Vikan - 06.11.1980, Blaðsíða 28
Viðtal Vikunnar
„Ég hef gert allan skrattann,
eitt árið æfði ég lyftingar, og ég
söng líka sem trúbadúr. Ég hafði
aldrei komið nálægt rokki, ég
ætlaði að fara að kaupa íbúð
þegar ég tók ákvörðun um að
rokka.
Ég er hættur að starfa sem
farandverkamaður, vinn að
fullu við tónlistina. Ég er ekkert
að þykjast vera farandverka-
maður lengur. Ég tek siðferði
lega afstöðu með farandverka-
fólki en það væri hræsni að kýla
á það,” segir Bubbi Morthens,
einn af Utangarðsmönnum.
ísbjarnarblús varð til þannig
AtómstyijöM,
poppstjömur
... og restin bara rokk og fjör
Vikan tekur Utangarðsmenn tali um efni
nýju plötunnar, lífsviðhorf, unglinga,
farandverkafólk og fleira.
að Bubbi, Danni og Mikki voru
að vinna saman í Kassagerðinni
— þeir kynntust þar. Bubba
hafði lengi langað til að setja
það sem hann hafði verið að
semja á skífu. Þeir bræðurnir
fóru svo til Bandaríkjanna og
þegar þeir komu aftur var Bubbi
að byrja á ísbjarnarblús.
Bubbi segir að hinir í Utan-
garðsmönnum eigi eins mikið í
plötunni ísbjarnarblús og hann.
Danni og Mikki sáu til dæmis
um allar útsetningar á rokkinu.
Upp úr þessari samvinnu urðu
Utangarðsmenn til.
Bubbi Morthens leggur