Vikan - 11.06.1981, Blaðsíða 12
STÚLKAN FRÁ
MADA GASKAR
Oft hugsaði Vanja um hve mikils virði það
vceri ef hún gœti öðlast vináttu frú Staverud,
talað við hana um hann sem þær elskuðu báðar;
reynt að láta sér þykja vænt um
hana, reynt að skilja hana. En eins og nú var
ástatt var stóra húsið handan girðingarinnar lokað.
SÖGUÞRÁÐUR TIL ÞESSA:
Árið 1938 finna norsk hjón. Ellen
og Áki Vasstad, ungbarn sem borið
haföi verið út og falið niöri á strönd-
inni í nánd viö Nossí Be á Madagask-
ar. Þau taka barnið að sér og Vanja
vex upp í útjaðri Oslóborgar og á ham-
ingjusama œsku. Besti leikfélagi hennar
og vinur er Þorbjörn Staverud. Þau eru
óaðskiljanleg í mörg ár en hrökkva
hvort frá öðru á kynþroskaskeiðinu.
Vanja er skotin I honum og óham-
ingjusöm ást hennar til hans og kyn-
þáttafordómar valda því að hún verður
einrœn og feimin. Draumur hennar er
sá að fara einhvern tíma til Madagask-
ar og komast að sannleikanum um
hana sjálfa. Þegar Vanja er 19 ára
gömul finna þau hvort annað á ný.
hún og Þorbjörn, verða mjög ástfangin
og bindast tryggðum.
Ellen hló. „Það hefur nú ekki verið
mjög alvarlegt á þeim árum?”
„Jú, fyrir mér var það fyllsta alvara.”
„Ég skil þig vel, Vanja. Þorbjörn er
vissulega bæði góður og myndarlegur
piltur. Hann virtist líka vera mjög ham-
ingjusamur í dag.”
„Já, hann er það áreiðanlega ekki
síður en ég.”
„En þið eruð bara enn svo ung," sagði
Ellen varfærnislega.
„Við erum orðin nógu fullorðin til að
vita hvað við gerum. En vertu alveg ró-
leg, mamma, við ætlum ekki að gifta
okkur fyrr en Þorbjörn hefur lokið her-
þjónustunni.
„Hamingjan góða. Hafið þið þá
ákveðið að gera það?”
„Já, og við ætlum að fara I sjóferð á
eftir, fara með skipi til Madagaskar.”
„Fara með skipi til Madagaskar?”
Ellen leit spyrjandi upp. „Er hann fús til
þess?"
..Það megum við til með að læra I
skóla lífsins, Vanja. Ég hef verið svo
heppin að hafa pabba til að hjálpa mér.
Hann leitar alltaf að því góða i öllum
mönnum. Það er ekki alltaf auðvelt.”
Þær sátu i stofunni. Ellen var að
prjóna og Vanja hélt á bók en gat ekki
einbeitt sér að lestrinum.
„Ég er svo innilega glöð yfir því að þið
Þorbjörn skylduð finna hvort annað aft-
ur, Vanja. Þú hefur breyst svo mikið síð-
an að það er varla hægt að þekkja þig.”
„Var ég þá svona leiðinleg?” spurði
Vanja og hló.
„Nei, þú hefur aldrei verið leiðinleg
en þú varst oft svo hnuggin.”
„Já, en nú er ég svo hamingjusöm að
þú getur tæpast trúað því."
„Þú hefur víst aldrei hugsað um neinn
annan í alvöru en Þorbjörn.”
„Nei, aldrei. Ég hef verið ástfangin af
honum frá því að ég var tólf ára.”
„Já, hann skilur vel að mig langar til
að sjá landið þar sem ég fæddist.” Vanja
sagði þetta hratt. Hún var hrædd um að
móður hennar mundi falla það illa.
„Mér þykir þú segja fréttirnar, barnið
gott. En það er þó bót I máli að þú ætlar
ekki ein í svo langa sjóferð.”
Allt I einu var dyrabjöllunni hringt.
Vanja spratt á fætur og hljóp fram með
mikilli eftirvæntingu. Hún varð ekki
fyrir vonbrigðum því að þetta var Þor-
björn. Þegar þau höfðu sýnt hvort öðru
bliðuhót sá Vanja strax að hann var ekki
eins glaður og fyrr um daginn.
„Komdu snöggvast inn, Þorbjörn.
Við mamma erum bara tvær inni.
Amma hallaði sér út af og þabbi er ekki
heima.”
„Ég kem líklega heldur seint. Ég var
bara svo hræddur um að þú hefðir tekið
nærri þér hvernig mamma hagaði sér.”
Vanja vafði handleggjunum um háls
hans og þrýsti sér að honum. „Mamma
var einmitt rétt i þessu að kenna mér að
við eigum að reyna að skilja hvers vegna
menn koma fram eins og þeir gera áður
en við dæmum þá. Komstu svona seint
af þvi að hún var svo reið?”
„Nei... égveitekki... ”
Þorbjöm hikaði stundarkorn, var
alvarlegur og hugsandi.
„Hún var verri en ég hef nokkru sinni
séð hana. Ég hef tamið mér að reyna að
þola skapbrigði hennar og framkomu en
nú gerði ekki betur en ég gæti það. Ég
held, skal ég segja þér, að það sé eins
konar afbrýðisemi sem stundum brýst
svona út hjá henni. Þú verður að reyna
aðafsaka hana, Vanja.”
„Góði besti, þetta er verst fyrir þig. Ef
til vill hefur henni ekki geðjast að því að
sjá okkur svona í faðmlögum. Næst
ættum við kannski að gæta okkar betur
þangað til viðerum ein."
Þorbjörn brosti og kyssti hana inni-
12 Vlkan 24* tbl.