Vikan


Vikan - 28.10.1982, Qupperneq 45

Vikan - 28.10.1982, Qupperneq 45
Persónuleikapróf 13. Systir þín verður ástfangin af manni sem hún vinnur með. Hún uppgötvar að hún er ófrísk og þá kemur í ljós að maðurinn er giftur. Hvernig bregst þú við? a) Ásakar manninn fyrir að hafa farið illa með hana b) Ásakar systur þína fyrir að hafa ekki verið gætin c) Lætur þér títt um hið ófædda barn 14. Ef þú hefðir vald til að banna einhverjar „veiðar” vegna þess að þær væru grimmúðlegar, myndir þú þá banna eitthvað af eftirfarandi? a) Refaveiðar á hestum (yfir- stéttarsport í útlöndum) b) Hreindýraveiðar c) Fuglaveiðar d) Nautaat e) Stangaveiði 15. Þú gengur fram á gamlan krepptan betlara. Hvernig bregstu við? a) Vorkennir honum og gefur honum eins mikið og þú getur b) Gefur honum eitthvað til að friöa samviskuna c) Tekur á þig krók 16. Margt fólk býr við fátækt, jafnvel í ríku löndunum. Finnst þér að... a) það geti sjálfu sér um kennt? b) þaö hafi verið óheppið? c) þaö gæti vel reynt meira en það gerir til að ná sér upp úr baslinu? 17. Blindur maður þreifar sig áfram með hvíta stafnum sínum. Hann kemur að miklu umferðar- horni og er mjög óöruggur. Hvað gerir þú? a) Ferð yfir götu til að hjálpa honum b) Hjálpar honum ef þú ert næsti maður við hann c) Lætur öðrum eftir að hjálpa honum 18. Hvað finnst þér um eiturlyfja- neytendur? a) Vorkennir þeim b) Vilt að þeir fái aöstoð c) Vilt að þeir fái refsingu Sjá stigagjöf LAUSN. Stigagjöf er sem hér segir: 1. a3, bl,c5. 2. a5, b3, cl. 3. a5,b3, cl. 4. a5, bl,c3. 5. a5, bl,c3. 6. a3, b5, cl. 7. a3,bl,c5. 8. a3, b5, cl. 9. a3, b5, cl. 10. al,b5, c3. 11. a5,b3,cl. 12. al,b3, c5. 13. a3, bl,c5. 14. al,bl,cl. 15. a5, b3cl. 16. al,b5, c3. 17. a5,b3,cl. 18. a5, b3, cl. Leggðu saman stigin. Ef þú ert með: Minna en 35 stig: Enginn getur sagt um þig að þú sért of indæl mannvera. Þú ert svo sem ekki alltaf óvingjarnlegur, aö minnsta kosti ekki viljandi en þú hefur fyrst og fremst áhuga á einu — þinni eigin persónu — og þú gætir þess vel aö enginn misnoti sér góðsemi þína. Þér finnst aö þeir sem ekki hafa átt velgengni aö fagna í lífinu geti bara sjálfum sér um kennt. Ef þeir leggja hart að sér við vinnu (eins og þú) og gæta að peningun- um sínum (eins og þú) muni þeim líka vegna vel (eins og þér). 36—53: Þú virðist kannski vera tilfinningalaus og haröbrjósta á yfirborðinu, eða það finnst ókunnugum ef til vill. En þeir sem standa þér næst og eru þér kærast- ir þekkja þig sem aðra mann- eskju. Þeir vita að þú getur verið indæll og fullur samúðar, örlátur og hjálpsamur, en bara af og til. Þú ert svo upptekinn við eigin mál þess á milli að þú tekur kannski ekki eftir því að aðrir eru hjálpar þurfi eða þurfa á hughreystingu og athygli að halda. Reyndu að hugsa meira um aðra. 54—72: Hjá þér er athyglin álíka mikil á sjálfum þér og öðrum og jafnvægi ríkjandi þar. Þú ert of tilfinningaríkur til að geta fórnað þér fyrir það sem þér geðjast ekki að en þú getur lagt þig mjög fram við að hjálpa vini í neyð. Auðvitað reyna einhverjir aö misnota sér góðsemi þína — og tekst það stundum — en láttu það ekki hindra þig í að vera áfram skilningsríkur, hjálpsamur og örlátur í eðli þínu. 73 eða meira: Þú ert allt of indæll, of fullur samúðar í annarra garð og of ákafur aö hjálpa öðrum. Fólk getur misnotað góðsemi þína og gerir það næstum alltaf. Þú tekur ekki eftir því. Ekki er svo að skilja aö það sé ekki allt í lagi að vera góður í sér en þú ættir að reyna að skilja kjarnann frá hism- inu og vera vandlátur i i Wt vinavali. L-J 43. tbl. Vikati 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.