Vikan - 20.08.1987, Qupperneq 61
messu og horfir á negrana taka á móti
himnaríki á jörðu skilur hún sjálf hvemig
Elvis Aron fann tóninn rétta í guðspjöllin
sín. Morgunstund í Full Gospel Tabum-
akkli hjá séra A1 Green, safnaðarpresti og
fyrrum stórsöngvara, er ómaksins verð fyr-
ir alla.
Tíkin og þotan
Árlega kemur hálf milljón ferðamanna
til Glæsivalla að forvitnast um hagi hins
látna eða í pílagrímsferð eins og við. And-
spænis húsinu handan við Elvis Presley
breiðgötuna standa miklir söluskálar og
sýningarhús þar sem boðið er upp á alla
nauðsynlega fylgihluti við goðsögnina um
kónginn Elvis. Þar em líka þotur konungs-
ins og er sú stærri eins og meðalmillilanda-
flugvél Flugleiða og heitir Lísa María í
höfuðið á prinsessunni á bænum. Á fag-
máli heitir hún hins vegar Convair 880 Jet
og notaði Elvis hana einkum til að sækja
sér samlokur með hnetusmjöri í næsta fylki.
Á sjálfum Glæsivöllum er húsbúnaður
söngvarans á sínum stað: verðlaunagripir
og gullplötur, klæðnaður og spariföt jafnt
sem viðhafnarskrúði. Sérstaka athygli vakti
þó safn konungsins af lögreglumerkjum en
sjálfur Richard M. Nixon, félagi vor og
vinur, útnefndi Elvis sérstakan löggæslu-
mann á sviði fikniefna. Utan við liúsið er
kongunglegur bílafloti og mótorhjól. Hestar
naga rýran grassvörðinn og hundur meist-
arans er ekki langt undan.
í lok pílagrímsferðarinnar nemum við
staðar við lítinn heimagrafreit í garði Glæsi-
valla og drúpum höfði við leiði konungsins.
Þrátt fyrir allt hvíla þama bein af fábrotnum
dreng sem öðlaðist meiri frægð og miklu
hraðar en hann tók á móti sjálfur. Því fór
sem fór og kóngurinn kvaddi saddur líf-
daga á besta aldri. Okkur þykir öllum
vænt um hann. Og hljómplatan heldur
áfram að vera helgur dómur í tónlist heims-
ins.
í golunni blaktir fárú handan við götuna
og á hann er skrifað: Ég er stoltur Suður-
ríkjamaður. Hestamir naga áfram svörðinn
en hundurinn er farinn. Vikan heldur heim
á leið og skammt undan er áin, Miss-
issippi, móðir vatna. En þetta er allt í lagi,
mamma. Elvis um aldur og ævi. Hvíldu í
friði, vinur.
Haldið heim úr vinnunni. Endurnar á Peabodyhótelinu í Memphis marséra úr gosbrunninum
og fara upp í þakíbúðina sína i lyftunni.
Endiur í einni röð:
I viiuiuna efdr rauðum dregli
Gömul og ný hótel um víða veröld hafa
mörg hver einhver sérkenni til að laða að sér
ferðafólk. Sum eru vel í sveit sett í fögru hér-
aði og önnur eru í sögulegu umhverfi. Þá eru
víða keyptir dýrustu skemmtikraftar til að
gleðja gesti og gangandi. Svona má áfram
telja.
I miðri Memphisborg er virðulegt Peabody-
hótelið og hafa plantekruskáld Suðurríkjanna
farið um það lofsamlegum orðum. Sagt að
óshólmar Mississippimóðu byrji þar á barnum
í svipmiklum forsal við sjálfspilandi píanóið.
En það eru hvorki orð skálda né önnur
mannanna listaverk sem draga hundruð
ferðalanga á Peabodyhótelið tvisvar á dag,
ónei. Það eru ósköp venjulegar endur.
í voldugum gosbrunni i miðjurn forsainum
svamla nokkrar endur allan liðlangan daginn.
En klukkan fimm er vinnutíma þeirra lokið
eins og hjá venjulegu fólki víða í borginni.
Þá yfirgefa endurnar gosbrunn sinn og mars-
éra við glymjandi undirleik eftir rauðum dregli
inn í lyftu og upp á hótelþakið. Þar búa end-
urnar í vellystingum praktuglega og væsir
ekki um þær frekar en aðra hótelgesti. Á
morgnana fara endurnar svo aftur á stjá og
spígspora eftir dreglinum góða í vinnuna niðri
í gosbrunninum.
Með þessum óvenjulegu gönguferðum fylg-
ist múgur og margmenni á hverjum degi og
eru Peabodyendurnar fyrir löngu orðnar eitt
þekktasta kennileitið í átthagafræði borgar-
innar. Þær eru fastur liður í öllum helstu
skoðanaferðum fyrir túrhesta í Memphis.
Peabodyhótelið rekur myndarlegt andabú
til að halda við þessum göfuga ættstofni. Á
löngum ferli sínum hafa þessar ágætu endur
hlotið margvíslegan sóma og eru til dæmis
heiðursborgarar í Disneylandi og eru vel að
heiðrinum komnar.
Vikan hefur víða ratað á ferð sinni um
dagana en skrúðganga andanna á Peabody-
hótelinu í Memphis er einhver merkilegasta
uppákoman í ntinningabók hennar.
34. TBL VIKAN 61