Vikan


Vikan - 19.02.1981, Page 63

Vikan - 19.02.1981, Page 63
Pósturinn Ofsahræðsla við eldgos Kæri Póstur! Eg vona að þú getir gefið mér einhver góð ráð við vandamáli mínu, ef vandamál skal kalla. Þannig er að ég þjáist af ofsahræðslu við eldgos. Eg fæ martraðir hérumbil á hverri nóttu. Draumurinn er alltaf eins. Það kemur gos en við sleppum ekki eins vel og síðast. Þunnt, glóandi hraun þevtist yfir bœinn með ofsahraða. Eg vakna alltaf í svita- baði og með dynjandi hjartslátt. Hræðslan kemur sérstaklega upp í mér á kvöldin. Þá get ég ekki sofnað fyrr en langt er liðið á nótt. Eg er svo hrædd við að það komi eitthvað fyrir meðan ég sef og er ég vakni sé það orðið ofseint. Hvað á ég að gera? Ef ég nefni þetta við einhvern er hlegið að mér! Stundum held ég að ég sé orðin vitlaus. Hvað heldur þú? Evrirfram þökk fyrir góð ráð. S.O.S. Nei, þú ert sannarlega ekki orðin vitlaus og Pósturinn vonar að hann geti gefið þér einhver ráð. Þetta er vissulega vanda- mál og það á sér mjög eðlilegar orsakir. Þú getur verið viss um að einhverjir eiga við nákvæmlega sama vandamál að stríða í kringum þig. Eftir mikla lífsreynslu, eins og gosið hlýtur að hafa verið, er ekki nema skiljanlegt að hræðsla af þessu tagi komi upp. Líklega má kalla þetta fælni (fóbiu) og er vel þekkt fyrirbæri og ekkert til að skammast sín fyrir. Sumir eru mjög flughræddir, bilhræddir eða hræddir við einhver dýr. í þínu tilfelli er orsökin augljós en aðalvandamálið við að hjálpa fólki sem þjáist af fælni er oftast að finna ástæðuna. Þú ættir að reyna að hugsa áfram þessa hugsun til enda, þegar þú finnur fyrir goshræðslunni, hugsa um hvað þú myndir gera til að bjarga þér og þínum, áður en hugsunin um að ekkert sé hægt að gera verður of sterk. Reyndu að muna að jafnvel þó að gysi aftur er næstum víst að jafnvel tækist til og síðast. Bátarnir eru til staðar og ótal undankomuleiðir ef um það er hugsað. Jarðfræðingar halda því reyndar fram að líkurnar á að aftur gjósi á þessum stað séu miklu minni en líkurnar á að eldgos verði annars staðar. Þær eru næstum engar og þú ættir að hugsa svolítið um það og reyna að fræðast eins og þú mögulega getur um gosið og um það hvernig gos verða og hvað óskaplega litlar líkur eru á því að svona geti átt sér stað aftur. Fyrir alla muni ættir þú ekki að reyna að bæla þessar hugsanir niður, það gerir illt verra. Svo er Pósturinn viss um að það hlæja ekki allir að þér. Reyndu að tala um þetta við einhvern sem nennir að tala í alvöru. Oft leita menn til læknis með svona vandamál. Það er ekkert vist að það sé nauðsyn- legt í þínu tilfelli en langvarandi svefnleysi gerirengum gott. Þá virðast vandamálin alltaf erfiðari. Stundum eru gefin róandi lyf við ótta en mundu að þau leysa engan vanda, hins vegar geta þau í einstaka tilfelli hjálpað fólki ef þau eru tekin um mjög stuttan tíma. Samhliða lyfjameðferð verður að hugsa um að yfirvinna þennan ótta með skynsemi. Fyrst þú ert nógu skynsöm til að gera þér grein fyrir þéssu vandamáli getur þú áreiðanlega með tíð og tíma kynnt þér staðreyndir málsins og skilið að það er ekkert að óttast en þú þarft að finna það sjálf og það getur tekið nokkurn tíma. 2. Hvernig er hægt að eignast pennavini á Norðurlöndum. til dæmis í Noregi? Er hægt að skrifa I eitthvert blað eða er einhver pennavinaklúbbur? 3. Þarf eitthvert próf til þess að komast I Myndlistaskólann? Vona að þú getir svarað spurningunum fyrir mig. P.S. Afsakaðu þó að ég þúi þig, mér finnst þéring of hátíðleg. Á.H. 1. Sérfræðingar í tannrétting- um eru heldur fleiri en tveir. Við vitum um fjórar stofur í Reykjavík sem hafa tannrétting- ar sem sérgrein. Þær eru þessar: Guðrún Ólafsdóttir, Rauðarárstíg 3. Ólafur Björgúlfsson, Miðstræti 12. Ólöf Helga Brekkan, Miðstræti 12. Þórður Eydal Magnússon prófessor, Domus Medica, Egilsgötu 3. Auk þeirra sem reka þessar stofur vitum við um þrjá sérfræðinga enn í tannrétt- ingum og vinna þeir hjá þeim sem reka ofangreindar stofur. Þeir eru: Helgi Einarsson, Pétur Svavarsson og Ragnar Traustason. Á Akureyri starfar svo einn sérfræðingur í viðbót, Teitur Jónsson. 2. Þú getur reynt eitthvað af þessu: International Youth Service, Turku, Finland. Dimmalxtting, Tórshavn, Foroyar. Noen for meg? Hjemmet, Kr. IV’s gt. 13. Oslo I, Norge. Mundu bara að í öllum tilvikum verður að fylgja fullt nafn og heimilisfang. 3. Inntökuskilyrði í Myndlista- skólann í Reykjavík eru engin, önnur en að hafa áhuga. Þó er krafist teiknikunnáttu fyrir þá sem vilja komast í höggmynda- deild. Til að komast í dagdeild í Myndlista- og handíðaskóla íslands þarf að gangast undir inntökupróf og ef viðkomandi er undir 20 ára aldri þarf hann að hafa lokið samræmdum prófum grunnskóla. Þetta er strangt samkeppnispróf og aðeins helmingur fær skólavist. Fyrir kvöldnámskeiðin, sem standa þrjá mánuði hvert, þarf engin skilyrði að uppfylla og þau veita heldur engin réttindi. Einnig þar er um að gera að vera fyrstur, þegar auglýst er, því námskeiðin fyllast mjög fljótt. P.S. Pósturinn er hjartanlega sammála þér um þéringar. Skop 8. tbl. Vikan 63

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.