Alþýðublaðið - 24.02.1923, Síða 4

Alþýðublaðið - 24.02.1923, Síða 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ Leikfélag Reykiavtkar. Nýjársnóttin, verður leikin sunnudagidn 25. þ. m. kl. 8 síðd. Aðgöngumiðar verða seldir á laugardag kl. 4 til 7 og á sunnudag frá kl. 10 — 1 og ettir 2. Sjúkrasamlag Revkjavíkur heldur aðalfund sinn annað kvöid (25. þ. m.) * kl. 8^/a síðdegis í Goodtemplarahúsinu. Ycðrið hefir verið dásamlega gott undanfatinn tíma, svo gott, að furða er, að auðvaldslýðurinn hér skammast sín ekki (yrir að láta sjá sig á götunum, þegar hann veit, að þrátt fyrir þessa miklu árgæzku verður fjöldi manna að þola skort á fæði, klæðum og húsaskjóli — fyrir þenna lýð. Klrkjuhljómleikarnlr voru vel sóttir í gærkveidi. Er þar um holla og góða skemtun að ræða; væri óskandi, að* flokkurinn sæi sér fært að syngja fyrir lægra gjald, svo hinn fátækara fólki bæjarins gæfist einnig kostur á að heyra góðan söng, Belgaum og Kári komu inn í gærkveldi með ágætan afla. Slgríðdr m.V. er farin á fiski- veiðar. H. P. Duus gerir út 3 skip er leggja út um mánaðar- mótin. Unnur. Fundur á morgun kl. 10. Sýndar verða litandi myndir, Díana. Fundur á morgun kl. 2. JUcssnr á morgnn: í fríkirkj- Unni kl. 2 séra Árni Sigurðsson, kl. 5 próféssor Haraldur Níelsson. í dómkirkjunni kl. 11 séra Bjarni Jónsson, kl. 5 séra Jóh. Þorkelsson. Landakotskirkja kl. 9 f. h. þá- messa, 1d. 6 e. b. guðþjónusta með prédikun. J úðrasvelt Keykjavíknr Ieik- ur á.lúðra á Austurvelli á morg- un k!. 3 e. m. Gætið að, hvort færi gefst um leið til að hlynna að lúðrasveitinni með dálitlu fjár- framiagi. Allir meðlimir Sjúkrasamlags Reykjavíkur ættu að sækja að- alfundinn, sem auglýstur er á öðrum stað í b1aðinu, til þess að geta kynt sér hag þessa* mikilsverða félagsskapar. Mcistaraprójl 1 íslenzkum fræð- um hafa nýlega Jokið þeir Pétur Sigurðsson og Vilhjálmur Þ. Gíslason. Eru þeir hinir fyrstu, sem gengið hafa undir próf í þeirri grein við hágkólann hér — á tólfta ári frá stofnun han?, — og þettá gerist ekki fyrr hjá hinni bókelsku, ræktarsömu sögu- þjóð okkar. Hvað veldur? 26 frninvörp hefir stjórnin lagt tyrir Alþingi, 18 fyrir neðri deild og 8 fyrir efri deild, en lítill tramfarabragur er á flestum þeirra. Verður þó ef til vill minst á eitthvað af þeim síðar. um enska er komin heim úr ferð til Ruhrhéraðanna. Stingur hún upp á því, að Ruhr héruðin sóu gerð að alþjóða-eign. Þjóðverjar óttast incira liernám. Blöðin í Berlín láta svo sem þau búist við, að Frakkar hertaki Karlsruhe, Frankfu fc, Darmstadt, Hamborg og fieiri borgir. Verkmannaskýlið á hafnar- bakkanum er opnað í dag til afnota. Eiga verkamenn þar kost á mjög nauðsynlegu hæli, þegar þeir eru að leita eftir vinnu, og jafnframt keniur það að góðum notum þeim, sem þurfa fljótlega að ná til manna til vinnu. Erlend símskeyti. Khöfn, 23. febr. Harðræði Frakka. Frá Essen er sfmað: Degoutte hershöfðingi hefir bannað þýzkum ráðherruin að koma á hertekna svæðið. Ef þeir geri það, verði þeir dregnir fytir herrétt. Verkamannaflokkurlnn brezki og Ruhr-héruðln. • Frá Lundúnum er símað: Sendi- mannasveit frá verkamannaflokkn- Bragi! Fundur á morgun kl. 10//2 árdegis í Alþýðuhúsinu. — Mætið vel! — Stjómlll* Lítið en gott hús í Reykjavlk fæst í skiftum fyrir hús á ísa- firði. — Uppl. hjá Guðm. É. Breiðfjörð, Grettisgötu 24. Lftill útidyralykill og láslykill bundinn við hefir tapast. Skilist á afgr. Nýtt íslenzkt smjOr f 1 kgr. pökkum í heildsölu og smásölu. — Saltkjöt og alls konar kornvara og ódýr sykur í verzl. Theodórs N. Slgurgelrssonar * Baldursgötu 11. — Sími 951 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hallbjörn Halldórsson. Prentsmiðja Hallgríms Benediktssonar, Bergstaðastræti 19.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.