Vikan - 20.08.1987, Síða 23
★ ★ ★ ★
orðið laust við hættu af kjarn-
orkustyrjöld.
Það gleðjast samt ekki allir
af sömu ástæðu. Hinn ill-
ræmdi Lex Luthor gleðst
vegna þess að nú sér hann
tækifæri lífs síns ef honum
tekst að útbúa kjarnorku-
sprengju og bjóða hana jil
sölu. Superman kemst á
snoðir um ætlun Luthors og
hefst nú mikill hasar og reyn-
ir Luthor að klekkja á
Superman með ýmsum ráð-
um. . .
Fyrir utan þá Christopher
Reeve og Gene Hackman eru
margir úrvalsleikarar kallaðir
til. Margot Kidder leikur
Lois Lane að venju. Mariel
Hemingway og Jackie Coop-
er leika stór hlutverk. Þá
leikur hingað til óþekktur
leikari, Mark Pillow, kjarn-
orkumanninn sem Lex
Luthor setur til höfuðs Super-
man.
Leikstjóri er SidneyJ.
Furie, margreyndur leikstjóri
spennumynda. Superman IV
var frumsýnd í London síðast
í júlí og verður tekin til sýn-
ingar í Háskólabiói í haust.
WDODYAUÆN MICHXEL CVINE
MIAEMIHOW CARIUEFISHER
R\RR\R\ 11ERSIIEY UOYD iNOLAN
MXLREFJN OSULLINAIN DVMEL STERN
MAX MXN S\ DOVV DLVNNE VVIEST
iöUtLLIfi.QWÍiSH. fffí— SEM L WS., ÖfiÖQPNJM.,
WM1U6.DWUSH JOfU fÖGHHDHir SÖQDfWIDI
HANNAH AND HER SISTERS
Leikstjóri: Woody Allen.
Aöalleikarar: Mia Farrow, Woody Allen og Micbael Caine.
Sýningartími: 85 mín. - Útgefandi: Skífan.
Hannah and Her Sisters er tvímælalaust ein af allra bestu myndum snill-
ingsins Woody Allen og hlaut afbragðsdóma og góða aðsókn á siðasta
ári. Aðalpersóna myndarinnarer Hannah sem Mia Farrow leikur. Hún
lifir, að því er virðist, í hamingjusömu hjónabandi en ytri aðstæður segja
ekki allt. Eiginmaður hennar lítur systur hennar hýru auga og íjölskyldu-
vandamálin eru mörg. Myndin byrjar í fjölskylduboði og eru þar ýmsar
hræringar í gangi. Endar myndin tveimur árum seinna og einnig í fjölskyldu-
boði og þótt búið sé að leysa sum vandamálin er langt frá því að áhorfandinn
trúi á þá yfirborðskenndu hamingju sem þar er að finna. Efni þetta setur
Woody Allen fram á snilldarlegan hátt, blandar alvöru söguþráðarins sinni
einstöku og mannlegu kímni er gerir Hannah and Her Sisters að snilldar-
verki.
LATINO ★ ★ ★
Leikstjóri: Haskell Wexler.
Aðalleikarar: Robert Beltran, Annette Cardona og Tony Plana.
Sýningartími: 104 mín. - Útgefandi: Steinar.
Latino fjallar um bandarískan hermann er fenginn er til að þjálfa kontra-
skæruliða til innrásar í Nicargua. Þrátt fyrir reynslu af stríðsrekstri sannfær-
ist atvinnuhermaðurinn um að kontraskæruliðarnir, sem flestir eru fyrrver-
andi liðsmann Somoza, séu ekki réttu mennirnir til að taka við landinu.
Það er engin furða að lítið skuli hafa farið fyrir Latino. Hún stingur sem
sagt algjörlega í stúf við stefnu Bandaríkjastjórnar. Leikstjóri er Haskell
Wexler sem á að baki glæsilegan feril sem kvikmyndatökumaður. Hann á
einnig sem leikstjóri Medium Cool einhverja áhrifamestu kvikmynd um það
upplausnarástand er ríkti í Bandaríkjunum á seinni hluta sjöunda áratugar-
ins. Wexler fer eigin leiðir og aldrei þær auðveldustu. Því er hann minna
þekktur en myndir hans gefa til kynna. Latino er áhrifamikil þótt handritið
sé ekki gallalaust. Þetta er mynd sem snertir áhorfandann.
CRIME story
■ IHFY DOm COML MUCH BETIER THAN THIS...
a SJumn.
i
A* if
Wi
U f
c
HNWS lARiM ■ ANIIIONr OtHSON WUMM SMIIMMr.ll XHKI *
MHUWNt riUMI JONfHBO-SltVl ItfMl ■ BU CAMrWU »!;l tUIlffl
SllWtN IXWG lUWlMlMWIEH
.... ttOMXHOMKMI MISBVt IKWNUII :.*||
CRIME STORY ★★
Leikstjóri: Abel Ferrara.
Aðalleikarar: Dennis Farina, Anthony Denison og William Smitrovich.
Sýningartími: 94 mín. - Útgefandi: Skífan.
Crime Story segir frá flokki lögreglumanna er gera ekkert annað en elt-
ast við hættulega glæpamenn. Yfirmaður flokksins er Mike Torello. Hann
notar árangursríkar en miskunnarlausar aðferðir til að hafa uppi á glæpa-
mönnum - aðferðir er yfírmönnum hans fellur ekki alltof vel við. Um leið
og myndin lýsir starfi lögreglumannanna iýsir hún uppgangi eins glæpa-
manns sem hikar ekki við að drepa vini sína til að ná settu marki. Crime
Story er gerð fyrir sjónvarp og af þess konar mynd að vera er hún óvenju
bitastæð og spennandi. Það eru ekki þekktir leikarar í aðalhlutverkum en
eftirminnilegur er Dennis Farina í hlutverki Torello sem lifir fyrir starf sitt
og gerir sér varla grein fyrir hvað skeður í hinum raunverulega heimi. Crime
Story er upplög afþreying eina kvöldstund fyrir þá sem vilja spennandi
kvikmyndir.
GALLAGHERS TRAVELS ★
Leikstjóri: Michael Caulfield.
Aðalleikarar: Ivar KantSj Joanne Samuel og Stuart Campbell.
Sýningartími: 90 mín. — Utgefandi: Bergvík sf.
Þótt Ástralar séu meðal allra fremstu kvikmyndaþjóða og hafi sent frá
sér hverja úrvalsmyndina eftir aðra á undanförnum árum er ekki allt gott
sem þaðan kemur eins og Gallaghers Travel er vitni um. Fjallar myndin
um blaðamann og ljósmyndara sem eiga að hafa uppi á þýskum glæpa-
manni sem hefur það að atvinnu að smygla sjaldgæfum dýrum, er dýragarðar
sækjast eftir, frá Astralíu til Evrópu. Ekki gengur það áfallalaust hjá Gallag-
her og Sally, en svo nefnast þau. Þau ferðast í smábíl þúsundir kílómetra í
leit að smyglaranum. Það verður samt smyglarinn sem hefur uppi á þeim
fyrst en þrátt fyrir reynsluleysi sleppa skötuhjúin með skrekkinn og snúa á
smyglarann. Reynt er að krydda ófrumlegan söguþráð með gamansemi en
mistekst eins og allt annað. Ekki bæta leikararnir úr. Sérstaklega er Joanne
Samuel í hlutverki Sally leiðinleg leikkona.
34. TBL VI KAN 23