Vikan - 13.08.1987, Qupperneq 15
þegar það hefur unnið milljón í happdrættinu.
En tilfinningin er timabundin og grámi hvers-
dagsleikans tekur fljótlega við aftur.
Andlegt ástand einstaklingsins getur sveifl-
ast ómeðvitað milli þessara sex lægri stiga.
Fjögur næstu stig kallast æðri heimar og eru
þau varanlegri.
7. og 8. Fræðsla og innsæi eru tvö nátengd
stig: Fræðslustigið felur í sér þörf fyrir að
fræðast meira og finna ákveðinn tilgang í lífi
sinu. Innsæi er náð þegar þessari þörf hefur
verið fullnægt og einstaklingurinn fundið það
sem hann leitaði að.
9. Bodhisattva: Maðurinn leitar hreinleika og
reynir með ósérplægni að minnka þjáningar
annarra. Neikvæði þáttur þessa stigs er að
sumir geta fórnað sjálfum sér algerlega fyrir
aðra en gleymt eigin velferð.
10. Búddatign: Stig hinnar eilífu, sönnu ham-
ingju...ástand sem inniheldur fullkomið frelsi
sem einkennist af visku, hugrekki, hluttekn-
ingu og lífskrafti.
ÁSATRÚ
Heimildarmaður:
Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoði
Ásatrúarsöfnuður var stofnaður á íslandi
árið 1972. Forsvarsmenn fýrirstofnunsafnað-
arins voru Sveinbjörn Beinteinsson, núverandi
allsherjargoði, Dagur Þorleifsson, Jörmundur
Ingi. Jón frá Pálmholti og ýmsir fieiri, bæði
konur og karlar. Aðdragandinn var að þessi
hópur hafði rætt trúmálin um skeið og leiddu
samræðurnar til stofnunar safnaðarins.
í söfnuðinn eru skráðir um hundrað með-
limir en öllum er heimilt að koma á blót og
aðrar samkomur sem haldnar eru á vegum
félagsins. Engin inntökuskilyrði eru í félagið
en æskilegt er að menn mæti að minnsta kosti
einu sinni á ári til blóts. Meðlimirnir koma
alls staðar að af landinu og eru úr öllum stétt-
um þjóðfélagsins. Yfirleitt eru haldin fjögur
blót á ári, eitt á hverri árstíð. í upphafi hvers
blóts er byrjað að helga staðinn guðunum.
Það er gert með því að ganga kringum svæð-
ið og nefna Æsi. Síðan er etið, minni guðanna
drukkið og rabbað saman. Blót eru oft haldin
úti að sumri til en inni á vetrum. Ekki eru
fyrirfram ákveðnir dagar notaðir til blóta
heldur eru þau skipulögð með skömmum fyr-
irvara. Oftast er þó reynt að halda blót á
sumarsólstöðum, 21. júní.
Dýrafórnir tíðkast ekki hjá ásatrúarmönn-
um nútímans. Þeim finnst ekki við hæfi að
drepa dýr að ástæðulausu. Áður fyrr voru
dýrafórnirnar að mörgu leyti nauðsynlegar
þar sem fyrr á öldum var ekki unnt að geyma
kjöt lengi. Til að fá það ferskt þurfti að slátra
hrúti eða öðru dýri á blótstaðnum. Nú á dög-
um er þetta ekki nauðsynlegt enda segir
allsherjargoðinn að dýrafórnir yrðu ekkert
nema leikaraskapur ef þær yrðu teknar upp
hjá söfnuðinum. Jurtir eru þó notaðar í litlum
mæli til fórna hjá ásatrúarmönnum. Þær eru
þá lagðar við líkneski til heiðurs guðunum.
Sveinbjörn allsherjargoði verður var við
mikinn áhuga á félagi ásatrúarmanna á ís-
landi. Áhuginn er þó mestur meðal útlend-
inga. Þeir bæði skrifa um starfsemina og koma
til að kynna sér hana. Ásatrúin fyrirfinnst
víða um heim. Til dæmis má finna söfnuði á
borð við þann íslenska á Norðurlöndunum,
í Frakklandi, Hollandi, Belgíu, Kanada og
Bandarikjunum. Þessir hópar hafa haft mikið
samband við íslenska hópinn. Þeir byggja all-
ir trú sína á íslenskum heimildum og er sú
helsta Snorra-Edda. Erlendis hefur lítið sem
ekkert varðveist af heimildum um trúna en
fundist hafa trúarlegir gripir.
Hugmyndafræði og heimsmynd ásatrúar-
manna byggist helst á þeirri hugmynd að til
sé eitthvert óþekkt afl sem sameinar lífið allt.
Þeir hafa ekki einn ákveðinn guð sem þeir
tilbiðja og hafa nokkuð óljósar hugmyndir
um í hvaða formi þetta afl er en viðurkenna
tilvist þess. Tilgangur félagsins er meðal ann-
ars sá að reyna að ná sambandi við þetta
óþekkta afi sem þeir telja vera fyrir utan þenn-
an heim. Guðirnir úr gömlu ásatrúnni eru
ekki aðalatriði hjá félaginu enda var í ása-
trúnni fyrr á öldum mjög frjálst hvaða guði
menn tilbáðu. Æsirnir eru þó tilbeðnir að
vissu marki, eftir því sem hverjum og einum
hentar. Einnig er heimilt að tilbiðja landvætti
og aðrar máttugar verur. Samband safnaðar-
meðlima við aðra trúarhópa er mjög frjálst.
Reglur eru þó í gildi um að félagsmenn eigi
ekki að þiggja trúarlega þjónustu af prestum
annarra safnaða en greftrun þeirra er heimil
að kirkjulegum sið.
í dag er Þór vinsælasti Ásinn og á félagið
líkneski eitt mikið af honum. Meginatriðið í
trúnni er að vera í góðu sambandi við náttúr-
una. Ásatrúarmenn leggja áherslu á að vera
ábyrgir gerða sinna og hafa náttúruverndun
einnig að markmiði sínu.
Allsherjargoðinn sér urn framkvæmd
ýmissa hátíðlegra athafna. Til dæmis sér hann
um nafngiftir barna og að gefa saman hjón.
Nafngiftin fer frarn á þann hátt að allsherjar-
goðinn fer með part úr fornu kvæði sem
tengist trúarbrögðunum. Síðan er barnið vatni
ausið að gömlum sið.
Sveinbjörn hefur framkvæmt nokkuð marg-
ar giftingar. Fyrr á öldum virðist giftingin
ekki hafa verið sérstök trúarathöfn. Þá var
gerður sérstakur samningur milli fjölskyldna
brúðhjónanna en þegar gengið hafði verið frá
festum var haldin brúðkaupsveisla sem virðist
hafa verið hugsuð sem trúaratriði og stað-
festing giftingarinnar. Ásatrúarmenn okkar
tíma hafa aðlagað giftingarathöfnina breytt-
um tímum. Vígslan fer fram með því að
Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoöi.
allsherjargoði spyr hjónaefnin hvort þau vilji
ganga að eiga hvort annað, gerir þeim grein
fyrir skyldum hjúskaparins og fær staðfestingu
svaramanna á að vígslan hafi farið fram.
Hann fer einnig með forn kvæði við athöfn-
ina, til dæmis úr Völuspá eða Hávamálum.
Eftir vígsluna geta hjónin farið með kvæði ef
þau hafa áhuga á.
Tekjur safnaðarins eru mjög litlar. í raun
hefur hann engar fastar tekjur aðrar en þau
gjöld sem renna frá safnaðarmeðlimum gegn-
um skattakerfi ríkisins. Önnur gjöld greiða
menn ekki til félagsins. Öllum er þó frjálst
að greiða meira ef áhugi er á. Félagið er skipu-
lagt á þann hátt að níu manna stjórn sér um
öll helstu mál sem upp koma. Stjórnarmenn-
irnir kallast goðar. Þeir sjá til dæmis um
undirbúning blóta. Allsherjargoði er í forsvari
fyrir félaginu og sér hann um framkvæmdir
einstakra helgiathafna. Ekki er landinu þó
skipt niður í goðorð, eins og tíðkaðist áður
fyrr, heldur er landið allt eitt goðorð undir
stjórn goðanna níu. Störf goðanna eru ólaun-
uð.
33. TBL VIKAN 15