Vikan


Vikan - 20.08.1987, Side 39

Vikan - 20.08.1987, Side 39
Rallkappinn meö ökumann framtíðarinnar í fanginu. Þetta er yngsta skottiö, hún Brynja Björk, dótturdóttir Jóns. „Það hafa allir í fjölskyldunni áhuga á rall- akstrinum," segir Jón, „það leiðir bara af sjálfu sér þegar maður er svona mikið í þessu. Nú, Rúnar er þegar kominn á kaf i þetta, búinn að vera mér til aðstoðar í tvö ár, og Baldur hefur einnig brennandi áhuga á rallinu. I síðustu keppni var hann viðgerðarmaður, fékk að gera við dekk, tékka á bensíninu og ýmislegt fleira." _ - Sérðu þá bræður í anda taka við af ykkur Ómari sem hina ósigrandi rallbræður? „Ja, allt getur nú gerst,“ svarar Jón og bros- ir. „Hins vegar vona ég að þeir byiji ekki að hugsa um rallaksturinn fyrr en svolítið seinna. Núna finnst mér mikilvægara að þeir stefni að því að koma sér fyrir í lífinu." Jón segir að það fari feikilegur tími og kostn- aður í rallaksturinn þegar menn fá delluna ungir. Þeir verða nánast að reiða hvem einasta eyri úr eigin vasa enda eiga þeir eftir að skapa sér nafn sem veitir þeim aðgang að auglýsend- um. Af því leiðir að þessir strákar geta ekki gert neitt annað á meðan þeir eru að koma undir sig fótunum í rallinu og það telur Jón ekki æskilegt. „Ég var heppinn að hafa þó verið orðinn þrítugur þegar rallaksturinn hófst á íslandi,“ segir Jón, „búinn að koma mér upp húsi og kominn yfir helstu erfiðleika sem því fylgja. Annars veit ég ekki hvað ég hefði gert! Menn verða ekkert verri ökumenn þó þeir byiji aðeins seinna," heldur hann áfram. „Ég mæli ekki með því að þeir byiji að keyra 39 ára gamlir, líkt og ég gerði, en fram undir þrí- tugt eiga þeir mikla möguleika á að verða mjög góðir.“ - Jón, hversu lífseigir eru menn í rallakstrin- um? „Það er mjög misjafnt en ég held að það byiji að halla undan fæti hjá flestum um miðjan fimmtugsaldurinn. Maður hefur séð eldri menn við stýrið en þeir eru sjaldnast í toppbarátt- unni. Með aldrinum fer snerpan af mönnum, úthaldið verður minna og viðbragðsflýtirinn ekki jafnmikill og áður.“ Jón er sjálfur 42 ára gamall og miður fimm- tugsaldurinn nálgast óðum. Ég spyr hvort hann dragi sig bráðlega í hlé: ætlar hann að hætta á toppnum? „Þá hefði ég átt að hætta í fyrra,“ segir Jón brosandi. „Þessi árangur í ár hefur komið mér mjög á óvart og ég bjóst við miklu harðari baráttu en raun varð á. Satt best að segja hef ég ekkert hugsað út i það að hætta, hvorki á toppnum né annars staðar. Ég hef haft það fyrir sið í þessu sporti að hugsa aldrei um meira en eitt ár í einu og ætla að halda því áfram. En ég veit að einn daginn kemur að því að eitthvað innra með manni segir sem svo: Nei, Jón, nú verður þú að fara að hætta þessu, og þá bara hlýðir maður því.“ ,,Menn verða ekkert verri ökumenn þó þeir byrji aðeins seinna. “ Myndir: helgi skj. friðjónsson og fleiri 34. TBL VI KAN 39

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.