Vikan


Vikan - 20.08.1987, Blaðsíða 34

Vikan - 20.08.1987, Blaðsíða 34
„Vinnan fellur að rallakstrinum eins og flís við rass,“ segir hann. „Þar sér maður alla nýjustu bílana og fær gott tækifæri til þess að fylgjast með þvi sem er að gerast í þessum bílamálum." Jón er ekki bifvélavirki eins og margir kynnu að halda. Hann er menntaður rakari og starf- aði að iðn sinni um 10 ára skeið. 1970 söðlaði hann um og setti á stofn Bílaryðvömina ásamt kunningja sínum, Bimi Jóhannessyni. Hins veg- ar hefur hann alla tíð haft mikinn áhuga á bílum og ferillinn byijaði snemma. „Ég er alinn upp í Stórholtinu í Reykjavík," segir hann, „en var öll sumur austur í Öræfum í sveit. Þar fór ég að keyra traktor 7 eða 8 ára gamall og bíl um fermingu.“ Löngu síðar var farið að keppa í góðakstri eða ökuleikni, eins og það er nú kallað, og Jón og bróðir hans, Ómar sjónvarpsmaður, spreyttu sig á slíkum akstri. „Svo var það árið 1975,“ segir Jón, „að fyrsta rallkeppnin var haldin hér á landi. Við Omar höfðum ekki hugmynd um út á hvað þetta rall gekk, vissum bara að þetta hafði eitthvað með bíla að gera og ákváðum að taka þátt í þessu.“ Ekki var frammistaða þeirra kappa sérlega glæsileg þama í fyrsta rallinu; þeir lentu í 42. sæti af 56. Þessi keppni var sú eina sem haldin var 1975 en ári síðar var keppt tvisvar. Þar skipuðu þeir bræður sér í toppslaginn og þá hófst óslitin sigurganga þeirra sem flestum er kunn. Jón keppti með Ómari bróður sínum í tíu ár en 1985 meiddist Ómar á hálsi með þeim afleiðingum að hann varð að hætta keppni. „Þetta var í annað sinn sem hann meiddist í hálsliðnum," segir Jón. „Fimm ámm áður hafði hann dottið ofan af sviðinu á Kirkjubæj- arklaustri en jafnaði sig fljótlega aftur. En á einni af sínum síðustu skemmtunum í Broad- way þama árið 1985 velti hann sér í sveitaballs- laginu sínu og meiddist í þessum sama hálslið. Síðan þá hefur hann bara ekki getað keyrt." Slysið átti sér stað í miðri ralltöm og nú vom góð ráð dýr. „Ég þurfti að taka alveg fyrirvara- laust við stýrinu," segir Jón, „og hafði um sólarhring til þess að finna mér nýjan aðstoðar- mann.“ Jón leitaði ekki langt yfir skammt, fékk son sinn, Rúnar, þá fimmtán ára gamlan, til þess að setjast við hlið sér. „Þessari ákvörðun sé ég ekki eftir," segir Jón, „því hingað til hefur þetta gengið alveg lygilega vel hjá okkur feðgunum." Og þetta em orð að sönnu. Þeir feðgar urðu íslandsmeistarar í fyrra og hafa nú þegar tryggt sér titilinn í ár. „Það er óvenjulegt að ná svona snemma i titilinn," segir Jón. „í fyrra náðist hann ekki fyrr en í seinustu keppninni en í ár hefur lánið leikið við okkur og þó enn séu eftir tvær keppn- ir emm við gulltryggðir." Jón er sjóaður rallkappi og eflaust þykir fæst- m: 3 M ’ m ’• Ji T v Spr '• \ Æ \ Kampakátir bræður fagna sigri i Ljómaraiiinu 1984. um kynlegt að hann skuli standa sig með þessum ágætum. Hins vegar vill það oft gleymast að á ámnum með Ómari var Jón bróður sínum fyrst og fremst til aðstoðar og sat sjaldnast við stýr- ið. En hvað gerði hann? „Ég sýslaði nú í ýmsu,“ svarar Jón. „Ég sá um að reikna út tímann frá þvi við lögðum af stað og þangað til við komum í mark, hafði leiðina alveg á hreinu, vissi hvaða vegi við áttum að aka og passaði að við kæmum inn á tíma- stöðvamar á réttum tíma. Ásamt þessu fylgdist ég með ástandi bílsins og púrraði Ómar áfram. Þama á fyrstu ámm keppninnar," heldur Jón áfram, „var keppnin þannig að menn fengu vissan tíma til þess að fara ákveðnar leiðir. Þá var það kúnst að passa að koma bílnum í mark á núllinu. Ef við komum inn of fljótt eða of seint reiknuðust á okkur refsistig." Nú er öldin önnur, rallið hefur breyst og sömuleiðis hlutverk aðstoðarmannsins. Rall- keppnin skiptist í tvennt: akstur á almennum leiðum og svokölluðum sérleiðum. Sérleiðimar em lokaðar almennri umferð og þar gildir að keyra sem hraðast. Menn fá sérstök refsistig og þeir sem ná bestum tíma á leiðinni fá fæst stig. Að sögn Jóns er starf aðstoðarmannsins mun erfiðara við þessar kringumstæður. „Stuttu fyrir keppni keyrum við sérleiðim- ar,“ segir Jón, „og skrifum þær niður hjá okkur. Við ökum á venjulegum bílum því það er bann- að að keyra rallbíl á sérleiðum síðustu tvær „Bílar eins og Escort- inn minn slaga hátt upp í bestu bílana á mark- aðinum. “ vikumar fyrir keppni. Þetta verk okkar er á fagmáli kallað nótering og verður að vera mjög nákvæmt til þess að menn geti búist við góðum árangri í keppni." Þegar akstur á sérleiðum hefst kemur í ljós hvort nóteringin hefur nú verið fullnægjandi. „Þegar mér er startað inn á sérleið," segir Jón, „þá þylur aðstoðarmaðurinn upp allar beygjur, allar hæðir og öll börð sem framundan em. Þetta gerir hann á 100 metra millibili. Ég er á 120 til 150 kílómetra hraða og öll mín ein- beitni fer í að halda stjóm á bílnum. Ég verð að treysta fullkomlega á leiðsögn aðstoðar- mannsins. Það liggur því í augum uppi að hann verður að staðsetja leiðina af snerpu, öryggi og nákvæmni. Hann má ekki gera minnstu mistök því smávegis yfirsjón getur leitt til þess að við lendum utan vegar og þá emm við jafnvel úr leik.“ Rallkeppnimar em mislangar. Þær stuttu standa að meðaltali yfir í tvo daga. Fyrri daginn er keppt í 4 til 5 tíma en þann síðari hefst keppni eldsnemma að morgni og það er keppt framundir kvöldmat. Yfirleitt leggja kappamir um 300 til 500 kílómetra að baki í þessum rall- keppnum. Svo em nokkrar keppnir mun lengri og erfiðari, til að mynda Ljómarallið sem er 1300-1500 kílómetrar, þar af 600-700 kílómetra 34 VIKAN 34. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.