Vikan - 20.02.1986, Blaðsíða 12
KONUNGLEG
ILLINDI
Játvarður VIII Englandskonungur afsalaði sér
krúnunni árið 1936 til að kvænast konunni sem
hann elskaði, Wallis Simpson, Saga þeirra er án efa
ein frægasta ástarsaga aldarinnar, Á sínum tíma
olli samband Wallis og Játvarðar og afleiðing þess
ýmist hrifningu eða hneykslan. Þeir rómantískari
máttu vart vatni halda yfir hugprýði konungsins og
tryggð við sína elskuðu. En fyrir siðavanda og
íhaldssama konungssinna og ekki síst kóngafólkið
sjálft var þetta hreinasta skelfmg. Aldrei fyrr hafði
neitt svo óviðurkvæmilegt átt sér stað. Kóngar og
prinsar urðu oft og iðulega ástfangnir af konum af
borgaralegum ættum en þeir létu sér nægja að halda
við þær á laun.
Wallis Simpson var tvífráskilin bandarísk kona.
Hún var hávaxin, dökkhærð, fríð sýnum og afar
glæsileg. Hún var greind, metnaðargjörn og aufúsu-
gestur alls staðar í samkvæmum fína fólksins austan
hafsog vestan.
Eftir að Játvarður og Wallis voru gefin saman
fékk hann titilinn hertoginn af Windsor. Þau hjón
voru með öllu útilokuð frá hirðinni í Englandi. Sú
sem átti stærstan þátt í því að frysta hertogahjónin
úti var Elísabet, núverandi drottningarmóðir. Elísa-
bet var hertogaynja af Jórvík (York) og var gift
Georg hertoga, bróður Játvarðar, þegar samband
þeirra Wallis hófst. Eftir að Játvarður afsalaði sér
völdum varð Georg Jórvíkurhertogi Georg VI Eng-
landskonungur og Elísabet kona hans drottning.
Elísabet gat aldrei fyrirgefið Wallis að hún skyldi
verða til þess að Georg neyddist til að taka við
Svilkonurnar við útför Játvarðar hertoga af
Windsor 1972.
embætti konungs en því voru bæði hann og Elísabet
með öllu óviðbúin.
Það hefur ætíð andað köldu milli svilkvennanna.
Elísabet af Jórvík var hæglát, siðavönd og konung-
holl. Hún var hneyksluð og reið vegna atferlis Ját-
varðar og dauðhrædd við að taka að sér skyldurnar
sem konungsembættinu fylgja. Wallis hélt því fram
að Elísabet væri bara afbrýðisöm vegna þess að hún
hefði sjálf viljað giftast Játvarði. Hún átti það oft
til að skemmta gestum með því að hafa eftir Elísa-
betu sem hún kallaði „hallærislegu hertogafrúna".
Georg VI og Elisabet drottning urðu mjög ástsæl
meðal þegna sinna og Játvarður og Wallis hættu
að skyggja á þau. En þegar Georg VI lést fyrir aldur
fram árið 1952 kenndi Elísabet álaginu af konung-
dóminum um að hafa flýtt dauða hans og á að hafa
kallað Wallis „konuna sem drap manninn minn“.
Þegar Wallis hitti drottningarmóðurina í fyrsta sinn
í þrjátíu ár, í samkvæmi sem ráðgjafar Elísabetar
II drottningar höfðu ráðlagt, neitaði hún að hneigja
sig fyrir drottningarmóðurinni.
Þegar Játvarður af Windsor lést árið 1972 fylgdu
báðar konurnar honum til grafar og stóðu hlið við
hlið. Svo var látið líta út sem allt væri fallið í Ijúfa
löð en svo var þó alls ekki í reynd. Elísabet drottn-
ingarmóðir hefur sagt að eftir því sem aldurinn
færðist yfir hana hafi hún orðið umburðarlyndari
og sér þyki það í raun og veru miður.
12 Vikan8. tbl.