Vikan


Vikan - 28.10.1982, Side 50

Vikan - 28.10.1982, Side 50
Eldhús Vikunnar Vinnustaður: Sjallinn á Akureyri (Sjálfstæðishúsið) Höfundur: Valmundur Árnason matreiðslumeistari Umsjón: Jón Baldvin Halldórsson Hreindýrasteik du chef 1—1 1/2 kg hreindýrakjöt, t.d. læri eða hryggur salt — pipar KRYDDSMJÖR: 2 msk. smjör 8—10 st. marin einiber 1 tsk. salvía 4 dl kjötsoð SÓSA: 4 dl steikarsoð 2 dl rjómi rifsberjahlaup SMJÖRBOLLA: 2 msk. smjör og 2 msk. hveiti. Hrærið einiberjunum og salvíunni saman við smjörið. Kryddið kjötið með salti og pipar. Smyrjið steikina að ofan með kryddsmjörinu og setjið síðan á grind ofan á skúffu í ofnin- um. Steikið kjötið við 250° fyrstu 8—10 mín. Hellið þá kjötsoðinu í skúffuna og látið kjötið steikjast við 170° í u.þ.b. 11/2 klst. (fer eftir þykkt kjötsins). Sigtið og mælið steikarsoðið í pott, setjið rjómann saman við og látið sjóða upp. Hrærið áður lagaða smjörbolluna smátt og smátt saman við og látið krauma á meðan. Sjóðið áfram í 5—6 mín., bragðbætið sós- una með salti og pipar ásamt svo- litlu rifsberjahlaupi. Berið fram með t.d. bökuðum kartöflum og blómkáli. Karrísúpa með kræklingum I laukur 25 g smjör 2—3 tsk. karrí 11/2 msk. hveiti II kálfa- eða hænsnakjötsoð 1 dl rjómi 1 dós kræklingur salt Bræðið smjörið og látið karríið krauma í smástund. Setjið síðan saxaðan laukinn í pottinn og þykkið með hveitinu. Hellið síðan kjöt- og kræklingasoðinu varlega út í og hrærið vel í uns súpan er farin að sjóða, látið sjóða við vægan hita í ca 10 mín. Hrærið rjómanum saman við og síðan saltinu og e.t.v. karríi, því næst eru kræklingamir settir í súp- una og látnir hitna í gegn (má ekki sjóða eftir að þeir eru komnir saman við). Bjóðið t.d. smjörristað (pönnu- steikt) snittubrauð með súpunni. Bláberja- tartalettur 250 g bldber 25 g (2 msk.) sykur DEIG: 125 g hveiti (2 dl') 25 g (2 msk.) sykur 1 /4 tsk. salt 50 g smjörlíki 1 eggjarauða 2 msk. sætt hvítvín Skolið bláberin og hrærið þau með sykrinum þar til það hefur blandast vel. Kælið. Blandið hveiti, sykur og salt. Hnoðið smjörlíkinu saman við. Blandið síðan egginu og hvítvíninu saman við. Geymið deigið í 1 klst. í kæli. Fletjið deigið þunnt út. Þekið tartalettuform innan með deiginu og stingið það með gaffli (svo það bólgni ekki við bakstur). Bakið botn- ana við 225° í 12—15 mín. Látið þá kólna dálítiö áður en þeir eru losaðir varlega úr mótunum. Setjið blá- berjahræruna í botnana og berið fram strax með þeyttum r jóma. (Viö biðjum lesendur velvirdingar á að hafa seinkaö birtingu uppskrifta frá Ara De-Huynh þar til í nœsta blaði, 44. tölu- blaði Vikunnar.) 50 Vlkan 43. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.