Vikan - 20.08.1987, Síða 4
Vikan
Jón R. Ragnarsson, islands-
meistari í rallakstri árið 1987, er
forsíðuefni og í Vikuviðtalinu.
Jón er vanur kraftmeiri bílum en
þeim sem hann stýrir á myndinni
sem helgi skj. friðjónsson Ijós-
myndari tók. í viðtalinu er hann
í fimmta gír.
ÚTGEFANDI: Frjáls fjölmiðlun hf.
RITSTJÖRI: Þórunn Gestsdóttir.
BLAÐAMENN: Guðrún Alfreðs-
dóttir, Jóna Björk Guðnadóttir,
Jóhanna Margrét Einarsdóttir, Sig-
ríður Steinbjörnsdóttir, Sigrún Ása
Markúsdóttir.
LJÓSMYNDARAR: helgi skj. frið-
jónsson, Valdís Óskarsdóttir.
ÚTLITSTEIKNARI:
Hilmar Karlsson.
HANDRIT OG PRÓFARKIR:
Guðrún Svava Bjarnadóttir, Hildur
Gunnlaugsdóttir.
RITSTJÓRN ÞVERHOLTI 11,
SÍMI (91) 2 70 22.
AUGLÝSINGASTJÓRI: Geir R.
AnHpr<?pn
AFGREIÐSLA OG DREIFING:
Þverholti 11, sími (91) 2 70 22.
PÓSTFANG RITSTJÓRNAR,
AUGLÝSINGA OG DREIFINGAR:
Pósthólf 5380,125 Reykjavík. Verð
í lausasölu: 150 kr. Áskriftarverð:
500 kr. á mánuði, 1500 kr. fyrir 13
tölublöð ársfjórðungslega eða
3000 krónur fyrir 26 blöð hálfsárs-
lega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram.
Gjalddagar nóvember, febrúar, maí
og ágúst. Áskrift í Reykjavík og
f Kópavogi greiðist mánaðarlega.
34. tbl. 49. árgangur. 20.-26. ágúst 1987. Verð 150 krónur.
RÖDD RITSTJÓRNAR I í ÞESSARI VIKU
Vinnumál
„Myndin verður æðisleg ef ég
dæja'na fyrst og tóna svo," sagði
annar Ijósmyndari Vikunnar um
daginn. Hann dæjaði og tónaði
og myndin varð æðisleg. Ein-
hverjir á vinnustaðnum voru með
á nótunum, vissu um hvað hann
var að tala þegar hann lýsti
vinnuaðferðum sínum með þess-
um orðum, en ekki allir. Þannig
er það með marga vinnustaði að
menn tala sértungum. Það getur
tekið tíma að átta sig á þeim sér-
tungum eða því vinnumáli sem
þrífst í hverjum hópi. Einu sinni
tilheyrði ég hópi flugliða. Þar var
rætt um keiteringu, kokkpitt,
manúal, link, teikoff, transit,
flabbsa, svo lítið sýnishorn sé
gefið. Síðar blandaði ég mér um
tíma í hóp útvarpsmanna. Þar var
tjúnað, feidað og mækinn og
nagragræjurnar stilltar.
Stundum sit ég stjórnarfundi á
sjúkrahúsi. Þar tala menn um
súperkandídata, ambúlansa og
akútmál. Hér á Vikunni slöggum
við blaðamennirnir greinarnar
okkar, loggum okkur inn á tölv-
urnar og út aftur. Og allt efni
blaðsins er leiáterað.
Prentararnir dúbla, nota pós
eða neg, of mikinn eða lítinn
farva, skanna myndirnar, kópera
og skjóta út spöltunum. Stund-
um nær maður ekki að fókusera
á réttu myndina.
Rallkappinn Jón R. Ragnars-
son, sem er í rallviðtali nú,
nóterar fyrir keppnir. í hans hópi
hafa menn enn eitt dæmi um
„vinnumál".
Vikan og tilveran fjallar um
öngstræti merkingar orða. Öng-
strætin eru krókótt í vinnuhópum
þar sem er dæjað og tónað.
ESG"*1
6
Holiday Inn er nýjasta hótelið á
Islandi og Vikan tekur upp þráðinn
þar sem frá var horfið á síðasta ári
og kynnir þetta glæsilega hótel.
10
Ástin fer sínar eigin leiðiryfir
landamæri og úthöf. Rættervið
nokkra Islendinga og erlenda maka
þeirra.
18
Nafn Vikunnar er brosandi ungur
maðurfrá Útgáfufélaginu Bros.
Hann heitir Haraldur og er Krist-
jánsson.
22
I kvikmyndaþætti erfjallað um
Superman IV, nýjustu kvikmynd-
ina um ofurmennið sem gerir
ekkert minna en að bjarga mann-
kyninu.
24
Italska fyrirtækið Benetton erfyrir-
bæri í heimi viðskiptanna sem
margirlíta til. Benettonsystkinin
fjögur hafa orðið vel bjargálna,
þökk sé hugvjti þeirra og dugnaði.
26
Nýr þáttur um bíla hefur hér göngu
sína. Bílaþátturinn verður í Vikunni
öðru hverju, mest tvisvar í mánuði.
Umsjá með bílaþættinum hefur
Úlfar Hauksson á Akureyrj.
29
Sigríður Steinbjörnsdóttir blaða-
maður viðrar hugmyndir sínar um
tungumálið í tilveruþætti Vikunnar.
4 VIKAN 34. TBL