Vikan


Vikan - 20.08.1987, Blaðsíða 31

Vikan - 20.08.1987, Blaðsíða 31
’ 19. - Mér líður vel að hafa blóm í kringum mig. 20. - Ég get ekki horft aðgerðalaus á skakka mynd uppi á vegg. HLJÓÐRÆN BOÐSKIPTI 1. - Þegar ég á frí nýt ég þess að hlusta á tónlist. 2. - Ég endurtek sama nafnið upphátt þurfi ég að leggja það á minnið. 3. - Ég hef gaman af að taka þátt í umræðum. 4. - Ég hef gaman af að hlusta á viðtöl í útvarpi eða sjónvarpi. 5. - Þegar ég er á ferðalögum kýs ég að gista á rólegum stöðum. 6. - Ég nota ákveðin lykilorð til að leggja upplýsingar á minnið. 7. - Ég er góður áheyrandi. 8. - Ég hlusta frekar á útvarpsfréttirnar heldur en að lesa dagblöðin. 9. - Ég tala oft upphátt við sjálfan mig. 10. - Öll framandi hljóð hafa truflandi áhrif á mig. 11. - Ég ber kennsl á fólk eftir því hvernig rödd þess hljómar. 12. - Ég safna hljómplötum. 13. - Þegar ég læri les ég mjög gjarna upphátt. 14. - Ég vil heldur halda fyrirlestur en að skrifa um viðfangsefnið. 15. - Ég hef gaman af að fara á tónleika. 16. - Það kemur fyrir að mér er sagt að ég tali of mikið. 17. - Ef ég tapa áttum og villist þá tek ég næsta mann tali og spyr til vegar. 18. - Ég hef þann ávana að tala við hundinn minn. 19. - Ég tel á fingrum mér. 20. - Það er kækur hjá mér að stappa með öðrum fætinum þegar ég hugsa. BOÐSKIPTI BYGGÐ Á SNERTINGU 1. - Ég nýt þess að gera líkamsæfingar. 2. - Með bundið fyrir augun get ég greint á milli hliðstæðra hluta. 3. - Útivera á mjög vel við mig. 4. - Ég er mjög handlaginn. 5. - Ég hef tilhneigingu til að fitna. 6. - Stundum kemur fyrir mig að ég kaupi föt einungis vegna þess að þau eru þægileg. 7. - Ég er mikill dýravinur og hef ánægju af að klappa þeim. 8. - Þegar ég tala við fólk þarf ég helst að snerta það. 9. - Mér fmnst notalegt að faðma lítil börn. 10. - Það reyndist auðvelt fyrir mig að læra að vélrita. 11. - Ég vil frekar stunda íþróttir en að horfa á kappleiki. 12. - Ég fer í heita sturtu að loknum starfsdegi. 13. - Mér finnst þægilegt að láta nudda mig. 14. - Fólk hefur orð á því hversu vel ég dansa. 15. - Ég æfi mig reglulega. 16. - Þegar ég vakna á morgnana þá teygi ég oftast nær vel úr mér. 17. - Handaband segir mér heilmikið um þann sem ég heilsa. 18. - Ég er hneigður fyrir föndur og er laginn í höndunum. 19. - Ég tala yfirleitt í lágum hljóðum. 20. - Líkami minn er lurkum laminn og uppspenntur eftir „erfiðan" dag. „SJÚKDÓMSGREININGIN“ Taktu saman fjölda jákvæðra svara í hverjum flokki fyrir sig. Sá flokkur, sem fær flest stigin í þessari könnun, sýnir hvaða skilningar- vit þú hefur næmast. Ef samræmi er á milli þeirra máttu hrósa happi og vera ánægður. Það sem átt er við er að þá notar þú þessi þrjú kerfi jöfnum höndum þannig að skynsviðin starfa saman ogjafnvægi ríkir. En ef svo vill til að þú reynist ekki hafa neitt stig í einum flokkn- um þá er sá þáttur vanþróaðastur. Ef þú þarft að hafa samskipti við marga, ert til dæmis kennari, þarfnast þú sérstakrar þjálfunar. Það er mikilvægt að þú gerir þér grein fyrir hvernig þú getur þjálfað ákveð- in skilningarvit og öðlast þannig næmari skilning á þeim er þú umgengst. 34. TBL VIKAN 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.