Vikan


Vikan - 17.03.1983, Blaðsíða 20

Vikan - 17.03.1983, Blaðsíða 20
Táknmál umferðarinnar Texti: Sigurður Hreiðar. Myndir: Ragnar Th. Temjum okkur tjáskipti við sam- ferðamenn í umferðinni. Það stuðlar að greiðari umferð og giaðari ökumönnum. Löngum hefur veriö haft fyrir satt aö ýmislegt sem aflaga fer sé af því aö ekki sé nógu mikið talaö saman. Þetta heitir á nútíma máli aö tjáskipti skorti. Þaö fer ekki milli mála aö tjá- skipti skortir í umferðinni. Oku- menn setja fyrir sig fjarlægöir milli bíla og ganga út frá því gefnu aö þar sem hvor um sig situr inni í hulstri, sæmilega hljóðþéttu, sé ekki um þaö að ræða aö tala saman. Þetta má til sanns vegar færa — ef við hugsum okkur tjá- skipti eingöngu talaö mál. Raunar vita allir alvöru bílstjórar fyrir löngu aö hægt er aö hafa tjáskipti milli bíla meö ööru móti. Við gefum hljóðmerki þegar við ætlum fram úr, einhver er fyrir okkur aö óþörfu (og stundum líka þótt hann eigi ekki annarra kosta völ), við gefum stefnuljós til merkis um að viö ætlum aö breyta um stefnu (sumir gera þaö raunar ekki fyrr en til að sýna aö þeir eru búnir að breyta um stefnu). En viö getum skipst á upplýsingum á margan hátt fleiri. Til aö byrja meö má nefna ökuljósin. Viö minnum þann sem kemur sofandi á móti okkur meö háu ljósin á gleymsku sína meö því aö blikka á hann. Viö gefum merki meö þeim um að okkur langi aö komast fram úr, eöa reynum aö vekja athygli þess sem kemur á móti á að eitthvað sé aö hjá honum — hann hefur kannski gleymt aö kveikja ljósin eða eitt- hvaö annað er óeðlilegt við bíl hans, sem ætla má að hafi fariö fram hjá honum. Og þegar viö ætl- um að hleypa einhverjum á (eöa yfir) aöalbraut fyrir framan okkur er algengt aö blikka ökuljósunum. Allt er þetta bílamál. En viö getum líka beitt höndunum til aö koma upplýsingum til næsta ökumanns. Þetta er svo sem ekki nýr sannleikur, en kannski ekki vanþörf á að rifja hann upp núna á ári umferðarinnar. Því fullvíst má telja aö ef menn gætu komiö sér saman um aö skilja hver annan í umferðinni myndi tillitssemi aukast og tillitssemi er þaö sem okkur skortir fyrst og fremst í ís- lenskri umferð, miklu fremur en strangari boð og bönn og fyrir- skipaðar reglur. I rauninni má setja jöfnumerki milli tillitssemí og skynsemi í umferð, og niöur- staöan hlýtur að veröa greiðari, öruggari og ánægjulegri umferö. Því væri ekki úr vegi aö setj- ast um stund í málaskóla um- ferðarinnar og læra undirstöðuat- riði í táknmáli hennar. Þar meö er líklegt að vanþóknunarmerkin veröi óþörf og það er vel, því sum þeirra eru þess eölis að geta gert þeim sem fyrir veröa gramt í geði. Hins vegar eiga þau rétt á sér að vissu marki, ef þau geta komið þeim sem fyrir veröur til aö hugsa um hvaö þaö var sem kallaði þessa vanþóknun yfir hann, og þar meö bæta úr því. En látum myndirnar tala. Temjum okkur kurteisina í tákn- málinu, lipuröina sem það ýtir undir. Lipur umferö og greið leiöir til brosa og brosið er það sem verður okkur heilladrjúgt farar- nesti. 20 Vikan II tbl. "á¥\
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.