Alþýðublaðið - 24.02.1923, Page 3

Alþýðublaðið - 24.02.1923, Page 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 sem hr. kaupm. Jensen-Bjerjí í Vöruhúsinu sýndi okkur með því að ser.dd okkur föt fyiir að upphæð ca. 600 kr. Margir af bökurum bæjarins gáfu okkur dálítið af brauði til jólahátiðanna. Til alira þeirra, sem hafa hjálpað okkur, sendum við hér með innilegt þakklæti.< Aðaláhugamál „Morgunhlaðsins" er nú orðið, að aukinn sé innfiutniugur áfengis i landið. Hefir um það biizt hver greinin annari fáránlegri, síðan blaðið fór að koma út prent ð. Staðfestist nú það, som menn vissu fyrir, að tilgangurinn með undanþágunni illrærndu var sá einn að íjúfa aðalatriði bannlag- anna, sýna síðan fram á misrétti, sem af því leiddi, og fá þau svo afnumin að fullu þess vegna. Umhyggja (!) „Morgunblaðs“-!iðs- ins fyrir velferð þjóðarinnar og „borgarlegu frelsi" ríður ekki við einteyming. Um daginn og veginn. • 9- Togararnir. Hilmir kom í fyrri nótt og Tryggvi gamli í fyrra kvöld af veiðum með ágætan afla og fóru til Englands. Leifut heppni fór út á ísfiski í fyrradag. Geir kom frá Englandi í lyrri nótt, Alþýðuflokksmenn! Látið að öðru jöfnu þá sifja fyrir viðskift- um ykkar, sem auglýsa í ykkar eigin blaði! Huldumenn hinDar frjálsu samkeppni hafa nú aftur orðið að teygja úr umskiftingi sínum, >Morgunblaðinu<. Er nú skrípið komið í sitt fyrra iag. Jafnaðarmannafélag íslands heldur fund á morgun kl. 2 í Bárunni uppi. Verða þar rædd ýms merkileg mál. Kaupendur Alþýöublaðsins eru ámintir um að gera afgreiðslunni aðvart, ef vanskil verða á útburði blaðsins. — Afgreiðslumaður. AaglýsingaF, sem ekki eru alment lesnar, eru engum til gagns. Þess vegna eiga menn annað hvort ekki að auglýsa eða þá þar, sem flestir lesa þaer^ en það er að eins í AiUýðnblaðinn. Hjálparstöð Hjúkrunarfélags- ins >Líknar< er opin: Mánudaga . . . kl. n —12 f. h. Þriðjudaga ... — 5 — 6 e. -- Miðvikudaga . . — 3—4 e. -- Föstudaga ... — 5—6 e- -- Laugardaga . . — 3—4 e. -- Sterkir Dívanar, jsem endast í fleiri ár, fást á Grundarstíg 8. Sömuleiðis ódýrar viðgerðir. Æskan. Fundur á morgun, Margt til skemtunar. Bdgar Rice Burroughs: Tarzan snýí* aftur. „Mig hlýtui’ að dreyma, og ég muu vakna á sama augnablikí og ég sé hinn ógurlega hníf nálg- ast hjarta mitt — kystu mig, ástin mín, bara einu sinni, áður en draumurinn hverfur út í ei- 'lífðina“. Taizan apabróðir lét ekki segja sér þetta tvisvar. Hann tók stúlkuna, sem hann elskaði í fang sitt, ög kysti hana, ekki einu sinni, heldur ótal sinnum, unz hún gat varla náð andanum; og þegar hann hætti, lagði hún hendurnar nm háls honum og dró varir hans að sínurn vörum einu siuni ena. sEr ég í raun og veru lifandi, eða er ég bara draumur?" sparði'hann. „Ef þú eit ekki lifandi, maðurinn minn,“ svar- aði hún, „þá óska ég þess, að mega deyja þannig, áður en ég vakna til þeirra óskapa, sem ég sofn- aði frá*. þau stóðu bæði þegjandi um stund — starandi hvort í annars augu, eins og þau væru enn í vafa um gæfu þá, er þeim nú loksins hafði fallið í Bkaut. Fortíðin, með öllum vonbrigðum sínum og ógnurn, var gleymd — framtíðin kom þeim ekki við, en nútíðin — hana áttu þáu; engiun gat tekið liana frá þeim. Stúlkan rauf fyrst hiua unaðslegu þögn. „Hvert eigum við að fara, elsku vinur?M spurði hún. „Hvað eigum við að gera?“ „Hvert vildir þú helzt fara?“ spurði hann. „Hvað vildir þú helzt hafast að?“ „Fara þaugað sem þú ferð, maðurinn minn, gera hvað sem þér virðist hentast," svaraði hún. „En Clayton?” spurði hann. Hann hafði í svip- inn gleymt því, að fieiri menn voru til á jörðunni en þau tvö. „Við höíum gleymt eigínmanni þínum“. „Ég er ekki gift, Taizan apabróðir,11 hrópaði hún. „Og ég er ekki heldur trúlofuð lengur^ Dag- inn áður en þessar hræðulegu verur ióku mig, talaði ég við Glayton um ást mína til þín, og hann skildi þá, að ég gat ekki haldið það heimsku- lega loforð, er ég hafði gefið, fað var eftir að kraftaverk hafði bjargað okkur undan ljóni.“ Hún þagnaði skyndilega og leit á hann spyrjandi augna- ráði. „Tarzan apabróðir," hrópaöi hún; „það varst þú sem gerðir það? Enginn annar hefði haft mátt til þess“. Hann leit til jarðar, því hann blygðaðist sín. . „Hyernig gaztu farið burtu og skilið mig eina eftir?" hrópaði hún ásakandi. „Gerðu ekki þetta, Jane!“ bað hann. „Ásakaðu mig ekki! Pú getur ekki gert þér í hugarlund, hve mjög ég hefi þjaðst siðan, eða hversu ég þjáðist þá fyrst af afbrýðisemi og síðan af gremju við örlög þau, er ég að óverðskulduðu hafði hlotið. Ég fór þá til apanna aftur, Jane, og ætlaði mér aldrei framar að hitta menn". Éví næst sagði hann sögu sína, siðan hann kom í skóginn — hvernig hann á svipstundu hafði breyzt úr ment- uðum Parísarbúá í viltan Wazirihermann og siðan í sama villidýrið og hann hafðj áður verið.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.