Vikan


Vikan - 20.12.1984, Qupperneq 21

Vikan - 20.12.1984, Qupperneq 21
Smásaga Hún var komin í nýja fallega kjólinn sinn, gljáandi skóna sína og hafði rauðan borða í hárinu. Mamma og pabbi voru eins og klippt út úr tísku- blaði. Jólaborðið var fagurlega skreytt með rauðum dúk, kertaljósum, krist- alsglösum og hvítum servíettum sem báru myndir af jólasveinum. Þau Iborðuöu öll nægju sína og meira en það og þá var komið að aðalatriöinu, ;jólapökkunum. Nú var hún viss um aö allt yrði í lagi, nú gat ekkert farið úr skoröum og það var mikil gleði sem skein út úr litla andlitinu þegar hún opnaði pakkann frá mömmu og pabba. Hún fékk húsið. Hún hljóp upp um hálsinn á þeim báðum og þakkaði þeim fyrir með kossi. Hún átti Ibestu foreldra í heimi. En þá skeöi það bara rétt si svona í einni hendingu að jólin og gleðin hættu að vera til. Tjöldin voru dregin fyrir. Ljósið slökkt. Og myrkrið grúfði sig yfir allt. Það var dyrabjallan sem boðaði Jþessa snöggu umbreytingu. Fyrsta sem henni datt í hug, þegar hún Iheyrði þessa þýðu tóna hljóma um húsið, var að langamma væri komin. Hún hljóp því strax til dyra og lauk upp hurðinni. Og þarna stóð hann þá, þessi hryllilegi maður. Ert það þú, tuskan mín, sagði hann. Hún stóð stjörf og starði á hann eins og hún hefði séð draug. Hún vissi hver hann var og hún vissi hvað það var sem glamraði í pokanum sem hann hélt á. Hún tók viðbragð og hljóp sem elding inn í herbergið sitt og lokaði. Hún settist á stólinn framan við skrifboröið sitt. Hún var þögul. Hún heyrði hann koma inn, heyrði þau skiptast á kveðjum, heyrði þau bjóða honum inn í stofu. Hún vissi hvað var í vændum. Nú yrði hún að læsa. Nú myndu þau byrja. Hann gat alltaf platað þau. Hún lagðist í rúmið sitt og þrýsti litla bangsanum sínum aö sér. Af hverju núna? Af hverju þurfti hann að koma núna þegar þau voru svona góð? Af hverju gat hann ekki látið þau í friði? Þessi viðbjóðslegi karl. Hún hataði hann. Hún hataði líka mömmu sína og pabba, hún hataði alla, hún hataði lífið og líka guð. Hann gat ekki verið góður fyrst heimurinn var svona vondur. Hún barði með krepptum hnefunum á rúmið og sparkaði með fótunum. Varirnar herptust saman og hún reigði hálsinn. Tárin brutust fram og streymdu látlaust niður andlitið og runnu milli varanna. Þau voru beisk. Svo slakaði hún á og spennan í líkama hennar minnkaði aðeins. Hún snökti og dottaði öðru hverju. Hún festi svefn en heyrði samt taliö, köllin og hrópin innan úr stofunni ágerast og músíkina hækka. Hún var í hálfgerðu móki, milli svefns og vöku. Skyndilega var barið harkalega á dyrnar hjá henni. Hún rauk upp og leit á vekjaraklukkuna á skrifborðinu. Hún var orðin langt gengin tvö um nóttina. Það var barið aftur. Hún heyrði pabba sinn öskra fyrir utan: Líf, opnaðu dyrnar, ég þarf að tala viö þig, heyrirðu það. .. Hann sparkaði og barði í hurðina. Opnaðu, helvítis tíkin þín. Hann var fullur. Nú var vondi maðurinn í honum. Nú mundi hann brjóta upp hurðina og berja hana og segja öll þessi ljótu og ógeöslegu orð. Hún var hrædd. Þú veröur alveg eins og hún mamma þín, veistu það? Þið eruð allar eins, allar hórur. Helvítis hórur, heyrirðu þaö? Hún tók fyrir eyrun og kúrði sig út í hom, en það var alveg sama, hún heyrði samt í þeim. Mamma hennar var komin líka. Láttu stelpuna í friði, manndjöfull, heyrði hún hana öskra. Hún var líka full. Hann barði hana. Skiptu þér ekki af mínum gjörðum, djöfuls mellan þín, hreytti hann út úr sér. Þú ert ekki þess verö aö hafa mál, dýrið þitt. Hann barði hana aftur. Hún heyrði borð detta og brothljóð, öskur og vein og meira og meira af ógeðslegum orðum. Hún gat ekki þolað þetta. Nei, nei, hún gat ekki hlustað á þetta, hún varð að komast burt, hún vildi ekki vera hérna lengur. Hún vildi það ekki. Hún vildi fá langömmu sína. Hún vildi fara í litla húsiö til langömmu sinnar. Hún reif ullarteppið af rúminu, vafði því utan um sig og tróð sér út um gluggann, út í nóttina, snjóinn og kuldann. Þaö logaði ennþá á jólastjörnunni í stofuglugganum og á glugga- syllunni var líkan af litlu, gamaldags timburhúsi með upplýstum glugg- um. A stofuborðinu voru tóm glös og flöskur í óreiöu og öskubakki fuliur af sígarettustubbum. Það voru blettir í jóladúknum. Á gólfinu lá maður og svaf djúpum en órólegum svefni. Augnalokin voru á stöðugri hreyfingu og eyru hans námu högg með jöfnu millibili, þau glumdu eins og hamarshögg á steðja. Skyndilega var hann vaknaður, augun störðu tómlega eftir gólfinu. Höggin héldu áfram að dynja. Hann stóö upp með erfiðismunum, greip um höfuðið og stundi. Hann hafði timburmenn og höfuðið var að springa. Það var eitthvað sem slóst utan í einhvers staðar. Það kom frá herbergi dóttur hans. Hún hefur gleymt aö loka glugganum, hugsaði hann. Hann barði inokkur létt högg á huröina. Líf mín, ertu ekki vöknuð, vina. Opnaðu fyrir pabba, elskan. Það er allt í lagi núna, jjabbi er góöur núna. Hann reyndi aftur en ekkert heyrðist nema þungt hljóðið er lausi glugginn slóst í gluggakarminn öðru hveriu. Hann sótti skrúfjárn, stakk upp lásinn og opnaði dymar. En þar tók enginn á móti honum nema köld golan sem smeygði sér inn í herbergið gegnum opinn gluggann. Hann fékk hroll um allan líkamann. Hann stóð stjarfur um stund, rauk síðan inn í svefnherbergi þar sem konan hans lá sofandi. Hann reyndi að vekja hana. Líf er ekki hérna, heyrirðu það, hún er farin eitthvað. Líferfarin. . . Hún umlaði eitthvað óskiljanlegt og ýtti honum frá sér. Hann þaut fram, fullur ótta og angistar, fór í skó, úlpu og út. Það var meira en hné- djúpur snjór um allt. Hann æddi áfram gegnum fönnina og hrópaði svo til viðstöðulaust. Það líktist örvæntingarfullu neyðarópi sjómanns í sjávarháska sem veit að öll von um björgun er úti. Aftur og aftur braut hann þrúgandi þögnina með neyðarópi sínu: Líf, Líf, Líf! Hún skynjaði allt svo undarlega þar sem hún lá undir steinveggnum. Það var eins og tíminn stæði í stað. Allt var svo hljótt og hreyfingarlaust í kringum hana. Hún vissi ekki hve lengi hún hafði legiö þarna. Hún vissi ekki hvort liðu klukkustundir eöa mínútur. Hún gat einhvern veginn ekki greint það. Kuldinn var ekki eins mikill og áður. Henni leið allt að því vel. Það var bara verst að hún gat ekkert hreyft sig, hún var eitthvað svo máttlaus og hafði engan kraft. Kannski var hún aö deyja. Ef til vill var það best. Þá þyrfti hún aldrei aftur að hlusta á þessi ljótu orð, þá myndi pabbi hennar aldrei berja hana meir. Þá væru þau laus við hana og gætu alltaf verið full. Kannski var líka gott aö vera dáinn. Hún staðnæmdist í hugsunum sínu. Þaö var þetta hljóð, hún heyrði það alltaf óma öðru hverju í fjarska. Þaö var eins og einhver væri að kalla á hana. Hún leit upp en sá ekkert nema hvíta móðu. Samt heyrði hún það hljóma áfram. Þá sá hún skyndilega manneskju í þokumóðunni fyrir framan sig. Hún stóð þarna ljóslifandi fyrir framan hana. Það var langamma hennar. Hún var meö útbreiddan faöminn og brosti kærleiksríku brosi til hennar. Hún trúði ekki sínum eigin augum. Gleðitilfinning gagntók hana og sér til mikillar undrunar fann hún að hendur hennar og fætur hreyfðust og hún varð öll svo létt og lipur. Hún stóð upp án minnstu fyrirhafnar og fann ekki vitund fyrir kulda lengur. Og þá tók hún eftir því að snjórinn var farinn og öðru enn einkennilegra, hún var ekki lengur í borginni heldur í garðinum hennar langömmu. Og þarna stóö gamla konan fyrir framan hana, jafnblíðleg og góð á svipinn sem fyrr og beið eftir að fá að taka hana í faðminn. Líf hljóp eða allt að því sveif, fannst henni, í fang hennar og vafði hana örmum. Henni leiö óvenjulega en samt undursamlega vel... Hann vissi það þó að hann gæti ekki trúað því. Hann fann það innra með sér, það særði hann eins og hnífsstunga. Hún var ekki lengur Líf var ekki lengur. Líf var dáin. Samt hélt hann áfram aö hrópa yfir sof- andi borgina sem var í þann mund að vakna þennan jóladagsmorgun langt í norðri þar sem jólin eru hvít: Líf, Líf, Líf! 45. tbl. Vtkan 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.