Vikan - 17.03.1983, Blaðsíða 30
Kajagoogoo
,, Too shy-yhushhusheye-
toey," syngja strákarnir í
Kajagoogoo um þessar
mundir. Kaja hvað? Kaja-
googoo. Nafnið á ekki að
þýða neitt. Hugmyndin var
að kalla hljómsveitina ein-
hverju nafni sem minnti á
ungbarnahjal, gúagagóó.
Strákarnir hafa verið að vas-
ast í hljómsveitarbransanum
á þriðja ár. Fjórir þeirra voru
áður i hljómsveit sem
kallaði sig Art Nouveau.
Fjórmenningarnir sáu aug-
lýsingu í músikblaði þar sem
22 ára, myndarlegur, hæfi-
leikaríkur söngvari og laga-
smiður, fullur af ímyndunar-
afli og ákveðni, óskaði eftir
að komast i samband við
aðra sams konar náunga.
Það var söngvarinn Limahl
sem svo auglýsti og hinir
fjórir sem svöruðu. Aðrir
hljómsveitarmenn heita
Steve Askew fgitar), Stuart
Croxford Neale fsynth),
Nick Beggs fbassi) og Jez
Strode (trommur).
Það var fyrir tilstuðlan
Nick fíhodes hjá Duran Dur-
an að Kajagoogoo fékk
áheyrn og siðar plötusamn-
ing. Nick Rhodes virðist
hafa veðjað á réttan hestþvi
Too Shy hefur verið mjög
vinsælt i Bretlandi og viðar.
Strákarnir i Kajagoogoo
náðu hylli Nick Rhodes
vegna þess hve skrautlegir
þeir voru í útliti og minntu á
Duran Duran á frumskeiði.
Það sést þvi miður ekki á
myndinni en háralitur og
klæðaburður er allur mjög
litskrúðugur.