Vikan


Vikan - 03.06.1982, Síða 40

Vikan - 03.06.1982, Síða 40
Texti: Fríöa Björnsdóttir Myndir:RagnarTh. „ V firleitt eru þeir stilltir og góöir en alltaf eru einhverjir sem ekki vilja láta bursta sig, klippa eöa snyrta. Ég verö þá bara aö setja á þá múlinn því allur er varinn góöur. Eg læt þá vita að þaö er ég sem ræö ferðinni og ætla mér aö stjórna. Þeir lyppast þá venjulega niöur og fara aö láta að stjóm. En oft hef ur þó verið glefsað í mig. ’ ’ Varla getur þaö veriö venjulegur rakari eöa hárgreiöslukona sem lýsir viðskiptavinunum á þennan hátt. Svo er heldur ekki. Þetta er Sonja Felton sem klippir ekki eöa snyrtir fólk heldur poodle-hunda. Sonja býr meö fjölskyldu sinni og tveimur vel snyrtum poodle-tíkum suöur í Hafnar- firöi og bera þær handbragði húsmóöur sinnar gott vitni. Var dagmamma fyrir poodle-tík En hvernig vaknaði áhugi Sonju á hundum og síðan snyrtingu þeirra? „Eg hef alltaf haft mikiö gaman af dýrum. Þegar ég var krakki átti ég hund. Þá bjó ég úti í Bandaríkjunum og var þar til 13 ára aldurs. Þegar heim kom fannst mér undarlegt aö hundahald skyldi vera bannaö og langur timi leiö þangaö til ég eignaöist hund á nýjan leik. Einn góöan veöurdag sá ég auglýs- ingu í Dagblaöinu þar sem óskaö var eftir dagmömmu fyrir hund. Eg hringdi og fékk starfið. Ég passaöi hundinn frá hálfníu á morgnana og fram til hálfsex á kvöldin, rétt eins og venjulegar dagmömmur gera meö bömin sín. Þetta var fyrir fjórum árum. Endirinn varö sá aö fólkið sem átti hundinn — tíkina gat ekki haft hana og viö gátum ekki hugsað okkur aö láta hana fara neitt annaö svo viö tókum hana alveg aö okkur. Þetta er Tina, eldri tíkin okkar. Hún eignaöist síöar fimm hvolpa og þaö er einn þeirra, Perla, sem hér er líka. Síöan tók ég þátt í stofnun Poodle- klúbbsins sem er deild í Hundaræktar- félagi Islands. Til okkar kom sérfræö- ingur 1980. Hún heitir Ebba Aalegaard og var hún fengin hingaö til þess aö aöstoöa okkur á ýmsan hátt og fræöa okkur um hitt og þetta varðandi hund- ana og ræktun þeirra. Eftir aö ég hafði hitt Ebbu vaknaöi áhugi minn á því aö læra aö klippa og snyrta poodle-hunda. Ef það er ekki gert líta þeir aö lokum út eins og rollur, háriö verður sítt og krullaö og einn flóki.” Klippt og snyrt í Danmörku „Fórstu svo aö læra hundasnyrt- ingu?” „Ebba Aalegaard er meö hundabú og snyrtistofu fyrir hunda á Jótlandi. Eg spuröi hana hvort hægt væri aö komast til hennar og fá aö fræöast þar um snyrtinguna og sitthvaö fleira og þaö var auðsótt mál. I maí í fyrra fór ég síðan utan og var hjá henni í tvo mánuði. Það var fátt starfsfólk hjá henni um þessar mundir svo mér gafst Sonja Felton er hér meö einn viðskiptavininn og þótt hann sé góðlegur á svipinn getur verið öruggara að hafa á honum múlinn. Sumir vidskipta- vinirnir bíta! — segir Sonja Felton sem hefur kynnt sér hvernig á að klippa og snyrta hunda tækifæri til þess að vinna aö flestu sem þarna fer fram, jafnt aö snyrtingunni sem og aö umönnun hundanna, og svo fór ég líka á svokallaö ring-training námskeiðhjáhenni. I Danmörku er hundasnyrting tveggja ára nám og þaö þarf aö komast á samning rétt eins og þegar fólk lærir til dæmis hárgreiöslu eöa aðra iön. Aftur á móti veit ég að hægt er aö fá réttindi til hundasnyrtingar í Bandaríkjunum eftir 8 vikna nám- skeiö. En það gengur nú allt svo fljótt fyrir sig í Bandaríkjunum,” segir Sonja og hlær viö. F'lest okkar þekkja líklega poodle- hunda „í sjón”. Þeir eru litlir, krull- aöir og yfirleitt annaöhvort hvítir, steingráir eöa svartir, aö minnsta kosti hér á landi. Reyndar eru þeir til í fleiri litum. En förum ekki lengra út í þá sálma hér. Viö biöjum Sonju aö segja okkur svolítiö frá háralagi þessara hunda og hvers vegna 40 Vikan 22. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.