Vikan


Vikan - 20.08.1987, Side 43

Vikan - 20.08.1987, Side 43
Pósturinn AFSKIPTASEMI Halló, kæri Póstur. Ég er tólf ára og ósköp venjuleg stelpa. Ég bý heima hjá pabba og mömmu og á engin systkini. Vandamálið, sem ég ætla að leita til þín með, er að það vilja allir ráða yfir mér. Það vita allir miklu betur en ég sjálf hvað mér er fyrir bestu, hvað mér á að þykja skemmtilegt og jafnvel hvaða krakka ég á að umgangast. Ég er orðin hundleið á þessari afskiptasemi. Það gengur svo langt að ég fæ varla að velja fötin sem ég geng í því að mamma þykist alltaf sjá betur en ég hvað klæðir mig best. Vinkonur mínar stríða mér á hvað ég er konulega klædd og segja að ég sé smækkuð mynd af mömmu. Þetta er algjör- lega óþolandi. Um daginn fór ég á hár- greiðslustofu og lét klippa mig stutt, reyndar dálítið rnikið stutt, en mér fannst það flott. Þegar ég kom heim fékk mamma kast, skammaðist og reifst yfir að ég hefði eyðilagt á mér hárið. Það hefði mátt halda að ég hefði komist í hausinn á henni með skæri. Nú neit- ar hún mér um vasapeninga og lætur mig púla í heimilisverkunum til að refsa mér. Hvað get ég gert til að fá að ráða mér meira sjálf? Ég hef talað um þetta við pabba og ég held að hann sé farinn að fatta vitleysuna í þessu öllu saman en mamma vill ráðskast með mig i einu og öllu. Ein sem ekkert má. Það getur verid erfitt aá vera einbirni. Öll ást og umhyggja foreldranna beinist að einu barni og er erfitt að brjótast undan ofurvaldi þeirra án þess að valda árekstrum og jafnvel sárindum. í þínu tilfelli er stjórnsemi foreldr- anna J'ullmikil þrátt fyrir að þú sért einungis tólf ára. Þú verður að fá ráðrúm til að rakta með þér sjálfstæði og sjálfstraust. Þetta er ekki luegt nema foreldrarnir slaki örlítið á taum- haldinu og treysti þér til að velja þína eigin vini, svo ekki sé nú minnst á fatuvalió. Þú œtt- ir aó rœóa vió móður þína i rólegheitunum um þessi mál og leiða henni fyrir sjónir að þó að hún sé afar smekkleg þá hafi hennar stíll ekki unglingum. Einnig verður hún að glöggva sig á aó þú þekkir krakkana, sem þú umgengst, bet- ur en hún og ef þið eruó ósköp venjulegir krakkar œtti að vera ástœðulaust að banna þér að umgangast surna þeirra. Hvað hárgreiðsluna varóar og uppistandið i kringum hana er Ijóst aó það er ekki klippingin sjálf sem verið er að þrasa um. Mér virðist þú hafa notað hana sem sjálfstœðisyjirlýsingu sem móðir þín sœttir sig ekki vió. Hún kann aó hafa tekió af þér pening- ana til aó láta þig Jinna að þú ert háð foreldrum þinum. Taktu þessu öllu með jafnaðargeði því að mamma þín hlýtur að áitta sig á að þetta eru háljhjákátleg viðbrögð við ekki alvarlegri athöfn en einni klippingu. Það eina sem er til ráöa í þessum málum er að ræða í bróðerni um vandamálið og reyna aó komast að samkomu- lagi sem allir geta fallist á. ÁHRIF BÆTIEFNA Á LÍKAMANN Halló Póstur. Ég hef aldrei skrifað Póstinum áður og vona að þú bregðist fljótt og vel við forvitni minni. Ég er ákaflega sæl með holdafarið og ástamálin eru í góðu lagi hjá mér þannig að þú þarft ekki að velta þér upp úr þeim enda er ég efins um að þú getir nokkuð gert sem ég ræð ekki betur við sjálf. Það sem mig lang- ar að bera upp við þig eru upplýsingar um bætiefni, hvaða hlutverki hin ýmsu bætiefni gegna fyrir likamann, til dæmis hvaða bæti- efni eru fyrir bein, tennur, hár, neglur og fleira. Rósa Ekki hefur pósturinn tök á að gera bœtiefnum og áhrifum þeirra tœmandi skil. Hér fylgja þó fáeinar athugasemdir um þau sem eru algeng- ust. Pósturinn vill benda þér á að nánari upplýsingar getur þú fengið í sérverslunum sem selja heilsufæði og náttúruleg bœtiefni cða hjá lœknum og nceringarsérfrœðingum. A-vítamín er nauðsynlegt vegna vaxtar barna og unglinga, fyrir sjónina, húó og slímhimnur. Það J'mnst i lýsi, fiski, smjöri, gulrótum og grœnkáúi. B-vítamín er samheiti fyrir nokkur efni og er mikilvœgt fyrir bruna í líkamanum. Þaó á þátt í myndun rauðra blóðkorna og verndar húð og slímhimnur og hefur því áhrif á hár og negl- ur. Skortur á þessum efnum veldur lystarleysi og þreytu. B-vítamín er helst aó fmna í grófum kornmat og lifur. C-vítamín stjórnar súrefnisneyslu frumnanna. Það er mikilvœgt fyrir bandvefi, bein, tennur og æóar. C-vítamin safnast ekki upp í líkaman- um og er því nauðsynleg að neyta þess á hverjum degi. Mikið er af C-vítamíni í sítrusávöxtum, svo sem appelsinum og sítrónum. D-vítamín er nauðsynlegt fyrir bein og tenn- ur, sérstaklega á uppvaxtarárunum og við þungun. Það myndast meðal annars ef sólar- Ijósið skín á likamann. Lýsi er besta uppspretta D-vítamíns sem völ er á. E-vítamin er nauðsynlegt fyrir efnaskipti eggjahvítuefna og fósturþroska Járn er nauðsynlegt vió myndun rauðra blóð- korna og ve/dur skortur á því blóðleysi. Mikið er af járni i slátri, lifur, eggjum og kjöti. Kalk er nauðsynlegt fyrir bein og tennur. Kalkrík faða, t.d. ostur, skyr og mjólk, er mikil- vœg fyrir börn, barnshafundi konur og konur sem hafa börn á brjósti. Fosfór er byggingarefni beina ásamt kalki og hjálpar til við að brenna kolvetnum, hvitu og fitu í líkamanum. Yfrleitt fœr fólk nœgju sína af fosfór úr venjulegri, hollrifœðu. Joð er nauðsynlegt fyrir starfsemi skjald- kirtils og fast helst úr fiski og öðrum sjávaraf- uróum. Eflíkaminn er heilbrigður losar hann sig vió ofgnótt af batiefnum og steinefnum úr líkaman- um. A-vítamín í of miklum mali getur valdið eitrun, einnig D-vítamín. Undir venjulegum kringumstaðum nagir að Jólk borði fjölbreytta faðu til að J'uUnagja vítamín- og steinefnaþörf sinni. Ágatt er að taka eina teskeið af lýsi á hverjum degi, sérstaklega yfir vetrartímann. Konur þurj'a oft að taka jáirntöflur vegna blóð- leysis og konur meó börn á brjósti taka oftast inn samsettar vítamíntöflur og járn. Fólk atti ekki að taka hvort tveggja í einu, vítamín og lýsi. 34. TBL VIKAN 43

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.