Vikan - 06.12.1979, Blaðsíða 7
: ■
íalaifur mað iraka harahöfðingjanum aam var yfirmaður gœalulfðaina f Jarúsalam. Um ðma
var
_____ Íslaifur bílstjóri
H ÆW W, Ær hans.
íslendingur á
vígstöðvum fyrir
botni
Miðjarðarhafs:
„Maður lœrir smám saman
að umgangast menn gráa
fyrir járnum, alls staðar eru
byssur á lofti, endalausar
raðir af skriðdrekum hvar
sem maður fer . . . í fyrstu
var dálítið óþægilegt að
vera alltaf með byssu í
nösunum þegar maður fór í
strætó, en það venst."
Það er ísleifur Pétursson,
lögreglumaður í Kópavogi,
sem mælir þessi orð, en
hann starfaði í tæp tvö ár
hjá gæsluliði Sameinuðu
þjóðanna í Jerúsalem.
ísleifur Pétursson, lögreglumaður í
Kópavogi, lagði upp í ævintýraferð í apríl
1978. Ferðinni var heitið til „fyrirheitna
landsins”, ekki af guðsótta eða trúarofsa,
heldur réð hann sig í vinnu hjá gæslu-
sveitum Sameinuðu þjóðanna sem staðsett-
ar eru fyrir botni Miðjarðarhafs, eins og
sagt er í fréttunum, en þar eru bardagar,
vopnaglamur og sprengjutilræði nær dag
legt brauð. Mörgum íslendingnum hefði
líklega ekki þótt starf ísleifs þarna austur
frá eftirsóknarvert því hann var aðallega í
póstflutningum á leiðinni Jerúsalem-Kaíró-
Jerúsalem svo og til annarra landa sem
liggja að ísrael.
„Ég flaug beint til Tel Aviv, um London,
en aðsetur mitt átti að vera i Jerúsalem.
Það sem kom mér fyrst á óvart var hversu
stuttar allar vegalengdir eru þarna. Á
landakortum virðast þær ekki vera ncin
smásmíði, en frá Ben Gurion flugvclli í Tcl
Aviv og til Jerúsalem er ekki nema 20
mínútna akstur.”
Vegirnir eru góðir en
hitinn ....
„Starf mitt i Jerúsalcm var tvíþætt. Ég
var ráðinn í öryggisdcild gæslusvcitanna
49. tbl. Vikan 7