Vikan - 05.02.1987, Qupperneq 15
„Það hefur hingað til aðeins verið
ákveðinn hópur fólks sem notar kóka-
ín. Það er í flestum tilvikum fólk sem
er nokkuð vel efnum búið því að verð-
ið á kókaini er hátt. Ég býst við að
verðið sé núna um tíu til tólf þúsund
krónur grammið. Ég á ekki von á því
að verðlækkunin á kókaíninu verði
eins veruleg hér og til dæmis í Noregi
þannig að eftir sem áður verði kókaín-
ið of dýrt til að það myndi samfélags-
vandamál.“
Kókaín veldur því ekki að neytand-
inn verði líkamlega háður heldur
andlega. Þess vegna eru, eins og áður
segir, þeir í meiri hættu sem eiga við
viss geðræn vandamál að stríða. En
hættan er samt sem áður fyrir hendi
hjá öllum og þær líkamlegu skemmd-
ir, sem kókaínið veldur, eru jafnógn-
vænlegar. Og þótt maður telji sig í
fullkomnu andlegu jafnvægi getur
hann samt sem áður auðveldlega orð-
ið háður efninu. Þess ber einnig að
gæta að þegar maður hefur neytt efn-
isins í einhverju magni fer það að
hafa áhrif á andlega líðan hans og
veikir andlegt þrek, jafnt siðferðisþrek
sem annað. Éiturlyíjaneytandi, sem
er langt leiddur, hugsar yfirleitt ekki
um annað en sjálfan sig. Hann stelur
þá frá vinum sínum og lýgur að þeim.
Hann gerir þá allflest til að komast
yfir eiturlyfið. Þar á meðal er þekkt
að börn og fullorðnir stundi vændi til
að afla sér fjár. Einnig er hætta á því
að neytendur fari að selja eiturlyf
(yfirleitt í litlu magni) i sama tilgangi.
Afbrot, þjófnaðir, skemmdarverk og
jafnvel morð virðast víðast hvar fylgi-
fiskar eiturlyfja.
Vænlegasta leiðin til meðferðar á
eiturlyfjasjúklingum er að minnka
smám saman eiturskammtinn. Ekki
er ráðlegt að gera það skyndilega því
fráhvarfseinkenni geta verið gífurleg.
Þeir sem hafa neytt kókaíns fá hins
vegar ekki hin líkamlegu fráhvarfsein-
kenni heldur mestmegnis andleg, til
dæmis þunglyndi, auk þess sem of-
skynjanirnar geta haldið áfram
nokkurn tíma. Þegar sá ferill er á enda
er nauðsynlegt að sjúklingurinn sé á
stofnun þar sem bæði er hægt að fylgj-
ast með heilsu hans og passa að hann
komist ekki yfir eiturefni. Jafnframt
er bráðnauðsynlegt að huga að and-
legri líðan viðkomandi. Hann verður
að fá meðferð hjá geðlækni eða sál-
fræðingi og oft er hópmeðferð
nauðsynleg þegar um fjölskyldufólk
er að ræða.
Ástæðurnar fyrir því að fólk fer að
neyta eiturlyfja eru fjölmargar. Al-
gengt er að eiturlyfjasjúklingar séu frá
heimilum þar sem miklir erfiðleikar
hafa verið, til dæmis skilnaðir, dauðs-
föll og svo framvegis. Oftast er eitur-
lyfjaneytandinn þá að reyna að flýja
raunveruleikann. Einnig er talsvert
um að ungt fólk sé að leita lífsfylling-
ar eða prófi eiturlyf eingöngu vegna
þess að því finnst það spennandi.
Yfirvöld í þeim löndum, sem mesta
framleiðslu stunda, hafa hlotið mikla
gagnrýni. Hún hefur meðal annars
verið þess efnis að þau séu of undan-
látssöm við stórframleiðendur kóka-
íns sökum þess mikla gjaldeyris sem
þeir afla. I þessum löndum þykir
neysla ýmissa eiturlyfja sjálfsagðari en
í fíestum öðrum löndum. Sjónvarps-
myndatökumenn hafa meðal annars
fest á filmu fjölskylduföður að reykja
fiknilyf yfir ungu barni og sýnir það
nokkuð vel hvaða augum íbúarnir líta
þess konar efni.
En nú hefur það gerst að yfirvöld í
Kólumbíu hafa skorið upp herör gegn
eiturlyfjasölum og framieiðendum. Á
þremur vikum í desember og janúar
voru sex hundruð manns handtekin.
Húsleit var jafnframt gerð á um þrett-
án hundruð stöðum. Sex þessara
manna, sem hafa verið handteknir,
eru grunaðir um að vera á lista yfir
mestu fikniefnasala landsins. Yfirvöld
hafa þó af einhverjum ástæðum ekki
viljað gefa upp nafn nema eins þess-
ara manna. Sá maður heitir Evaristo
Porra Adilas. Yfirvöld í Perú hafa
lýst því yfir að þau vilji einnig draga
hann fyrir dómstól.
Virgilio Barco, forseti Kólumbíu,
ákvað að hefja stríð gegn eiturlyfjun-
um eftir að blaðamaðurinn Cano var
drepinn. Hann hafði barist gegn eitur-
lyfjum með skrifum sínum.
Til að sporna við þeirri hættu, sem
eiturlyf eru, og reyna að koma algjör-
lega í veg fyrir hana þarf fræðslu. Það
þarf að fræða börn, fullorðna, kenn-
ara, lögreglu og svo framvegis. En það
er samt sem áður ekki nóg. Það þarf
að eyða vandamálinu í fæðingu. Það
þarf að stuðla að félagslegri þróun og
það þarf aðhald fyrir þá, einstaklinga
sem eru i áhættuhópum. En fyrst og
fremst þarf að koma í veg fyrir að þær
aðstæður skapist sem mynda þörf
þeirra sem leita til eiturlyfja. Fyrr er
ekki hægt að stöðva notkun þeirra
algjörlega. Sumir kunna að segja að
slíkt sé ógerningur og þar af leiðandi
verði aldrei hægt að koma algerlega í
veg fyrir að slík efni verði notuð.
Aðrir eru þeirrar skoðunar að það sé
mögulegt en til þess þurfi vægast sagt
margt að breytast, bæði hugarfar og
verknaðir.
Eln mesta hættan viö kókaínið er að menn verða andlega háðir því eftir tiltölulega skamman
tíma. Ef efnisins er neytt í einhverju magni fylgja ofskynjanir yfirleitt í kjölfarið. Þær geta verið
bæði ofheyrnir, ofsjónir og tilfinningar af öðru tagi. Sumir sjá og finna skordýr skríða yfir húð
sína.
6. TBL VIKAN 15