Vikan - 20.08.1987, Síða 24
BENETTON
BLÓMSTRAR
Luciano Benetton hefur hug á að komast
í heimsmetabók Guinness. Allar líkur eru á
að honum muni takast það. Hið blómlega
fyrirtæki hans, Benetton, er óðum að leggja
undir sig heiminn. Gárungar henda gaman
að og kalla Benetton, McDonalds tiskuheims-
ins. Það er hreint ekki svo fjarri lagi. Benett-
onbúðirnar eru á hverju götuhorni um allan
heim. Fyrirtækið státar af 4000 verslunum í
60 löndum. Benetton hefur opnað verslun
daglega síðastliðin þrjú ár og hefur jafnvel
tekist að brjótast í gegnum járntjaldið og er
nú með verslanir í Búdapest, Prag og Belgrad.
Sem stendur er Luciano Benetton á kafi í
samningaviðræðum við Rússa en hvorki geng-
ur né rekur. Honum líkar ekki skrifstofubákn
Rússanna og segir samskipti ganga erfiðlega
vegna skipulagsleysis í sovéska tiskuheimin-
um.
En hver er sagan á bak við velgengni Benett-
ons? Jú, það er saga „litla mannsins" sem
kemur frá fátækri, ítalskri fjölskyldu, hætti í
skóla 10 ára gamall og byggði upp það undra-
fyrirtæki sem Benetton er nú.
Systkinin fjögur
Benettonsystkimn fjógur, Luciano, Guil-
iana, Carlo og Gilberto, ólust upp við fátækt.
Er Guiliana lauk skólaskyldu hóf hún störf í
prjónaverksmiðju. Hún hafði gaman af að
prjóna og þegar vinnu var lokið sat hún fram
eftir nóttu og hannaði sínar eigin peysur. Á
þessu tímabili vann Luciano sem afgreiðslu-
maður i fataverslun og fengu þau systkinin
þá hugdettu að reyna að selja peysurnar í
þeirri verslun. Og viti menn! Peysurnar runnu
út eins og heitar lummur. Fljótlega tókst þeim
að skrapa saman peninga og keyptu nokkrar
notaðar prjónavélar. Síðan hófust þau handa
við framleiðslu á hinum fallegu, sérstöku peys-
um sem enn í dag eru eitt helsta aðalsmerki
Benettons. I upphafi notuðust þau einungis
við fjóra liti: grænt, blátt, gult og rautt.
Benettonævintýrið var hafið og árið 1968
opnuðu systkinin sína fyrstu verslun í Belluno
í ítölsku Ölpunum.
Tæplega 20 árum síðar er Benetton orðið
stærsta fataframleiðslufyrirtæki Evrópu. Á
síðasta ári framleiddi Benetton 20 milljón ull-
arflíkur, 10 milljón bómullarflíkur og 10
milljón denimflíkur. Samtals er framleiðslan
40 milljón stykki af fatnaði og seljast því að
meðaltali um 10.000 flíkur í hverri verslun.
Velgengni Benettons er ekki einungis byggð
á hátísku heldur einnig á hátækni tölvunnar.
Sjálfur kallar Luciano framleiðslu sína „iðn-
aðartísku". Þessi nafngift minnir frekar á
japanska bílaframleiðslu en ítalskan tískufatn-
að. En þrátt fyrir að Benetton framleiði
svokallaða iðnaðartísku er hér um að ræða
vandaðan fatnað úr góðu hráefni. Það er
stefna fyrirtækisins að bjóða upp á þægileg
föt sem eru hönnuð samkvæmt tísku dagsins
í dag ásamt örlítilli klassík. Fötin eru líka á
viðráðanlegu verði.
Benetton hefur þrjú vörumerki: 012 er
barnalínan, Benetton er fyrir 14-25 ára ald-
urshópinn og Sisley er meira hátískumerki og
Höfuðstöðvar
Benettonfyr-
irtækisins eru
í Vilia Minelli,
sautjándu
aldar bygg-
ingu.
24 VI KAN 34. TBL