Vikan - 28.10.1982, Page 56
Jarrtes Joyce og
ritverk hans
Eitt hundrað ár eru iiðin frá fæðingu irska
rithöfundarins James Joyce og er þess minnst
um heim allan. Meðan hann enn var ofar moldu
voru verk hans umdeild svo ekki sé meira sagt
og svo er í nokkrum mæli ennþá. Flestir viður-
kenna þó að ritverk Joyce, sérstaklega
ULYSSES, séu meðal hæstu tinda bókmennta-
verka á öldinni. Í næstu Viku er i allitarlegri
grein fjallað um ævi James Joyce og ritverk
hans.
sem vit er í
Allir helstu bílar af árgerð 1983
hljóta umfjöllun í bílablaði Vikunnar.
Til að auðvelda lesendum samanburð
(og jafnvel val) á nýjum bílum höfum
við dregið saman allar nytsamlegar
upplýsingar um alla helstu innflutta
Ibíla. Við fengum hjá bílaumboðunum
upplýsingar um alla helstu fólksbíla til
einkaafnota og röðum þeim upp í
töflur eftir VERÐI.
Fjármálin eru á hreinu í bílablaði
Vikunnar, menn geta notað það til að
gera sér grein fyrir hvað gæti talist
skynsamleg fjárfesting í bíl. Og við
gerum líka grein fyrir öllum helstu
útgjöldum rekstrar venjulegs bíls af
meðalstærð.
Greinargott yfirlit yfir 1983-módelin
í næstu Viku.
Leikfélag
Akureyrar og Atómstöðin
Atvinnuleikhúsin eru nú öll
komin á fulla ferö og bjóöa upp á
margt athyglisvert í vetur. Þegar
í upphafi leikársins hefur leik-
húsunum í Reykjavík rækilega
tekist að vekja umræður fólks um
leikrit. En þó ekki heyrist eins
mikið um fyrstu sýningu Leik-
félags Akureyrar er samt á ferð-
inni mikið verk þar sem er
Atómstöðin eftir Halldór Laxness.
Litið var inn hjá Leikfélaginu
meðan enn stóðu yfir æfingar og
annars konar undirbúningur.
Við stœkkum mynd
afbarninu þínu
á ekta postulínsdisk.
Ljósmyndastofa Kópavogs
Hamraborg 11, sími 4-30-20.
56 Vlkan 43. tbl.