Vikan - 20.08.1987, Blaðsíða 60
Hér gat kóngurínn horft á þrjá mismunandi kappleiki í einu og dottað í sófanum um leið.
Hestar kóngsa naga svörðinn á túni Glæsivalla en seppi karlinn er farinn.
skólahús á hægri hönd og kirkja fjær en
mótelgisting skammt undan.
Maðurinn á mótelinu sagði Vikunni að
kakkalakkar væru í sókn í borginni um
þessar mundir. Hafí Vikan dregið það í efa
þá hvarf allur vafi um nóttina.
Húsið Glæsivellir er ekki stórt hús eftir
ameríska draumnum og þolir illa saman-
burð við mörg skrauthýsin sem auðkýfmgar
landsins hafa reist sér með allt að fimm
hundruð herbergjum á fleiri þúsund ekrum
lands. Það er jafnýel ekki nema meðalhús
á íslenska vísu og svona eins og rúmlega
tvöföld Stöng í Þjórsárdal og tólf sinnum
minni en Seðlabankinn við Amarhól. En
það gerir ekkert til. Þetta er ekki spuming
um stærð.
Kirkjan og tónninn
Ríki Glæsivalla er heldur ekki af venjuleg-
um efnisheimi jarðar og upphefö hússins
verður ekki mæld í lengdarmetrum undir
súð. Hún kemur að utan, beint utan úr
nágrenni hússins og fólgin í þeim jarðvegi
sem umhverfis er. Elvis er áfram sjálfum
sér næstur og velur því kastalanum stað í
návist sinnar svörtu messu.
í skugga Glæsivalla em nefnilega fleiri
kirkjur fyrir svarta heldur en hvíta og þegar
Vikan situr á sunnudagsmorgni í svartri
Rokkið er klingjandi píanó og slitiim strengur
Tónlistarheimurinn skiptist bæði i lönd og
álfur og stærstu meginlöndin í heimi tóna eru
setin af hinni sígildu tónlist, eins og þeir kalla
hana. Til heiðurs henni halda öll helstu menn-
ingarríki heimsins úti bæði glæsilegum
hljómleikahöllum og margbrotnum sinfóníu-
sveitum og þykir menningarauki.
Sígild verk eru þau ein verk talin sem unn-
in voru fyrr á öldum og eftir síðustu aldamót
er almennt talað um dægurtónlist og síðar
popplög. En þá kom rokkið til sögunnar.
Rokktónlistin átti erfltt uppdráttar hjá full-
orðna fólkinu svokallaða á sjötta áratugnum
og jafnvel lengur á meðan börn og unglingar
síns tíma fíluðu hana í botn. í einfeldni sinni
náði rokkið nýju og áður óþekktu hámarki í
heimi listanna - færðist nær fólkinu en önnur
tónlist sem er kölluð sígild í dag.
Það tók rokktónlist því ekki nema þrjá
áratugi að verða sígilt tónlistarform í vitund
yngr; kynslóða. Mörg gömlu brýnin úr hópi
fyrstu rokkaranna munu því lifa þann dag
þegar tónlistin þeirra veltir ýmsum gamla
meistaranum af stalli í höllu drottningar.
Kynslóð rokksins á sjötta áratugnum hefur
nú slitið barnsskónum og er óðum að ryðja
sér til rúms í valdastofnunum þjóða heimsins.
Með vaxandi áhrifum rokkaranna í þjóðlíflnu
vex vegur rokksins að sama skapi, enda er
nú að skella ný bylgja af rokki yfir heims-
byggðina. Staðir á borð við Hart Kaffi Rokk
í Kringlunni spretta upp um heiminn en þar
er leikið rokk undir borðum allan daginn.
Týnda kynslóðin er fundin rokkandi í
Hollívúdd á kvöldin. Breiðvangur mikli í
Breiðholti bauð síðasta vetur upp á vandaða
dagskrá með rokki og nýjar útvarpsstöðvar
slást um að spila görnlu rokkplöturnar allan
sólarhringinn.
Rokkið er einföld og græskulaus tónlist.
Aheyrandinn greinir hvert hljóðfæri óma fyrir
sig og finnur að þau eru knúin af mannavöld-
um en eru ekki einn allsherjar tæknivæddur
gnýr frá vélasamstæðu með tölvuheila - fastur
taktur í rafmagnsborði.
Rokkið er klingjandi pianóhljómur af fingr-
um fram og slitinn gítarstrengur á sviði.
Trommurnar eru strengdar húðir á gjörð og
barðar áfram með harðri hendi. Og lúðrar
eru þeyttir og blásinn rámur saxófónn. En
bak við syngja gáskafullar raddir sin töfraorð
og hummað er létt í barm - einn fyrir pening-
ana og tveir fyrir sýninguna.
Rokkið er þegar fingur smella hátt og hend-
ur klappa í lófa en slett í góm og hlegið.
Sporið er stigið frá hæl upp á tá og út á hlið.
Gólfið.
Rokkarnir munu ekki fá að þagna úr þessu.
60 VIKAN 34. TBL