Vikan - 20.08.1987, Side 5
I NÆSTU VIKU
30
Sjón, heyrn og snerting skipta
miklu í mannlegum samskiptum
en hvaða tilfinning er sterkust?
Hvernig upplifum við atburði og
orð?
32
Jón Ragnarsson, rallökumaður og
íslandsmeistari í faginu, er í Viku-
viðtalinu. Hann fer hratt yfir að
vanda.
40
Myndasögur í litum eru á sínum
staðátveimursíðum.
46
Samantha Fox byrjaði sem módel
og komst oft á siðu þrjú í Sun. Hún
gerir það gott í poppbransanum
en býr ennþá heima hjá pabba og
mömmu.
Áfram er haldið við heklið og nú
er hægt að byrja á dúk eða rúm-
teppi.
52
Smásagaeftir Helga Má Barðason
sem var í viðtali í síðustu Viku.
Sagan af strokumanninum af
Kleppi og systur Rikku rugluðu
gleymist ekki.
57
Vikan í pílagrímsferð í Graceland
eða Glæsivöllum, fyrrum bústað
rokkkóngsins Elvis Presley. Um
þessar mundir eru tíu ár liðin frá
dauða hans.
K-RJSTÍN ÖMARSDÖTTIR rithöfundur verður í
næsta Vikuviðtali. Kristín 'gaf nýlega út Ijóðabókina
í húsinu okkar er þoka og fyrir tveimur árum vann
hún leikritasamkeppni Þjóðleikhússins. Einþáttungur
hennar, Draumar á hvolfi, var sýndur á Litla sviði
Þjóðleikhússins síðastliðinn vetur. Um Ijóðið segir
Kristín: - Ljóðið er sjálfstætt og svo mikil frekja í
eðli sínu, þó oftast sé litið á það sem eitthvað lítið
og snoturt, að það lætur ekki troða á sér eða má sig
út. Ljóðið er einfarinn sem smýgur alltaf inn í bak-
garða, húsasund og inn um gluggarifurnar hversu
stórvaxið sem það er. -
AKUREYRARBÆR á 1 25 ára afmæli 29. ágúst og
það verða hátíðahöld þar á bæ. Við útbúum einn
góðan afmælispistil frá Akureyri í máli og myndum
í næstu Viku.
^ÓRÐUR frá Dagverðará á Snæfellsnesi er lands-
oekkt refaskytta. Fyrir mörgum árum brá hann búi á
oesinu, fluttist suður og síðar til Akureyrar en á
overju sumri hugar hann að Jöklinum og stundar
/eiðiskap í heimahögunum. Blaðamaður og Ijós-
myndari Vikunnar hittu Þórð refaskyttu og lífskúnstn-
ar á Snæfellsnesi og árangur af því stefnumóti birtist
í næstu Viku.
GÖMUL HÚS í HAFNARFIRÐI. Eitt fallegasta bæj-
arstæði landsins er við Hafnarfjörð. í hrauninu við
fjörðinn kúra mörg falleg gömul hús sem dyttað
hefur verið að og nostrað við. Nokkur húsanna voru
mynduð á sólbjörtum sumardegi.
34. TBL VIKAN 5