Vikan


Vikan - 20.08.1987, Blaðsíða 12

Vikan - 20.08.1987, Blaðsíða 12
Maria Priscilla Zanoria og Kjartan Emilsson kynntust á Flórida fyrir níu árum. Hjónin ásamt dætrum sínum, Rögnu og Þórhildi Snædisi. Kuldinn vav verstur Það gerðist á Flórida í Bandaríkjunum árið 1978 þegar hann var þar í námi og hún í sum- arfríi. Hún er frá Filippseyjum og heitir Maria Priscilla Zanoria og hann er íslenskur og heit- ir Kjartan Emilsson. Þar kynntust þau til að byrja með en síðan fór hvort til síns heima- lands. Þau héldu sambandinu við með bréfa- skriftum en um tveimur árum seinna „auðnaðist mér að komast til Filippseyja", eins og Kjartan orðar það. „Þar kynntumst við betur og nokkrum mánuðum seinna tókst mér að fá hana til að koma hingað upp,“ segir Kjartan. En fannst Priscillu erfitt að koma hingað og setjast að? „Ja, það var erfitt og ekki erfitt. Ég þekkti landið ekki og það er allt öðruvísi hér heldur en á Filippseyjum en fólkið var allt svo gott þannig að mér fannst það ekki svo erfitt. Eig- inlega það eina sem mér fannst erfitt var kuldinn. Ég kom hingað í desember og það var hræðilega kalt og mér fannst erfitt að venjast þessum kulda.“ En hvernig fannst Priscillu íslenskan; var þetta ekki hálfgert hrognamál fyrir hana? „Jú, en flestir sem ég þekki tala ensku og töluðu við mig ensku til að byrja með en svo fór ég á námskeið í einn vetur í íslensku. Mig langaði svo mikið til að tala íslenskuna þann- ig að fjölskyldan ákvað að tala bara við mig íslensku svo að ég yrði að læra hana. Jæja, þau töluðu bara við mig íslensku og ég skildi ekki orð en þau þýddu síðan jafnóðum yfir á ensku þannig að þetta síaðist smám saman inn í mig.“ Hvað um hjónabönd milli einstaklinga af ólíku þjóðerni? Halda þau Kjartan og Prisc- illa að það gangi erfiðlegar í svoleiðis hjóna- böndum heldur en hjá hjónum af sama þjóðerni? „Nei, það er ekki endilega erfiðara. Það kostar að visu dálitlar tilslakanir á mörgum sviðum, eins og til dæmis í mataræði hjá okk- ur. Við erum vön svo ólíkum mat þannig að við verðum að finna einhvern meðalveg." Var eitthvert vandamál að velja landið til að búa í eða var það alveg sjálfgefið að búa hér á Islandi? „Nei, það var ekkert vandamál. Mér var alveg sama og vildi í rauninni vera hér. Mér liður vel hérna og stelpunum líka þannig að þetta er fint,“ segir Priscilla. En hvað finnst Kjartani? „Ég gæti alveg hugsað mér að búa á Filipps- eyjum ef stjórnmálaástandið og efnahagsmál- in breyttust eitthvað. Það er svo mikið vandræðaástand þar núna en ef þetta lagast einhvern tima þá er alveg eins sennilegt að við flytjum út, allavega til að prófa.“ Kjartan og Priscilla eiga tvær dætur, þær Rögnu, sem er 7 ára, og Þórhildi Snædísi sem er 4 ára. Tala þær bara íslensku eða hefur þeim eitthvað verið kennt í filippseysku? „Nei, þær kunna ekkert í filippseysku. Það eru svo margar mállýskur á Filippseyjum að flestir tala ensku svo að við höfum bara kennt þeim íslensku." En hvernig tóku foreldrar þeirra Kjartans og Priscillu því að þau ætluðu að giftast? „Það kom þeim vissulega nokkuð á óvart, raunar þónokkuð mikið, en þau tóku því samt vel,“ segir Kjartan. Foreldrar Priscillu tóku því líka vel en vissu ekki alveg hvar ísland var en „þau treysta honum alveg", segir Pris- cilla hlæjandi. Priscilla starfar sem verkfræðingur og lærði það fag úti á Filippseyjum. Hvernig er að starfa sem verkfræðingur hér? „Það er mjög gott en þegar ég kom hingað fyrst var prófið mitt ekki tekið gilt þannig að ég þurfti að vera einn vetur í háskólanum til að mega starfa. En þetta gengur allt vel, við erum alltaf sammála, ég og Kjartan, þannig að þetta gengur allt erfiðleikalaust." 12 VIKAN 34. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.