Vikan


Vikan - 16.04.1981, Side 64

Vikan - 16.04.1981, Side 64
Hinir geysivinsælu alíslensku BÚSTAÐIR Leitið upplýsinga og tilboða. Greiðslukjör við flestra hæfi til afgreiðslu í vor Af ferðalögum Eln af fyrstu byggingunum sam endurbyggð var eftir síðari heimsstyrjöld- ina, er Listasafn ríkisins í Austur-Berlín. Það var upphaflega byggt 1866-76 og hýsir listaverk margra frægustu listamanna heims. ÞAK hf. Sími 53473 á skrifstofutíma kvöld- og helgarsimar: Heiðár — 72019 og Gunnar — 53931 ... Þýskalands eftir siðari heimsstyrjöldina stappi nærri kraftaverki. En hvað má þá segja unt Austur-Þýskaland? Það er eitt af 10 mestu iðnríkjum heimsins en býr þó ekki við líkt því eins miklar hráefna- birgðir og Vestur-Þýskaland. Austur- Þjóðverjum var gert að greiða Sovét- ríkjunum miklar stríðsskaðabætur en Vesturveldin létu Marshall-fé renna i H HUNNEBECK Byggingameistarar — Verktakar Viljum kynna það nýjasta frá Hunnebeck Tekko kerfismótin eru tilvalin til allrar uppsteypu. Tekko kerfismótin eru mjög létt i hendi. Tekko kerfismótin eru mjög fljótleg i uppstillingu. Tekko kerfismótin spara tíma og kostnað. Tekko kerfismótin eru úr heitgalv- aniseruðu stáli og krossviði. Tekko kerfismótin eru því lausn sem beðið hefur veriö eftir. Fáið frekari upplýsingar á skrifstofu okkar að Funahöfða 19, Reykjavík. ASETA sf.( sími 83940. stríðum straumum til Vestur-Þýska- lands. Kjósi menn sér að ferðast til dæmis frá Kaupmannahöfn til Berlínar, þá væri hægt að fara með lest sem ferja flytur frá Gedser í Danmörku til Warne- mitnde í þýska alþýðulýðveldinu. Warnemiinde er baðstrandarbær og þar er tilvalið að dvelja í nokkra daga. Að sumri til ríkir þar létt og fjölskrúðug baðstrandarmenning. Nokkrum kilómetrum sunnan við Warnemunde er ein af stærri borgum Austur-Þýskalands, Rostock. Sumir segja að talan sjö sé heilög og í því viðviki lætur Rostock ekki sitt eftir liggja. Maríukirkjan joar í borg er 700 ára gömul og lyftir sjö turnum til himins. t Rostock eru 7 kirkjur sem allar kalla saman til messu með sínum 7 klukkum. Á ráðhúsinu eru 7 turnar og við það sameinast þeir 7 vegir sem til Rostock liggja. Reyndar liggja þessir vegir um 7 hliðá gamla borgarmúrnum. Austur-Þýskaland joarf alls ekki að vera grár blettur á landakortinu, eitthvert land sern kalda stríðið hefur hálfgert máð út hér á Vesturlöndum. Þeir sem ætla til Berlínar ættu að verja nokkrum dögum til að kynnast landinu af eigin raun, þjóðin og landið lita allt öðruvísi út heldur en gefið er til kynna i leiðurum dagblaða. Reyndar gæti það verið fyrirtaks ferðalag að fara frá Kaupmannahöfn til Wamemitnde, þaðan til Berlínar og svo til Rínarlanda. Þaðan væri hægt að fara með lest til Hamborgar og svo aftur heim á leið. 64 Vlkan 16. tbl,

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.