Vikan - 13.08.1987, Qupperneq 42
Draumar
BLÓÐ OG GRÖFTUR
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi fyrir langalöngu draum sem
ég hef alltaf verið dálítið smeyk við og langar
til að fá einhverja skýringu á þótt seint
sé.
Þannig er mál með vexti að mér fannst ég
koma í ókunnugt hús og þar var dökkt gólf
og mér fannst gólfið blautt og ég verða að
vaða vatnið en þegar ég gáði betur að fannst
mér að vatnið væri í rauninni blóð, en það
sást ekki vegna þess hve gólfið var dökkt.
Hins vegar sá ég það fljótlega á skónum mín-
um.
Ég varð hrædd við þetta og var að hugsa
um hvaðan allt þetta blóð kæmi. Húsið var
stórt og blóðið hlýtur að hafa verið margir
lítrar. Mér fannst ég vita að þetta væri manna-
blóð og það hvarflaði aldrei að mér að um
dýrablóð væri að ræða. Svo fór ég út úr hús-
inu án þess að vita nokkurn tíma hvaðan allt
þetta blóð kom.
Næst fannst mér ég komin upp í stóran turn
og sá yfir óbyggða akra, græna svo langt sem
augað eygði. Mér fannst ég vera að leita
að einhverju en vissi ekki hverju. Svo fannst
mér ég vera með einhvers konar kýli og úr
því vall gröftur, alveg ótrúlega mikill,
en samt fann ég ekkert til. Það blæddi ekk-
ert.
Ég bið þig að birta ekki þær upplýsingar sem
ég læt fylgja til upplýsingar en vonast eftir
ráðningu á þessum draumi.
Takk fyrir.
S.D.
Druumur þessi bendir til erfiðleika og veik-
inda á lífsleiðinni en þar sem hann er gamall
eru líkur á að þau séu að mestu um garð
gengin. Eftir það kemur tímabil mikillar
ábyrgðar og álags ogþú munt standa þig með
sóma í þeim eríiðu verkefnum sem þín bíða,
ef marka má drauminn.
Það gæti átt við það sem þú talar um í eftir-
mála en þú hlýturað kannast við þá erftðleika
eða veikindi sem á undan eru gengin.
HESTAR A FLEYGIFERÐ
Kæri draumráðandi.
í nótt dreymdi mig draum þar sem allt var
á fleygiferð og hann var mjög ruglingslegur
en áhrifamikill. Mér fannst ég vera stödd í
miðri hringiðu hesta og þeir voru allavega á
litinn, stórir eins og útlendir hestar og rykið
þyrlaðist undan fótum þeirra. Ég hafði ekki
hugmynd um hvað ég var að gera þarna og
var ekkert hrædd, en það hefði ég verið í raun-
veruleikanum. Hestarnir fóru ekkert burtu af
þessu svæði heldur hentust bara um á staðnum
þangað til einhver maður kom. Þá tóku þeir
á rás, allir í sömu átt, að fjalli einu og mér
fannst þeir einmitt eiga að gera það.
Núna langar mig að vita hvað þetta merk-
ir. Viltu ráða drauminn fyrir mig og senda
mér ráðninguna eða birta hana i dálknum
þínum?
Með þökk fyrir birtinguna, bless, bless.
Hanna
Það er best að taka það strax fram að
draumráðandi sendir aldrei ráðningar heim
eða ræður drauma sem ekki má birta. Rúðn-
ing á einum draumi getur verið öðrum til
upplýsingar.
Þessidraumur bendir til viðburða íástamál-
um þínum, sennilega dálítilla sviptinga en
einnig mikillar ánægju. Festa mun smátt og
smátt komast á en þú mátt vara þig á því að
fara ekki of geyst í þessum efnum.
STRÁKUR
ÚTIISJOPPU
Hæ, draumráðandi!
Mig dreymdi í fyrrinótt að strákur, sem ég
er hrifin af, X, og vinur hans, Z, væru úti í
sjoppu fyrir neðan blokkina sem ég bý í og
þeir voru að stríða afgreiðslustúlkunni (en
venjulega er það karlmaður sem afgreiðir
þarna). Þeir voru að hlæja og létu illa og
þegar ég kom inn fóru þeir að stríða mér en
hættu því svo og X tók utan um mig og kall-
aði mig elskuna sína.
B
Þessi draumur táknar sennilega ekki neitt
nema að þú sért skotin í stráknum og þú skalt
bara vera ánægð með að svo er því drauma-
táknin eru ekki fyrir neinu sérlega góðu og
alls ekki fyrir sambandi ykkar stráksins. En
þar sem ætla má að draumurinn sé ekki tákn-
rænn þarftu litlar áhyggjur að hafa og getur
haldið áfram að spá ístrákinn eins ogþú vilt.
HRINGUR SEM
PASSAR EKKI
Kæri drauniráðandi.
Viltu ráða fyrir mig þennan draum?
Mér fannst giftingarhringurinn minn vera
orðinn of þröngur og ég var að hugsa um
hvort ég þyrfti að fara til gullsmiðs til að láta
víkka hann. Hann meiddi mig ekki en draum-
urinn var svo skýr að ég fór að athuga hvort
hringurinn væri ennþá passlegur þegar ég
vaknaði.
Með þökk fyrir birtinguna.
Lauga
Draumur þessi bendir til þess að þér fínnist
hreinlega eitthvaðþrengja aðþérílijónaband-
inu og þú viljir gjarnan brjótast úr viðjum
vanans. Þú ættir að skoða hug þinn vel áður
en þú ákveður hvort þér fír.nst eitthvað til í
þessu.
42 VIKAN 33. TBL