Vikan


Vikan - 20.12.1984, Síða 33

Vikan - 20.12.1984, Síða 33
Erika Vignial, framkvæmdastjóri almannatengsla í Evrópu, var VIKUNNAR hægri hönd í þessari heim- sókn. var mjög góð starfsfólkinu og þekkt fyrir það enda áttu margir í bransan- um sér þann draum að kynnast henni. Síðan hún dó hefur engin komið fram sem er neitt í líkingu við hana. Hún var fyrst á ferðinni með augnháralit í hylki, svonefndan maskara, og keppinautarnir urðu óð- ir af öfund. Einkaleyfið á þeirri upp- finningu var tryggt í fimm ár og fram að þeim tíma hreinlega átti Helena Rubinstein markaðinn. Það sama má segja um raka- kremið. Sú staðreynd að Kleópatra baðaði sig í asnamjólk var löngu kunn en um aldir lét enginn sér til hugar koma að nota hugmyndina eða þar til Helena Rubinstein fór að nota hana í kremin sín. Og þá var komið á markaðinn fyrsta rakakrem- ið. Að kynnast þessari konu voru í raun forréttindi. Það var alltaf nóg að gerast í kringum hana og hún var mikill vinnuþjarkur. Morgunverður og sendibréf voru óaðskiljanlegur þáttur í tilveru hennar og einkaritar- ans því það var ætíð hennar siður að ljúka þeim þætti í rúminu áður en hún fór á fætur og þá var ég alltaf til staðar að skrá niður það sem gera þurfti síðar um daginn. Hún hafði stórkostlegt minni — á allt nema nöfn, átti kannski til að segja: „Skrif- aðu sonarsyni mínum, þessum sem . . ” Og svo kom lýsingin á öllu sem viðkom þessum afkomanda hennar, að undanskildu nafninu. Fjölskyldan var henni mikils virði og það urðu vonbrigði þegar enginn hafði áhuga á að leggja fyrir sig störf tengd fyrirtækinu. En samt hafði Helena Rubinstein ákveðið í huga að virða lífsskoðanir annarra þótt hún stæði föst á sínum eigin. Heyrðu annars, ekki skrifa þetta um sonarsoninn. Það lýsir henni vel en eru samt ýkjur.” Sylvia Behdjet er ákaflega frönsk að sjá þegar komið er inn í samtal, talar með höndunum, eiginlega öllum líkamanum. Það líður að lokum þessa samtals okkar, komið að því að yfirgefa veitingahúsið sem er einkar franskt líka og miðja vegu milli núverandi fotsetahallar og aðal- stöðva Helenu Rubinstein. Þegar Eriku Vignial og Sylviu Behdjet er þökkuð samveran bætir þessi fyrrver- andi samferðakona einnar ríkustu konu heims við: ,,Líklega varð ég ekkert rík af þessu starfi mínu og auðgaðist ekki á því eins og margir aðrir sem færðu sér í nyt gjafmildi húsmóður sinnar. Þó em perlumar, sem ég ber núna um hálsinn, frá henni, hún vildi allt- af gefa mér eitthvað og bað sífellt um að ég gæfi í skyn hvað ég vildi. Alls kyns skartgripir hafa ekki freistað mín og því dróst að hún fengi svar. Einn daginn var hún svo að hand- leika þessar perlur og spurði mig hvort mér þættu þær fallegar. Það varð nú að viðurkennast að perlurnar teldust augnayndi, stílhreinar og fagrar, og þar með var þessi perlu- festi orðin mín eign. Núna eru þessar perlur mér dýrmætur minja- gripur um stórkostlega og umfram allt mannlega konu. ’ ’ 45. tbl. Vikan 33

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.