Vikan - 29.11.1979, Blaðsíða 16
1
Fínnskar jólakök-
ur
375 g hveiti, 250 g smjör (eða smjörlíki),
100 g strásykur, 3 msk. rjómi. Sykur og
saxaðar möndlur.
Myljið saman smjör og hveiti, hnoðið
sykrinum saman við, bætið rjómanum
saman við og hnoðið vel. Látið deigið
bíða i kæliskáp í 2-3 klukkutima. Fletjið
deigið út á hveitistráðu borði og mótið
kökur úr deiginu. Skemmtilegast er ef
þið eigið lauf- eða hjartalaga mót.
Penslið kökurnar með þeyttu eggi og
stráið á þær sykri og söxuðum
möndlum. Bakið við 200° hita í 5-8
mínútur.
300 g hveiti, 200 g smjör (eða smjörlíki),
75 g flórsykur, 1 tsk. lyftiduft, fínsax-
aðar heslihnetur.
Myljið smjörið saman við hveitið, sigtið
flórsykur og lyftiduft saman við. Hnoðið
deigið vel, rúllið því í tvær lengjur og
veltið þeim upp úr söxuðum hnetum.
Látið deigið bíða um stund í kæliskáp.
Skerið lengjurnar í kökur og bakið i 8-
10 mínútur við 200° hita.
„Smjörlíkid sem allir þekkja”
SILFUR-
SKEIFAN
BORÐSMJÖRLÍK
X6Vikan 48. tbl.