Vikan - 20.09.1979, Blaðsíða 13
tc
Frú Svanlaug sýnir einum gestanna teikninguna
að fyrirhuguðu kattahóteli en það mun eiga að
rúma 80 ketti.
„Þeir sem eru
vondir við ketti
hafa verið rottur í
fyrra iífi"
— segir hóte/stýran á kattahóte/inu að
Reynime/ 86, en þar eru 12 búr og nóttin
kostar 1000 krónur.
Að Reynimel 86 hefur verið rekið katta-
hótel síðan 1977. Það er Kattavinafélagið
sem stendur á bak við reksturinn en hótel-
stýra frá upphafi hefur verið Svanlaug
Löve. Hún leggur til sitt eigið húsnæði
undir reksturinn sem er tveggja til þriggja
herbergja íbúð og þar búa í sátt og
samlyndi 15-20 kettir, Svanlaug sjálf og svo
eiginmaður hennar sem einnig er mikill
kattavinur.
Hótelið getur tekið 12 ketti í búr, sem
eru sérhönnuð fyrir ketti, en auk þess á
hótelstýran 4 ketti sjálf. Samkvæmt
bókhaldi kattahótelsins hefur það hýst 545
ketti frá upphafi, flestir hafa þeir verið á
vegum Kattavinafélagsins, kettir sem settir
hafa verið út á gaddinn og ekki átt í önnur
hús að venda. Venjulegir heimiliskettir eiga
þó kost á búri í þessu ágæta hóteli ef
eigendur þeirra þurfa að bregða sér í ferða-
lag eða annað og njóta þeir sömu
umönnunar og félagskettir nema hvað þeir
þurfa að greiða meira fyrir nóttina. Verð á
búri með fæði og góðri umönnun er 1000
krónur fyrir félagsketti en 1200 fyrir aðra.
Að sögn Svanlaugar þykir fólki það ekki
dýrt. En hvernig dettur henni í hug að
leggja heimili sitt undir kattahótel?
— Það er einfalt mál, segir Svanlaug,
kettir eru dásamlegar skepnur, það er hægt
að tala við þá eins og maður talar við
mann. Svanlaug undirstrikar þetta með því
að kalla á einn af fjórum köttum sínum og
spyrja hvernig hann hafi það. Kötturinn
brosir og gefur frá sér vellíðunarhljóð.
— Þarna sérð þú, kettir hafa persónu-
töfra og geta fengið mannskepnuna til að
gera hvað sem er. Þeir hafa til að bera reisn
og stolt og eru ekkert að biðjast afsökunar
á tilveru sinni. Þetta hótel sem ég rek hérna
er allt of lítið og því er Kattavinafélagið
búið að sækja um lóð hjá borgarráði í því
skyni að byggja þar annað og stærra hótel.
Vonumst við eftir góðum undirtektum frá
þeim ágætu mönnum enda hlýtur þeim að
vera ljóst að menningu þjóðar má marka af
því hvernig hún býr að dýrum sínum.
— Mér finnst persónulega að fólk
umgangist ketti ekki af nægilegum
skilningi. Læður eru látnar eiga eins marga
kettlinga og þær mögulega geta, þær eru
ekki fyrr búnar að gjóta en þær eru orðnar