Vikan - 11.06.1981, Síða 62
Vill komast í
tískusýningar-
samtök
Kæri Póstur.
Ég vona ad þú getir svarad
þessum spurningum.
1. Þannig er mál með vexti að
mig langar alveg ferlega til að
fara íeinhver samtök, tildæmis
Karonsamtökin, en ég er 15
ára. Er það ekki of ungt?
2. Þarf maður ekki að vera
ferlega fallegur og með réttan
vöxt?
3. Kostar eitthvað að fara í
þessi samtök?
4. Gætir þú gefið mér upp
hvert ég ætti að snúa mér ef ég
vildi fara I svona samtök?
5. Eru sett einhver sérstök
skilyrði til þess að komast I
samtökin?
6. Hvað er aðallega gert?
7. Það versta er að ég er alveg
ferlega feimin. Verður maður
ekki að vera alveg ófeiminn?
8. Svo er smávegis í viðbót.
EJ'ri hlutinn á mér er ágætur
en lappirnar, guð, ég er með
svo mjó og asnaleg lœri og
dálítið hjólbeinótt. Er mögulegt
að laga það? Er mögulegt að
fta lærin dálítið? Jœja, jæja,
þá eru það ekki feiri
spurningar.
Ein með Ijótar lappir
P.S. Er hægt að gera eitthvað
til þess að hárið sýnist þykkara?
Tískusýningarfólk er og þarf að
vera á öllum aldri þar sem fólk á
öllum aldri klæðist nú orðið
tískufatnaði. En meirihlutinn er á
aldrinum sextán ára til þritugs.
„Ferlega fallegur” er nú nokkuð
afstætt hugtak eins og sagt er,
og ekki eru allir á einu máli um
hver er fallegur og hver ekki. En
línurnar þurfa að vera í lagi,
líkaminn grannur og spengilegur
og lýti ekki áberandi. Samtök
sýningarfólks eru þrenn hér á
landi, Karonsamtökin, s. 38126,
Módel 79, s. 14485, og
Módelsamtökin, s. 36141. Til
þess að fá sem gleggstar
upplýsingar um starfið og hver
samtök fyrir sig er best að hafa
beint samband við viðkomandi
samtök.
Fólk þarf að sjálfsögðu að
vera ófeimið við að koma fram
fyrir fjölda fólks í hvaða fötum
sem er. Ekki þýðir að ganga með
höfuðið ofan í bringu eða með
hauspoka á tískusýningu eins og
gefur að skilja. En samtökin
halda námskeið fyrir meðlimi
sína og kenna undirstöðuatriðin
og ætti það að geta veitt visst
sjálfstraust.
Ef til vill hefðir þú gott af að
fitna dálítið, því fitan sest oftast
fyrst á rassinn og lærin, en það
er ekkert hægt að gera við hjól-
beinóttum fótleggjum. Til þess
að hárið sýnist þykkara er til
dæmis hægt að setja í það
permanent. Liðað hár virðist
ávallt þykkara en slétt.
Pennavinur á
Flórída
Kæri Póstur eða pennavina-
dálkur.
Ég œtlaði að forvitnast um
hvort þið vissuð hvert maður
œtti að skrifa ef mann langaði
að eignast pennavin á Flórída í
Bandaríkjunum.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Flórída-aðdáandi
Ég er 15 ára stelpa.
Þú getur reynt að skrifa World
Pen-Pals,
1690 Come Ave.,
St. Paul,
Mn 55108,
USA.
Skrifaðu á ensku og biddu
sérstaklega um pennavin á
Flórída. Auk þess var 6135-
6010 svo elskuleg að senda utan-
áskrift annars klúbbs í
Bandaríkjunum sem einnig má
skrifa til:
DEAR PEN-PAL,
P.O.Box 4054,
Santa Barbara,
California 93103,
USA.
[W SUMARGETRAUN
VIKW VIKUNNAR 1981
LAUSN Á 5. HLUTA
ORÐTAKIÐ ER:
Fylliö út þetta form. Skrifiö það orðtak sem þiö teljið aö myndin á blaösiðu 5 eigi að túlka hér
fyrir ofan, nafn, heimilisfang og simanúmer fyrir neöan.
GEYMIÐ ALLA GETRAUNASEÐLANA þar til gotrauninni lýkur. Sendið þá síðan alla saman í
lokuðu umslagi. Utanáskriftin er. VIKAN, Sumargetraun 1981, pósthóH 533,121 Reykjavik.
Skilafrestur er til 17. júlí 1981.
SENDANDI:
H EIMI LISFANG:
SÍMI:
Athugasemd
Að gefnu tilefni skal þeim sem
skrifa og biðja um pennavini
bent á að sýna þolinmæði.
Mikið berst af óskum þessa efnis
og því getur orðið nokkur bið á
að nafnið birtist. En seint koma
sumir og koma þó. Látið þetta
ekki á ykkur fá og verið dugleg
að skrifa.
Heimilisföng
Kæri Póstur.
Okkur langar að biðja þig
um að hjálpa okkur að fá
heimilisföng hjá Leif Garrett,
hjá hljómsveitinni sem vann í
Eurovisionsöngvakeppninni,
hjá Johnny Logan, hjá REO
Speedwagon og hjá Andy
Gibb. Með von um að þú getir
hjálpað okkur.
Tvær sem eru hjálparþurfi
Þið biðjið ekki um lítið. Því
miður tókst Póstinum ekki að
grafa upp utanáskrift nema til
Leif Garrett og Andy Gibb.
Leif Garrett Fan Club,
L.G. Drawer L. Hollywood,
California 90028,
USA.
og
Andy Gibb,
c/o P.O.Box 605,
Bear,
Delaware 19701,
USA.
Varðandi hina er best að athuga
umslag utan af plötu með
viðkomandi, finna þar heimilis-
fang útgáfunnar og skrifa síðan
til dæmis: REO Speedwagon,
c/o XXXXXX o.s. frv.
(þ.e. heimilisfang útgáfunnar).
Einnig frétti Pósturinn af mikilli
aðdáendaklúbbasamsteypu í
Noregi sem hefur innan sinna
vébanda aðdáendaklúbba fyrir
næstum því hvern sem stigið
hefur á fjalir og framið
popptónlist. Utanáskriftin er:
Fan Club Service Norway,
Boks 140,
4401 Flekkefjord,
Norge.
Skrifið á „skandinavísku” eða
ensku og munið að senda alþjóð-
leg svarmerki fyrir að minnsta
kosti 4 kr. með í bréfinu. Þau
merki fást á pósthúsum og eru
notuð til að greiða sendingar-
kostnað á svarbréfinu. Þetta
gildir hvort sem skrifað er til
aðdáendaklúbba eða útgáfu-
fyrirtækja.
Salan gengur llla. Segðu dyravörðun-
um að henda fólki inn.
62 Vikan 24. tbl.