, Póstur góður! Þetta er i fyrsta sinn, sem ég skrifa þér, svo að ég vona að Helga fái ekki bréfið mitt. Þannig er málið með vexti að ég er víst skotin í strák (Nú hugsar þú eflaust — oh, þetta er eitt af svona bréfum, best að láta Helgu hafa það. En viltu vera svo vænn að gera það ekki). Jæja, svo ég haldi nú áfram þar sem frá var horfið. Eg er búin að vera hrifin af þessum strák í nokkur ár og ég held að hann sé hrifinn af mér. Hann hefur tvisvar sagt að ég sé sæt. Nú hef ég ekki séð hann í heilt ár, því að égfór í annan skóla. En ég get ekki hætt að hugsa um hann og ég þori ekki að hringja í hann. Svo góði Póstur, segðu mér hvað ég get gert. Með fyrir- fram þökk. N.N. Nei, Póstinum kemur alls ekki til hugar að hugsa neitt miður skemmtilegt þótt innihald bréf- anna sé bara einmitt um þetta eða annað því skylt. Það er fremur hvimleiður eiginleiki að líta annarra vandamál smáum augum og það er vel skiljanlegt að ástarmálin vefjist eitthvað fyrir ykkur, sem rétt eruð að fá forsmekkinn af þessum málum, ekki síður en fullorðnu fólki, sem skrifar Póstinum. Þar er ef til vill um að ræða önnur vanda- mál, en þó er ekki þar með sagt að þörfin fyrir aðstoð annarra sé neitt brýnni.' Það getur reynst þér tafsamt að ná sambandi við strákinn fyrst þið eruð ekki einu sinni i sama skóla, en allt má reyna, ef viljinn er fyrir hendi. Þú getur farið í gamla skólann og heilsað upp á gamla félaga og reynt að rekast á hann af tilviljun eða aflað þér upplýsinga um, hvar hann heldur sig helst í frístund- um. Hvort hann spilar hand- bolta eða fótbolta og svo mætti lengi telja. Mundu þó að þetta er ekki eini maðurinn í heiminum, það nóg af fiskum í sjónum og þú átt framtíðina fyrir þér í því efni. Hrædd um að smokkurinn rifni Kæri Póstur! Mig langar til að fá svör við nokkrum spurningum og ég ætla að snúa mér beint að efninu. Eg las í bréfi sem þú fékkst að þér haf borist heimilisfang hljómsveitarinnar Bay City Rollers. Viltu vera svo góður að birta heimilisfangið? Eg er með strák á föstu og við sofum stundum saman og við notum alltaf smokk. Við erum svo hrædd um að hann rifni (smokkurinn). Er óhætt fyrir okkur að halda áfram að nota smokk? Á hvaða aldri er best fyrir unglinga að hafa samfarir i fyrsta skipti? Jæja nú er komið nóg um svona hluti og snúum okkur að öðru. Hvað var Keith Moon, trommu- leikari hljómsveitarinnar Who, gamall þegar hann lést? Jæja, nú ætla égað fara að enda þetta bréf. Vertu blessaður og sæll og ég þakka Vikunni fyrir allt gamalt og gott. E.B.G. Heimilisfangið þýðingarmikla er: Bay City Rollers, 27 Preston Grange Road, Preston Pans, East Lothian, Scotland. Smokkurinn á að vera nokkuð örugg getnaðarvörn og heldur lítil hætta er á að hann rifni. Þó er það möguleiki, sem taka verður með í reikninginn, og því sjálfsagt að nota eitthvað annað líka til öryggis, svo sem sæðis- eyðandi krem, sem þú færð í öllum lyfjabúðum án lyfseðils. Það er engin regla, sem segir til um hvenær sérhver einstakling- ur á að byrja að hafa samfarir, en það skaðar engan að bíða. Fæstir unglingar eru nægilega líkamlega og andlega þroskaðir til að hafa mikla ánægju af sam- förum og á þetta þó einkum við um kvenfólk. Trommuleikarinn Keith Moon var þrjátíu og þriggja ára gamall eða þar um bil þegar hann lést. Bréfsnepill handa Helgu til að japla á Kæri Póstur! Eg á nú ekki við nein sérstök vandræði að stríða í ástarmál- -r Gaman að hitta þig! Maðurínn minn hefur talað svo mikið um þig, — upp úr svefni. Hana vantar einhvem féiagsskap. Veistu hvar óg get krœkt mér i stóran skitugan páfagauk fyrir Iftið? Stundum verð ég þreyttur á þessu og vil bara fara aftur á skrifstofuna og vinna. í1 f>) Hvað?? hvem óvanalegan mat ... td. brúðkaupstertu. 62 Vikan 36. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.