Vikan


Vikan - 28.10.1982, Side 46

Vikan - 28.10.1982, Side 46
Diana Petre Ferðalangar Allt var svo friðsælt — eng- inn hafði séð storminn fyr- ir. au sátu andspænis hvort öðru í litlu svissnesku lestinni og voru á heimleið. Á fimmtu stöð áttu þau að hlaupa yfir teinana og skipta yfir í hraðlest. Tom var alltaf að líta á klukkuna. „Áfram, áfram,” tautaðihann, „áframmeð þig.” Þetta var í fyrsta skipti sem þau höföu ferðast eitthvað saman. Starf Toms hafði komið í veg fyrir öll ferðalög, eins og yfirleitt allt skemmtilegt í lífinu. Sue vissi núna, þegar það var um seinan, að þaö haföi verið misskilningur að krefjast þess aö hann tæki enga vinnu með sér. Hann hafði lagt sig allan fram til að sýna ekki hvað hann saknaði vinnunnar en hún vissi og fann hvað honum hrútleiddist. Tom hafði varað hana viö þessu svo að það var henni aö kenna. „Viö skulum fara í ferðalag um leið og ég kemst,” sagði hann, „en þú getur ekki kallað það brúð- kaupsferð nema þú viljir dæma ferðalagið dautt fyrirfram,” og svo bætti hann viö og hermdi ill- girnislega eftir föður hennar: „Það er ekki eins og pabbi konii með okkur.” Faðir Sue var verðbréfasali frá Weybridge. Hann átti stórt hús með sundlaug, tennisvelli og öllu öðru sem gerði það að verkum að Tom og gáfumennirnir, vinir hans, hæddust aö honum. Það var faðir Sue sem haföi gefið þeim ávísun svo að þau gætu farið í síð- búna brúðkaupsferð. Þau höfðu gift sig hjá fógeta fyrir tæpu ári. Hún hafði ekki verið í hvítum kjól — og hún hafði misst af þessum stórkostlega degi sem henni haföi verið kennt að yrði mikilvægasti dagurinn í lífi hennar — hún hafði ekki farið í brúðkaupsferð og engar brúð- argjafir fengið því að enginn vissi að þau voru að gifta sig, þeirra beið ekki nýtt hús og brúðarfylgjan var engin. Sue hafði einfaldlega flutt inn í einstaklingsíbúðina hans þar sem þau höfðu elskast í sex mánuði. Tom fannst þetta allt sjálfsagt og eðlilegt en Sue minnti það helst á stöðuga baráttu sem hún var alltaf aötapa. Stundum benti Sue Tom á að hann væri eins og klipptur út úr skrýtlublaði, það var þegar henni fannst hann ganga of langt í hæðn- inni; hann var skeggjaður eðlis- fræðingur sem gekk í sandölum og var með gleraugu. Hann gat ekki opnað niðursuöudós eða komið heim í öllu því sem hann fór í út, ekki ekið bíl með góðu móti eða komist einn út úr poka, þó að úr pappír væri. Stundum hefði Sue getað kyrkt móður hans fyrir aö ala hann svona upp og gera hann alls ófæran um aö bjarga sér, en móðir hans var látin svo aö það var borin von. Það voru önnur vandamál. Sue kunni ekki að elda mat og steiktur fiskur og kínverskur matur var dýr til lengdar, enda var engin hella í einstaklingsíbúðinni svo að hún gæti æft sig á matargerð. Tom lifði á svörtu kaffi og samlokum; rúmið var alltaf fullt af brauð- molum. Hann minnti á horaðan spörfugl og hnjákollarnir voru svo skarpir að hún átti von á að þeir brytust út úr gallabuxunum. Nokkrum vikum eftir giftinguna fékk hann styrk og faöir Sue lét sig og gaf dóttur sinni mánaðarlega peninga. Þau fluttu inn í tveggja herbergja íbúð í Camden Town. Fyrsta kvöldið keyptu þau sér vín- flösku til að halda þetta hátíðlegt og Tom tókst að troöa tappanum ofan í flöskuna. Daginn eftir hringdi Sue til mömmu sinnar: „Hann er eins og smábam. Hann getur ekki einu sinni tekið tappa úr flösku.” „Allir karlmenn eru börn, vina mín.” „Ég vil ekki eiga barnamann. Pabbi getur tekið tappa úr flösku. Pabbi getur gert allt mögulegt.” „Er það? Eins og hvað? Mig langar til að vita þaö? Ég viður- kenni þó aö hann getur tekið tappa úr flösku.” Sue hafði farið út meö háskóla- nemum sem gáfu henni blóm, sóttu hana í sportbílum og fóru með hana á dýr veitingahús áður en hún hitti Tom og vissi að hún myndi deyja ef hann giftist henni ekki. Tom gerði ekkert slíkt — og hann hló að fötunum hennar. Hann hló svo mikið að henni að einu sinni spuröi hún hann hvers vegna hann væri eiginlega aö burðast með sig. „Af því að þú ert svo vitlaus og af því að ég vil eignast fullt af börnum og þú hefur frábæra grind.” Hann tók hana aldrei alvarlega en hún fann í rúminu að hann elskaði hana á sinn eigingjarna hátt. Hann var veitull og frjór elskhugi og einbeitti sér algjör- lega að sameiningu líkama þeirra, en hún vissi að starfið gekk fyrir öllu og hann færi að vinna strax eftir jarðarförina ef hún dytti niður á morgun. Hann myndi aldrei breytast. Hann sá hana ekki ef eitthvað gekk úrskeiðis á rannsóknar- stofunni. Hann var ekki eins og annað fólk, eins og þaö er kallað: Allt frá bernsku hafði verið áber- andi að heili hans var stærri eða sterkari eða fínni eða eitthvað svoleiðis en í öðru fólki. Hann var orðinn tuttugu og fjögurra ára og því kominn yfir þann aldur sem snilligáfan þreytir annað fólk. „Svisslendingar myndu aldrei leyfa sér annað eins og láta þessa litlu sveitalest missa af hraðlest- inni,”sagðihún. Hún óskaöi þess að hann nyti þessarar rólegu ferðar milli snæviþakinna mjallhvítra tinda sem voru á báðar hendur. Þetta var ekki skíðasvæði en af og til sást einn og einn skíðamaður í fjarlægð. Hún vissi að landslag skipti hann litlu máli og hann hafði engan áhuga á hugleiðingum skíðamannsins sem hvarf eins og örlítill depill milli skaflanna. Tom hafði óvenju lítinn áhuga á hugs- unum og hugleiöingum annarra. Hann var ekki einn um það að vilja komast til London. Sue hélt að hún væri barnshafandi. Hún ætlaði að tala við lækninn sinn á morgun. Hún hafði sagt Tom þetta fyrir tveim dögum. Hann leit upp úr bókinni, sagði „gott” og hélt áframað lesa. Eftir það virtist hann hafa stein- gleymt þessum merku fréttum. Hann hagaði sér aldrei eins og annað fólk sem hún þekkti. Pabbi hefði faðmað hana að sér, opnað kampavínsflösku og náð tapp- anum úr með lagni og mátulegum hvelli og sennilega keypt eitthvað handa henni, dýrmætan skartgrip. Sue var enn að venjast lífinu með Tom. Hún sagði við sjálfa sig, þegar hún var langt niðri, og það var hún oft, að það væri ekki rétt að hún yrði aö laga sig að honum. Tom hélt áfram að lifa eins og hann hafði alltaf gert, nema hvað nú kom hann heim í mat — ef mat skyldi kalla — og hann þurfti ekki lengur að hafa áhyggjur af fata- þvotti. Það komu líka þær stundir — og þær voru fleiri — sem Sue skildi ekki hvemig hún hafði haldið Weybridge út öll þessi ár, alltaf stundvís í matinn vegna þess aö hún óttaðist að angra þjónana, alltaf að halda kokkteilboð eða fara í þau án þess að hafa hugmynd um það sem geröist í víðri veröld — þangað til að Tom hafði komið og sprengt þennan heim hennar í loft upp. 46 Vikan 43. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.