Vikan


Vikan - 28.10.1982, Page 48

Vikan - 28.10.1982, Page 48
Smásaga þú sért að gera? Við höfum aðeins mínútu til stefnu. Við missum af lestinni!” Hann hafði snúið sér frá henni og virtist ætla að stökkva af stað aö lestinni sem beið þeirra en við teinana stóðu töskumar tvær hlið viðhlið. „Komdu!” Hún leit á töskumar. Hann ætlaðist til að hún bæri þær báðar. Það varð mikil breyting á henni þegar hún skildi sannleikann. Þetta var annað og meira en sér- viska, þetta var ógeð. Það er sagt að drukknandi maður sjái liðna ævi fyrir sér á sekúndubroti. Hún sá fyrir sér allt það sem hafði angrað hana frá upphafi. Omerkilegan giftingar- daginn, korktappann fljótandi í flöskunni, skítugar tærnar í sand- ölunum, týndu fötin, þögn dögum saman, skort á mannasiðum og leiðindaframkomu við hana sjálfa. Átti hún ekki von á barni? Jú, kannski. Allt þetta og margt annað sá hún fyrir sér á svipstundu og nú gerði hún uppreisn. Það gat ekk- ert fengið hana til að snerta töskurnar við fætur sér. „Þú getur borið þær,” sagði hún með ískulda. Fram að því hafði hún staðið kyrr líkt og í draumi. Nú tók hún sér stöðu, ógnandi á svip, hún stóð gleitt og studdi höndum á mjaðmir og augnaráðið var ófagurt. Breytingin á eiginmanni hennar varð jafnmikil. Hann trúði ekki eigin eyrum. Andartaki áöur hafði hann verið ákafur og áhyggjufull- ur ungur maður. Nú titraði grann- ur líkaminn af hneykslun, gler- augun og rytjulegt skeggiö virtist rafmagnað og hann minnti mest á hvæsandi kött. Hann gat ekki einu sinni staðið kyrr því að hann hoppaði upp og niður. „Ég geri það sem ég get!” æpti hann. „Ég held á farseðlunum!” Hann ýtti þeim að henni og veifaði þeim eins og fána fyrir framan hana til að sanna mál sitt. Þau stóðu þama og horfðust í augu eins og fornir fjendur. Það var hægt að hlæja að þessum orðum hans seinna. Núna var annað og mikilvægara í veði. Sue hafði aldrei fundist hún hafa jafn- háleitt markmið að stefna að fyrr. Hún hefði höggvið af sér hendum- ar, skilið, aldrei séö hann aftur, allt fremur en taka töskumar upp. Hún bar höfuðið hátt og var ein- beitt á svipinn og innst í brjóstinu, þar sem uppreisnin hafði hafist, jókst spennan sífellt. Það haföi aðeins einn annar farþegi farið af lestinni, gamall maöur. Sue sá hann út undan sér á leiðinni yfir teinana og hann var einmitt að stíga upp á neðsta þrep vagnsins þegar Sue sá manninn sinn lyppast niður. Hún hafði sigrað. „Þú velur svei mér tímann til að mótmæla,” tautaði hann, stakk farseðlunum upp í sig, beit í þá og tók töskurnar og stökk yfir tein- ana. Sue hafði haldið niðri í sér andanum. Nú andaði hún frá sér. Hún lagfærði axlartöskuna betur og gekk tómhent mátulega hratt á eftir honum. i mm SMIÐJUVEGI 44D KOPAVOGI SIMI 75400 og 78660. A A SOLARHRING Bílaleigan hf. býöur nú sérstakt haustverö á bílaleigubílum sínum sem gildir frá 1. okt. til áramóta. Innifaliö í þessu fasta veröi er ótakmark- aöur fjöldi ekinna km, tryggingar svo og söluskattur. Verðskrá pr. sólarhring. ........................................ Toyota Starlet kr. 690 ToyotaTercel kr. 710 Toyota Corolla kr. 730 Toyota Corolla St. kr. 750 iiimnniuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin Erum einnig meö sérstök helgartilboö sem gilda frá kl. 16.00 á föstu- degi til kl. 9.00 á mánudagsmorgni. Verðskrá pr. helgi Toyota Starlet kr. 1500 Toyota Tercel kr. 1540 Toyota Corolla kr. 1580 Toyota Corolla St. kr. 1620 Nú er hægt aö láta veröa af því aö heimsækja Jónu frænku á Húsavík eöa hann Palla frænda í Þykkvabænum verösins vegna. í H Inllnl J 48 VlKan 43. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.