Vikan - 20.08.1987, Qupperneq 14
Búdda er sáttur við ísland
Þau kynntust með svolítið dæmigerðum
hætti, þau Súsanna Ósk Westlund og Steven
Kavanagh, eða Búdda eins og allir kalla hann.
Þau kynntust nefnilega á bar á Spáni. Þau
voru þar bæði í sumarfríi, hann frá írlandi
og hún frá íslandi. Sumarfríið nægði ekki og
svo fór sem fór.
Þetta gerðist sumarið 1981 og hélt áfram
með bréfaskriftum og heimsóknum og að lok-
um sambúð og giftingu. Þau giftu sig 1986
og hafa því verið gift í eitt ár.
Og hvernig fannst Búdda að setjast að á
íslandi, voru það mikil viðbrigði?
„Nei, það voru ekki mikil viðbrigði því að
íslendingar og írar eiga margt sameiginlegt
og eru líkir að vissu leyti. Til að mynda er
ýmiss konar hjátrú, eins og trú á álfa og huldu-
fólk, líka til á írlandi. Svo eru atvinnuhættir
ekki ósvipaðir, mikið um landbúnað og út-
gerð, þannig að það var ekki erfitt að aðlagast
íslenskum háttum. Það eina sem mér fannst
erfitt að sætta mig við var að hafa ekki bjór
og að drekka sterkt vín í staðinn. Eg er ekki
vanur því frá írlandi. Þar sest fólk á krá, jafn-
vel á hverju kvöldi, og fær sér eina og eina
ölkrús. Börnin eru tekin með, það er hluti af
uppeldinu og þykir eins eðlilegt og að fara
með þau í heimsókn til vina. Drykkjuvenjur
íslendinga eru líka svolítið öðruvísi en Ira.
íslendingar verða svo drukknir þegar þeir
drekka en írar aftur á móti drekka oft en lít-
ið.“
Búdda er enn írskur ríkisborgari en hefur
hugsað sér að sækja um íslenskan ríkisborg-
ararétt seinna, með þeim skilyrðum þó að
hann geti haldið þeim irska líka. Það er leyfi-
legt á írlandi en hann á eftir að fá úr því
skorið hvort það sé hægt hér á íslandi. Sé svo
ekki ætlar hann að halda írska ríkisborgara-
réttinum.
Nú er Búdda kaþólskur og Súsanna lúters-
trúar. Samkvæmt hvorri trúnni giftu þau sig?
„Við giftum okkur samkvæmt kaþólskri
trú,“ segir Súsanna. Þó svo hafi verið þurfti
hún ekki að taka kaþólska trú. Þau giftu sig
á Irlandi og Súsanna segir það hafa verið
ógleymanlegt:
„Það voru 250 manns í brúðkaupinu og
haldin alveg meiri háttar veisla á eftir því að
á Irlandi er brúðkaup ein mesta athöfn í lífi
hvers manns. Maður er að gifta sig fyrir lífs-
tíð og þú skilur ekkert svo glatt við makann
þótt eitthvað komi upp á. Mér finnst það
svolítill galli við íslendinga að ef eitthvað bját-
-fil Ǥ,
\
A ,i
M KJl
Hann er írskur og hún íslensk. Súsanna Ósk Westlund og Steven Kavanagh með litlu dóttur-
ina, Söru Rós.
ar á þá er rokið upp og skilið! Þeir gefa sér
aldrei neinn tíma til að ræða málin og þróa
sambandið.“
Þetta voru þau bæði sammála um og sögðu
að þessi gífurlega yfirvinna, sem Islendingar
ynnu, væri oft orsökin. Það var nokkuð sem
Búdda þekkti ekki þegar hann kom hingað
til lands, að vinna yfirvinnu. Á írlandi vinnur
fólk bara sína 8 tíma á dag og ekkert umfram
það og nær samt sem áður endum saman en
á íslandi vinnur fólk oft 12-14 tíma á sólar-
hring og endar ná jafnvel ekki saman. Einnig
fannst honum það skrýtið að á Islandi vinna
oftast bæði hjónin utan heimilis því að á ír-
landi er það aðeins annar aðilinn sem vinnur
úti.
Þau sögðu að það hefði ekki verið erfitt
að velja í hvoru landinu þau ættu að setjast
að. Á írlandi væri gifurlegt atvinnuleysi en
aftur á móti næg vinna hér. Þannig væri sjálf-
gefið að setjast að hér. Hér væru miklu fleiri
tækifæri og fólk væri miklu fljótara að vinna
sig upp heldur en á írlandi.
En hvernig tóku foreldrar þeirra því að þau
ætluðu að giftast?
Súsanna segir að sínir foreldrar hafi tekið
því mjög vel, kannski líka vegna þess að
móðir hennar er erlend, en Búdda segir aftur
á móti að hans foreldrar hafi haldið að hann
væri klikkaður:
„Bæði foreldrar mínir og allir mínir vinir
héldu að ég væri orðinn ruglaður; að fara til
íslands! Það væri bara einhver klettur úti í
hafi með eskimóum og snjóhúsum!“ Og enn
eru sumir vinir hans alveg gallharðir á því að
ísland sé bara klettur í hafinu einhvers staðar
á hjara veraldar, jafnvel Grænland hljóti að
vera nær meginlandinu. Síðan er það bjórleys-
ið. Þetta bjórbann ýtir kannski undir þessa
trú að ísland hljóti að vera eitthvert afdala-
svæði og Búdda segir að vinir hans veigri sér
við að koma hingað vegna þess.
Súsanna og Búdda eiga eina dóttur, Söru
Rós, sem er 6 mánaða. Hvort málið ætla þau
að tala við hana, ensku eða íslensku?
Súsanna segir að þau ætli að kenna henni
bæði tungumálin; það hafi hjálpað sér mikið
að læra bæði ensku og íslensku þegar hún var
lítil. Svo tali þau saman á ensku, þar sem
Búdda talar ekki íslensku, þannig að Sara
lærir enskuna seinna meir.
Búdda er sáttur við ísland og að búa hér
en hann skýtur því að í lokin að eiginlega það
eina sem hann er ekki sáttur við séu jólin.
Hjá honum eru jólin á sjálfan jóladag en ekki
á aðfangadag eins og hér er svo hann fær
alltaf svolitla heimþrá á jólunum.
14 VIKAN 34. TBL