Vikan - 29.11.1979, Blaðsíða 49
Hand
san
Mýkir, grædir og
verndar hönmdid.
Hanrisan er hanriáliimhit
i háum (jieriaflokki
oi| ekki fitukennriur.
Hanrisan ei Wella vara
ocj faíst i næstu búri.
Kramarhúsið er saumaö
úr vatteruðu efni, en
einnig má nota annað efni,
sem ber sig vel. Þið
kaupið 75 x 48 sm rautt
efni (t.d. striga ) og faldið
með skáböndum. Skreytið
pokann og stykkið eftir
eigin höfði. Það er upplagt
að nota filt til að klippa út
skemmtilegar myndir og
„applikera" á.
75
Jóladagatöl
Þeir, sem ekki hafa
mikinn tíma til sauma,
geta huggað sig við að það
er hægt að gera Ijómandi
skemmtileg dagatöl á
einfaldan hátt. Það þarf
ekki að kosta miklu til og
raunar tala myndirnar
sínu máli.
í jólasokkinn eru notaðir
efnisafgangar og mislit
leggingarbönd. Þaðer allt
í lagi, þó efnisbútarnir séu
úr ólíkum efnum. Búið
fyrst til pappírssnið af
sokknum og sníðið tvo
helminga.
Efni: Hördúkur, 8 þræðir
á sm.
Garn: DMC, saumað með
4 þráðum yfir 2 þræði í
efninu.
Stærð: 49 x 53 (frágenginn
ca 44 x 48). Við frágang
þurfið þið 24 hringi, 1
trélista ca 46 sm langan og
snúru til að hengja uþp
með. Þið byrjið á að kasta
brúnirnar. Finniðmiðju
bæði á efni og munstri og
byrjið útsauminn þar.
Þegar stykkið er tilbúið á
að pressa með röku stykki
frá röngunni. Teljið út 30
þræði frá rammanum,
kliþpið frá afganginn af
stykkinu. Brjótið fyrst 5
þræði inn frá röngunni og
síðan 14 þræði. Þræðið
faldinn og saumið með
fínum sþorum. Skiljið eftir
op fyrir trélistann að ofan.
Festið síðan hringina á
hvern mánaðardag, setjið
listann í og bindið snúruna
í endana.
4>. tbl. Vlkan 49