Vikan


Vikan - 28.10.1982, Qupperneq 14

Vikan - 28.10.1982, Qupperneq 14
Guðfinna Eydal Stríðsleikir og stríðsleikföng Af hverju vilja börn leika stríðsleiki? Af hverju hafa þau ánægju af stríðsleikföngum? Af hverju er gaman að skjóta vinina og látast vera dauður? Hvað eru eiginlega stríðs- leikir? Hvað eru eiginlega stríðs- leikföng? Það mætti halda áfram að spyrja endalaust. Og reyna að svara. Hér verður tæpt á nokkrum atriðum sem tengjast þessu fyrirbrigði. Börn hafa mest gaman af stríðsleikjum á ákveðnum aldri Lítil börn hafa yfirleitt ekki áhuga á stríðsleikjum. Böm á for- skólaaldri (0—5) hafa oft heldur engan sérstakan áhuga á stríðs- leikjum. Það er oftast á aldrinum frá sex til sjö ára og næstu þrjú fjögur árin þar á eftir að þessir leikir eru í algleymingi. Á unglingsárum er ekki algengt að þessi tegund leikja hafi aðdráttar- afl. Stríðsleikir eru mismunandi 1 stórum dráttum er hægt að greina á milli tveggja tegunda stríðsleikja. I fyrsta lagi eru það stríðsleikir þar sem börnin búa sjálf til leikföngin; trébyssur, bogar, pílur, skutlur og fleira úr alls kyns efni sem völ er á. Þessir leikir eru mótaöir af því sem gerist í huga barnsins og þar sem ímyndunar- aflið tengist gjarnan ævintýrum, sögum og öðru sem bamið hefur heyrt eða reynt. Slíkir leikir eru án aðkeyptra hluta og ganga út á alls konar ping-pang og ra, da, da hljóð. Einnig er fjallað um dauð- ann á þann hátt að viðkomandi er gjaman skotinn en lifnar við aftur og verður gjaldgengur á ný eftir að búið er að telja upp að vissu marki. Bófaleikir, indíánaleikir og þjófaleikir tilheyra þessum leikjum. I öðru lagi eru það stríðsleikir sem einkennast af keyptum hlutum. Byssur, hermenn og alls kyns flókin drápstæki og tækni tilheyra þessum leikjum. Þeim mun flóknari og líkari raunveru- leikanum sem þessi leikföng eru því meira aödráttarafl hafa þau. Þegar böm nota fyrri tegund leikfanganna — gjaman heima- tilbúin leikföng — leika þau sér oft í hópum og úti. Hópur gegn hópi, bófalið gegn bófaliði. Hér reynir mikið á líkamann og bömin eru virk, hlaupa, klifra og fela sig. í hinni tegund leikja — þar sem aðkeypt stríðsleikföng ráöa ferðinni, er yfirleitt um innileiki að ræða. Bömin eru heima eða inni hjá vinum og þau leika sér annaðhvort ein eöa fleiri saman. Þau eru ekki mjög líkamlega virk, kannski hávaöasöm, en nú er aðal- virkni bamanna færð yfir á leikföngin sjálf en ekki bömin eins ogífyrra dæminu. Báðar þessar tegundir leikja eru stríðsleikir en innihald þeirra og tilgangur eru gjörólík. Hvaðan fá börn hug- myndir um stríðsleiki? Hugmyndimar fá þau úr ýms- um áttum. Margar koma úr bók- um, ævintýrum og þvíumlíku. Teiknimyndasögur fjalla einnig oft um stríðsleiki og stríðstæki. í kvikmyndahúsum er mikið af myndum sem hægt er að fá hug- myndir úr, svo að ekki sé minnst á sjónvarp og video. Böm verða líka fyrir áhrifum af umræðuefnum fulloröinna, því sem blöð fjalla um og því sem þau heyra um stríð og ofbeldi í fréttum. Ýmiss konar stríðsleikir ganga líka í „erfðir”. Það eru margar tegundir leikja, sem eru endurteknar kynslóð eftir kynslóð og eru ýmiss konar stríðsleikir, bófa- og hasarleikir dæmi um slíka. Ekki var t.d. óalgengt að kjálkar og þvíumlíkt væri notað sem byssur hér á árum áður. Böm hafa gjaman notað ýmiss konar hluti í byssuleiki, sem gátu skipt um hlutverk og verið eitt í dag og annað á morgun. Imyndunaraflið var notað til að finna upp ný og ný leikform fyrir hlutina. Strákar eru mest í stríðsleikjum Það eru nær eingöngu strákar sem vilja leika stríðsleiki. Stelpur geta tekið þátt í þessum leikjum en strákar hafa yfirleitt frum- kvæðiö og stjóma feröinni. Ásókn stráka í stríösleiki tengist hugmyndum þjóðfélagsins um karlmennsku. Það hafa lengi verið uppi hugmyndir um að karlmenn eigi að vera kaldir karlar, bjóða heiminum byrginn, vera stórir og sterkir. Karlmenn eiga ekki aö vera hræddir né veikgeðja, þeir eiga hvorki aö ótt- 14 Vlkan 43. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.