Vikan - 19.11.1987, Qupperneq 58
LEIKARINN MARTIN SHEEN:
Börnin eru
aðalstoltið
Martin Sheen er leikari sem
flestir ættu að kannast við. í
gegnum árin hefur honum tek-
ist að öðlast virðlngu áhorf-
enda jafnt sem vinnufélaga fyr-
ir sterka túlkun á erfiðum hlut-
verkum eins og áhorfendur
Stöðvar 2 hafa fengið að kynn-
ast undanfarið, en Sheen fer
með hlutverk John F. Kennedy
í samnefndum þáttum sem
hafa verið á dagskránni undan-
farna laugardaga.
Um hlutverk sitt sem Kennedy
segir Sheen: - Þetta er erfiðasta
hlutverk sem ég hef leikið. Mér
fannst að enginn gæti skilað því
sómasamlega. Ég var hreinlega
hræddur við það. Því var eins far-
ið með John Shea sem lék Bobby
Kennedy. Þeir voru báðir hetjur
okkar og höfðu mikil áhrif á okkur.
Núorðið hefur Martin Sheen
aðeins áhuga á að vinna að hlut-
um sem honum finnast hafa
boðskap, verkefni sem hafa þjóð-
félagslegt gildi. Auðvitað leikur
hann ennþá fyrir peninga, en allt-
af þarf boðskapurinn að vera til
staðar. Persónulegur metnaður
hans sem leikara kemur í öðru
sæti. Þó honum sé boðið frábært
hlutverk tekur hann því ekki ef
verkið mætir ekki kröfum hans.
- Ekkert getur haft gildi nema
það endurspegli sannleikann,
ástandið í heiminum, segir
Sheen. - Að leika í mynd sem
hefur þjóðfélagslegt eða pólitískt
gildi veitir manni mesta fullnægju.
Sem betur fer er ég kominn í þá
aðstöðu að geta leyft mér að velja
og hafna í verkefnavali.
Sheen tók þessa afstöðu eftir
að hafa verið hætt kominn fyrir
tæpum tíu árum. Við tökurnar á
Apocalypse Now sem Francis
Ford Coppola leikstýrði fékk hann
alvarlegt hjartaáfall og við það
breyttist lífssýn hans algerlega.
-Fram að því hugsaði ég aðal-
Martin Sheen eins og áhorfendur
Stöðvar 2 kannast við hann, í
hlutverki John F. Kennedyásamt
John Shea sem leikur Robert F.
Kennedy.
lega um feril minn sem leikara,
ekki um hvað ég gæti gert fyrir
mannkynið. Eftir að hafa fundið
hve lífið er hverfult sá ég hvað
persónulegur metnaður er lítils-
gildur. Maður fær miklu meira út
úr því að gera eitthvað sem hefur
þýðingu fyrir aðra.
Hin nýja lífssýn Martins She-
ens hefur algerlega breytt lifnðar-
háttum hans. Hann er hættur að
drekka, hefur endurheimt sam-
band sitt við kaþólsku kirkjuna og
leggur óhemju mikið á sig til að
halda sér í formi. Að auki fer jafn
mikill tími hjá honum í það að
vinna sjálfboðastörf og launuð
verkefni.
Sem dæmi um það má nefna
að hann lét þær 7.6 milljónir
króna sem hann fékk í sinn hlut
fyrir að leika í Gandhi renna til
þriggja góðgerðarstofnana. Einn-
ig hefur hann leikið ókeypis í
leikritinu The Normal Heart sem
fjallar um vanda alnæmissjúkl-
inga og bíómyndinni The King of
Prussia sem framleidd var af litlu
fyrirtæki og fjallaði um tvo
kaþólska presta sem voru fang-
elsaðir á hæpnum forsendum.
Það sem veitir honum þó
mesta ánægju í dag er að fylgjast
með velgengni barnanna sinna.
Tveir synir hans, þeir Emilio Est-
evez (hið rétta nafn Martin Sheen
er Ramon Estevez) og Charlie
Sheen eru orðnir kvikmynda-
stjörnur. Emilio var búinn að leika
í mynd Coppola The Outsiders
áður en hann sló í gegn í mynd-
inni The Breakfast Club og hefur
síðan leikið í fjölda mynda auk
þess sem hann hefur leikstýrt
einni mynd (Wisdom) og skrifað
handrit fyrir aðra (That Was
Then, This Is Now). Charlie sló í
gegn í Óskarsverðlaunamyndinni
Platoon sem Oliver Stone leik-
stýrði og er nú að leika í næstu
mynd Stones, Wall Street.
Reyndar er það skemmtileg til-
viljun að feðgarnir Martin og
Charlie hafa leikið í þeim tveimur
myndum sem hafa verið hörðustu
ádeilurnar á Víetnam stríðið, Ap-
ocalypse New og Platoon.