Vikan - 20.08.1987, Blaðsíða 19
NAFN VIKUNNAR: HARALDUR KRISTJÁNSSON
Brosandí bækur
í júní á þessu ári leit dagsins ljós ný
bókaútgáfa-Útgáfufélagið Bros. Nafn-
ið eitt vekur strax athygli, bæði líflegt
og skemmtilegt. Fyrsta verkefni bóka-
útgáfunnar var að setja á markað
söngbókina Tökum lagið. Auglýsing var
send í nánast hvert einasta hús. Þjóðin
tók eftir bókinni svo um munaði og
gekk sala hennar mjög vel. Mönnum
er þó eflaust minnisstæðast skemmtilegt
uppátæki Brosmanna þegar þeir stóðu
ásamt útvarpsstöðvunum að fjársöfnun
fyrir Landgræðslu ríkisins um miðjan
júlí síðastliðinn.
Haraldur Kristjánsson vann að því
að markaðssetja söngbókina. Jafnframt
er hann einn af sex eigendum fyrirtækis-
ins.
- Hverjir standa að bókaútgáfunni,
eru rithöfundar eða skáld meðal eigend-
anna?
„Eru ekki allir skáld? Enginn nóbels-
höfundur er samt á meðal okkar. Það
má segja að við séum ungt fólk á upp-
leið - eða vonandi ekki á niðurleið, ha,
ha. Útgáfustarfsemi er sameiginlegt
áhugamál okkar.“
En forvitnumst ofurlítið um Harald,
manninn sem átti hugmyndina að fjár-
söfnuninni fyrir flugi áburðarflugvélar-
innar, TF Páls Sveinssonar.
Haraldur er 26 ára gamall og hefur
starfað mikið við útgáfumál, þá helst
hjá ýmsum félagasamtökum. Hann rit-
stýrði Iðnnemanum - málgagni iðn-
nemasamtakanna, starfaði við útgáfu
ýmissa blaða fyrir unga sjálfstæðismenn
og var auglýsingastjóri tímaritsins
Áfanga. Hann hefur komið víðar við
og rak til dæmis eigið fyrirtæki sem
byggingaverktaki. Starf Haralds hjá
bókaútgáfunni er ekki fastmótað.
Markaðssetning söngbókarinnar var
hans verkefni en hvort hann vinnur að
markaðssetningu næstu bóka er ekki
ákveðið. Haraldur hefur þvi ekki fast
starf hjá fyrirtækinu heldur starfar nú
sjálfstætt að markaðsmálum.
- En hvernig kviknaði hugmyndin að
söfnuninni fyrir Landgræðsluna?
„Þessi hugmynd kom eiginlega upp
af sjálfu sér. Þannig var að við hjá bóka-
útgáfunni höfðum fylgst með fréttum í
íjölmiðlum um uppfok á landinu. Menn
voru mjög leiðir yfir þessum gróður-
skemmdum en gátu lítið gert til hjálpar.
Við settum söngbókina á markað og
vorum viss um að hún næði til fólksins.
Það kom hins vegar á daginn að bókin
fékk miklu betri viðtökur en við höfðum
þorað að vona. Af því tilefni ákvað
bókaútgáfan að standa fyrir fram-
kvæmd fjársöfnunar til styrktar Land-
græðslu ríkisins. Þarna gátum við
sameinað tvö góð málefni. Annars vegar
vorum við í forsvari fyrir stuðningi við
gott málefni en um leið þökkuðum við
þjóðinni fyrir þær góðu móttökur sem
fyrsta bókin okkar fékk því uppblástur
og gróðureyðing eru víst vandamál sem
varða alla þjóðina.“
- Hvernig gekk að hrinda hugmynd-
inni í framkvæmd?
„Það gekk mjög vel. Hugmyndin fékk
góðar undirtektir hjá öllum aðilum.
Forráðamenn útvarpsstöðvanna voru
mjög hressir og tóku strax vel í þetta.
Það var ekkert mál að fá þá til að taka
höndum saman. Að sama skapi var
ekki erfitt að finna dagskrárgerðarmenn
sem treystu sér til að syngja opinber-
lega.
Fjársöfnunin átti fyrst og fremst að
höfða til fyrirtækja og þau brugðust
skjótt við. Strax eftir söng dagskrárgerð-
armannanna í útvarpinu tóku gjafir að
streyma til Landgræðslu ríkisins. Við-
brögðin voru svo góð að daginn eftir
héldu áheit áfram að streyma inn.“
- Er annað álíka uppátæki i bígerð?
„Það er alltaf eitthvað sniðugt á
prjónunum hjá okkur. Það er bara ekki
timabært að tala um það núna. Margar
sniðugar hugmyndir fæðast, sumar eru
framkvæmdar en aðrar ekki. Þær sem
eru framkvæmdar og heppnast þykja
góðar en hinar, sem ekki eru fram-
kvæmdar, deyja náttúrlega í fæðingu og
þykja þess vegna ekki góðar. Galdurinn
er sá að sannfæra þá sem stjórna fram-
kvæmdunum, útvarpsmennina og
Landgræðsluna í þessu tilviki.
Hvað gerist næst er ekki gott að segja
til um. Við erum með margar bækur sem
fyrirhugað er að gefa út en hver sú
næsta verður er enn ekki ákveðið. Það
eina sem ég veit er að þetta verða bros-
andi bækur því að okkar hlutverk er
fyrst og fremst að skemmta fólki. Mark-
miðið er að gefa út skemmtilegar, góðar
og fræðandi bækur á viðráðanlegu
verði. Bókaútgáfan hlaut nafnið Bros
vegna þess að við ætlum að færa gleði
og yl inn i hjörtu landsmanna.“
- Er Bros öðruvísi en önnur útgáfu-
fyrirtæki?
„Já, fyrst og fremst er fyrirtækið byggt
upp á öðruvísi markaðssetningu en tíðk-
ast hefur. Það kemur náttúrlega til af
því að tveir markaðsfræðingar eru með-
al eigenda fyrirtækisins. Við leggjum
áherslu á bein tengsl við neytandann
með þeim hætti að auglýsing er send
beint inn á heimili hans án nokkurra
milliliða, svo sem íjölmiðla. Þessi aðferð
í markaðssetningu skilaði sér mjög vel
þegar söngbókin kom út.“
- Hver er ástæðan fyrir því að þið
stofnuðuð bókaútgáfu? Er hún kannski
byggð á goðsögninni um bókaþjóðina
miklu?
„Vissulega þjáist helmingur þjóðar-
innar og vel það af einhverri þörf fyrir
tjáningu í gegnum ritað mál og les síðan
kynstrin öll. Okkar fyrirtæki er samt
sem áður ekki rekið á þeim grundvelli
að bókaþjóðin kaupi allar bækur. í raun
gerum við okkur ekki sérlega háar hug-
myndir um okkur sjálf sem menningar-
vita. En það má vel vera að sum
útgáfufyrirtæki byggi rekstur sinn á
þeirri hugmynd. Við leggjum hins vegar
áherslu á að skemmta fólki - reynum
að finna þörfina og uppfyllum hana síð-
an.“
Mynd: Valdís Úskarsdóttir
Viðtal: Jóna Björk Guðnadóttir
34. TBL VIKAN 19