Vikan - 01.11.1979, Blaðsíða 42
—
Stórkostleg
fjölskylda
KENWOOD heimilistæki bjóóa upp á ótrúlega
fjölbreytni í framleióslu, sem öll hefurþaó sameiginlegt,
aó þarfara saman fullkomin gæói, fallegt útlit og mjög
hagkvæmt veró.
Hrærivélar
Blendera
Kaffivélar
Gufugleypa
Strauvélar
Þurrkara
Kæliskápa
Frystiskápa
Frystikistur
^ HEKLAhr
LAUGAVEG1170-172 -SÍMAR 21240-11687
King," sagði Hawksworth. „Við hér
vissum ekki um yður. Án upplýsinga dr.
Stearne hefði lögreglan i Ferringham
aldrei tengt þessi tvö mál. Við hefðum
gert það að lokum en ekki svo fljótt.”
Slóð Gary Browne hefði leitt þá að nýja
bílnum hans, sem stóð yfirgefinn á götu
í Ferringham og var nú kominn i gæslu
lögreglunnar, en i honum voru meðal
annars gúmmihanskar. sem rannsóknar-
lögreglan i Ferringham sagði að gætu
gefiðgóðar upplýsingar.
„Ó,” sagði Kate. „Richard — gerði
hann það?"
„Já, ungfrú Wilson,” sagði Hawks-
worth. Hann horfði á óhreina konuna í
snjáðu regnkápunni. Ástæður hennar
fyrir að koma með Gary Browne aftur
til Wattleton voru honum augljósar en
það gerði ekki minna úr afreksverki
hennar.
Reyndar hafði Kate ekki gert það
eingöngu vegna Richards. hún hafði lika
sannað nokkuð fyrir sjálfri sér.
„Viljið þér ekki láta hann vita.” sagði
hún. „Þér getið sagt að ég komi til vinnu
á morgun eins og vanalega.” Rödd
hennar var aftur orðin styrk. Enn var
hægt að halda öllu leyndu ef lög-
teglan var eini aðilinn sem vissi um
þetta. Eldri maðurinn virtist mjög skiln-
ingsrikur.
„Þér hafið verið mjög hugrökk.
ungfrú Wilson, ef ekki fifldjörf.” sagði
Hawksworth. „Þér hefðuð átt að ná i
hjálp þegar þér sluppuð frá Browne i
gryfjunni.”
„Ég veit — ég hef útskýrt það." Kate
leit örvæntingarfull á Firth. „Ég vildi að
þið sæjuð um hann — i Wattleton. Ég
vil að mér sé haldið utan við þetta ef það
er mögulegt. Ég ætlaðijekki að aka á
hann,” bætti hún svo við. „Það var slys.
Hann er handleggsbrotinn og nokkur rif
hafa brákast en ég held að hann sé ekki
alvarlega slasaður."
„Nei, hann er það ekki. Læknirinn er
búinn að lita á hann og hann á að fara á
sjúkrahús i röntgenmyndatöku. Að þvi
loknu fáum við hann og geymum bak
við lás og slá.”
„Nú. er læknir hérna?” spurði Kate.
„Kannske hann vilji Iita á handlegginn á
mér. Ég held að það þurfi að sauma
nokkur spor. Ég skar mig sjálf þegar ég
var að losa ntig. Hann meiddi mig ekki.
Hvaðsögðuð þér að hann héti?”
Það hafði enginn sagt henni það. Hún
hafði ekki kallað hann neitt þessa
klukkutima sem þau höfðu verið saman
og hann hafði ávarpað hana með röngu
nafni. Samt höfðu þau líklega sýnt hvort
öðru meira af sinu sanna eðli en nokkr-
um öðrum.
„I guðanna bænum, Firth!” Hawks-
worth var nú reiðilegur. „Vissir þú ekki
að ungfrú Wilson var meidd? Farðu og
athugaðu hvort læknirinn er farinn. Ef
svo er skaltu fara strax með hana á
sjúkrahúsið.”
„Gæti ég fengið te?” sagði Kate
þreytulega.
42 Vlkan 44-tbl.