Alþýðublaðið - 01.03.1923, Síða 1
1923
I
Fimtudaginn i. marz.
48. tölublað. •
Baneflce kvöld.
Spánskar nætur.
Vegna fjölda áskorana frá hinum og þessum háttvirtum borg-
urum þessa bæjar leikum við Spánskar nætur í allra sfðasta
sinn og ekki oitar föstudag 2. marz kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir í Iðnó kl. 3—7 í dag og allan daginn á
morgun. Leikendur.
@ HHHHHHHHHHH
Kirkjuhljómleikar
verða endurteknir föstudagskvöld
kl. 8V2.
Prógram sama og áíur.
Aðgöngumiðar á 2 kr. fást í bókaverzl. ísafoldar og Eymundsens.
HHHHHHHHHHH HHHHHB3HHHHH
Frá Alþingl.
í gær voru til 1. umræðu í
efri deild frumvörp Jónasar Jóns-
sonar um verðlaun fyrir útfluttan
gráðaost 'og um íþróttasjóð
Reykjavikur. Var hinu fyrra
vísað til fjárveitinganefndar, en
hinu síðara til fjárhagsnefndar.
í neðri deild var fyrst á dag-
skrá ein umræða um þingsálykt-
unartillögu Jóns Baldvinssouar
um verðgildi íslenzkrar krónu,
sú, er prentuð var hér í blaðinu
í gær. Gerði flutningsmaður ítar-
lega grein fyrir þeim illu af-
leiðingum, sem það hefir í íör
með sér fyrir aíkoruu allrar al-
þýðu, ef gengi peninga þjóðar-
ianar er lágt. Einnig spurðist
hann fyrir um, hvað stjórnin
hefði gert tii að afsfýra lækkun
krónunnar, og mælti að lokum
með því, að tillagan væri sam-
þykt. Fjármálaráðherra svaraði
fyrstur af hálfu stjórnarinnar og
ræddi mjög um orsakir til gengis-
breytinga, en ekki varð vel ljóst
af ræðu hans, að stjórnin hefði
látið máiið verulega til sín taka
Gunnar Sigurðsson talaði hátt,
en ekki gat sá, er þetta ritar,
áttað sig á hans máli. Jón Þor-
lákssou lýsti genginu írá auð-
valdlegu afturhaldssjónarmiði og
hélt því fram, að lágt gengi
væri til ávinnings fyrir atvinnu-
vegina, þ. e. atvinnurekendur.
Hafði hann í ræðu sinni vísinda-
legar umbúðir um fávíslegt efni.
Jakob Möller var ekki síður auð-
valdlegur í skoðunum sínum, en
hin firjálsa sámkepni hjá auð-
valdinu kom fram í því, að hann
var á þveröfugri skoðuo við J. Þ.
um það, að lágt gengi væri til
bóta fyrir nokkurn. Áleit bann
það eitt hjálplegt að festa gengið
og kannaðist ekki við lögmálið
um Iramboð og eftirspurn, nieð því
að það væri hvergi skrifað. Varð
það til þe3s, að foisætisráðherra
varð að skýra það lögmál fyrir
þingheimi. Magnús Kristjánsson
deildi mjög á stjórnina út af
afskiítaleysi hennar í málinu og
andmælti kenningum J. Þ. —
Var síðan umræðu fresfað þang-
að til í dag. Leyfð var fyrir-
spurn trá Lárusi Helgasyni um
löggildingarstofuna, önuur mál,
þar á meðal gjáldeyrislánsfrumv.
Bjarna og Jak. Möllers, tekin af
dagskrá og fundi slitið.
ÍIugmannafruniTÖrp.
Þessi þingmannafrumvörp eru
komin fram: Frumvarp um breyt-
ing á lögum um vörutoll. Flutn-
ingsmaður: S. H. Kvaran. Efnið
er ný flokkun á vörunum. —
Frumvarp um breyting á lögum
um ritsíma- og talsímakerfi (lína
trá Þórshöfn til Gunnólfsvikur).
Flutningsmenn: Þorst. M, Jóns-
son og B. Hállsson. — Frum-
varp um breyting á stjórnar-
skránni. Flutningsmaður Magnús
Guðmundsson. Breytingin miðar
að því, að ráðherra sé einn og
þing annað hvert ár. •*— Frum-
varp um heimild til gjaldeyris-
eyrislántöku. Flutningsm.: Jakob
Möller og Bjarni frá Vogi. Lánið
sé alt að 4 millj. kr. og til 5 —10
ára. — Frumvarp um verðlaun
lyrir útfluttan gráðost. Flutniogs-
maður: Jónas Jónsson. Verðlaunin
veitist eftir tillögum Búnaðarfé-
lags íslands alt að 50 aur. fyrir
hvert kg., flutt út i ár, alt að
5000 kr. — Frumvarp um í-
þróttasjóð Reykjavíkur. Flutn-
ingsmaður: Jónas Jónsson. Sjóð-
urinn stofnist af 20 °/o af aðgangi
(Ffamhald á 4. síðu.)
1