Vikan - 14.01.1988, Blaðsíða 5
I BYRJUN VIKUNNAR
„Klárt að þeir
eru 1987 árgerð"
Nú er orðið ljóst að Subaru
bílar þeir sem lentu í flóð-
unum í Drammen í Noregi
og fluttir voru hingað fá
skráningu hér. Vegna þessa
höfðum við samband við Júl-
íus Vífll Ingvarsson fram-
kvæmdastjóra Ingvars Helga-
sonar og spurðum hann
hver yrðu viðbrögð umboðs-
ins við því.
„Það er fyrst að geta þess að
verksmiðjurnar ytra hafa boðist
til þess að senda hingað tækni-
legan sérfræðing ríkinu að
kostnaðarlausu til þess að að-
stoða Bifreiðaeftirlitið við rann-
sókn bílanna. Þetta boð hefur
staðið frá 11. desember.
„Bifreiðaeftirlitið hefur ekki
fengið svigrúm til að taka eigin
ákvarðanir í þessu máli, þær
hafa verið teknar í dómsmála-
ráðuneytinu af ráðherra og
Birni Friðfinnssyni sem hefur
viðurkennt að málið sé pólitískt
og að mikill þrýstingur hafl ver-
ið í því á ráðuneytið," sagði
Júlíus.
1 máli Júlíusar kemur fram að
það sé alveg ljóst að þeirra verk-
stæði komi ekki til með að veita
þessum bílum neina þjónustu
því með því væru þeir að taka
ábyrgð á þeim. Ennfremur hefur
umboðið sent lista með verk-
smiðjunúmerum þessara bíla til
allra bílasala á landinu svo þeir
Júlíus Vífill Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Ingvars Helga-
sonar, á skrifstofu sinni með
grein Vikunnar um flóðabílana
fyrir framan sig.
Ljósm.: Páll Kjartansson
geti upplýst kúnna sína og sagt
þeim ef um flóðabíl sé að ræða.
Nokkur vafi hefiir leikið á
hvort skrá eigi þessa bíla sem
1987 eða 1988 árgerð en Júlíus
segir klárt samkvæmt plöggum
sem þeir hafi að hér sé um 1987
árgerð að ræða og ef reynt verði
að selja þá sem 1988 árgerð
muni þeir setja lögbann á slíkt.
Vegna yfirlýsingar í Morgun-
blaðinu frá innflytjendum bíl-
anna um að umboðinu hefði
borist bílar úr sama raðnúmera-
flokki og flóðabílarnir og að
þeir hefðu verið skráðir sem
1988 árgerð sagði Júlíus það
ekki rétt, þeir hefðu enga bíla
fengið frá Noregi, úr þessari
sendingu.
Ríkið
skaðabótaskylt?
„Við höfum ráðfært okkur við
þrjá lögfræðinga vegna þessa
máls og það lítur út fýrir að
ríkissjóður geti átt von á því að
þurfa að greiða skaðabætur
vegna tjóns sem þessir bílar
lenda í ef rekja má tjónið til
flóðanna í Drammen þar sem að
Bifreiðaeftirlitið hefur rannsak-
að þessa bíla sérstaklega og sagt>
þá uppfylla öryggiskröfur."
Að lokum vildi Júlíus taka
ffam, vegna fýrri skrifa Vikunnar
um málið, að það væri rangt að
innflytjendur bílanna í Noregi
hefðu sagt að bílana mætti ekki
setja á göturnar á Norður-
löndunum utan íslands. Hið
rétta er að tryggingarfélagið
setti þessi skilyrði en innflytj-
endurnir sögðu að bílana mætti
hvergi setja á göturnar. Einnig
væri rangt að yfirlýsingar um
málið hefðu borist frá um-
dæmisstjóra fyrir N-Evrópu. Þær
tvær yfirlýsingar sem komið'
hafa væru báðar frá aðalskrifstof-
unni í Japan. -FRI.
4 VIKAN
„Hef aldrei heyrt
um ríkisábyrgð
á bílum fyrr"
„Þetta eru óneitanlega allsér-
stæðar hugmyndir. Þetta er í
fyrsta sinn sem ég heyri að nokkr-
um láti sér detta í hug að ríkið
geti orðið ábyrgt fyrir tjónum sem
einhver ákveðin tegund bíla get-
ur lent í. Ef svo er, eru trygginga-
félög náttúrlega óþörf, ekki
satt?“ segir lögmaður innflytj-
enda Subaru bflanna umdcildu,
Sigurður H. Guðjónsson hæsta-
réttarlögmaður.
Júlíus Vífill Ingvarsson, tals-
maður Subaru umboðsins, Ing-
vars Helgasonar hf., segir á öðrum
stað hér á síðunni að svo gæti far-
ið að ríkisjóður verði gerður
ábyrgur fyrir tjónum sem Subaru
bílar sem lentu í flóðinu í
Drammen í Noregi, eiga hugsan-
lega eftir að lenda í á götum hér á
landi, ef slík tjón mætti rekja til
galla í bílunum, þar sem Bifreiða-
eftirlit ríkisins hafi rannsakað bíl-
ana og gefið grænt ljós á að þeir
verði skráðir hér á landi í trássi
við óskir umboðsins og framleið-
anda bílanna. Júlíus Vífill segist
byggja þessa umsögn sína á áliti
lögfræðinga.
rjraimieM
Bókakaffi
Að Garðastræti 17, við hlið-
ina á Unuhúsi, hefúr verið
opnuð bókabúð og kaffi-
stofa, eða bókakaffi, og telst
það til nýjunga hér.
Þau sem standa að þessu eru
Helga Brekkan og Einar Guð-
jónsson en að sögn Helgu er
einnig ætlunin að þeir sem vilja
geti sýnt myndverk á kaffistof-
unni og til að byrja með verða
sýndar þar 20 koparstungur.
Kaffistofan er með ítölsku
sniði og þar er boðið upp á ex-
presso kaffi.
LJÓSM.: PÁLL KJARTANSSON
fr— M
. jgj
Þar sem Markús Öm Antonsson er orðinn liðtækur í niðurskurði
eftir mikla æfingu var hann fenginn til að sneiða tertuna þegar
verslunin var opnuð. Á myndinni skammtar hann Hinrik
Bjamasyni, forstöðumanni innkaupa- og markaðsdeildar Sjón-
varpsins, á diskinn.
Sjónvarpið opnar
myndbandaverslun
Ríkisútvarpið - Sjónvarp
opnaði verslun á jarðhæð í
húsi Sjónvarpsins að Lauga-
vegi 176 fyrir skömmu. Á
boðstólum em myndbönd
með margt af því áhugaverð-
asta sem Sjónvarpið hefur
framleitt sjálft. Þar má m.a.
nefna Stiklur Ómars Ragn-
arssonar þar sem tveir þættir
em á hverri spólu. Aldaslóð
(Leiftur úr listasögu), lista-
söguþætti Bjöms Th. Björns-
sonar, Myndir úr jarðfræði
íslands eftir Ara Trausta
Guðmundsson og Halldór
Kjartansson, Þætti um
Veðurfræði eftir Markús Á.
Einarsson og myndaflokk-
inn íslenskir myndlistar-
menn. Af þeim flokki er enn
sem komið er einungis einn
þáttur fáanlegur og er hann
um Ásgrím Jónsson málara.
Tvær íslenskar kvikmyndir
eru fáanlegar í versluninni, Land
og synir, sem margir vilja meina
að sé fýrsta íslenska „alvörukvik-
myndin“, og Útlaginn, mynd
Ágústar Guðmundssonar um
Gísla Súrsson.
Meðal annars efhis í verslun-
inni má nefna ýmiss konar
ffæðsluefhi sem verið hefur á
dagskrá Sjónvarpsins eins og
spænskukennsluþættirnir ásamt
öðru ffæðsluefhi.
Skrautfjöðrin í hatti verslun-
arinnar hvað erlent efni snertir
hljóta þó að teljast myndbönd
með frægum óperum og ballett-
um í uppfærslum frægustu leik-
húsa heims. Þessi myndbönd
eru fengin í gegnum hið þekkta
fýrirtæki The National Video
Corporation, en innkaupa- og
markaðsdeild Sjónvarpsins hef-
ur fengið söluumboð fyrir vörur
þeirra hér á landi.
Allar þessar spólur eru með
hi-fi stereohljómi og er mjög til
þeirra vandað á allan hátt. Titl-
arnir sem boðið er upp á eru á
fimmta tug talsins og má þar
nefna óperur eins og La Bo-
heme, Aida, Carmen og Ma-
dame Butterfley. Af sígildum
ballettum má nefna Hnetubrjót-
inn, Giselle og Rómeó og Júlíu.
Að síðustu má nefna kórverkin
Messías eftir Hándel, Carols for
Christmas og myndband um
Placido Domingo.
Að sögn Hinriks Bjarnasonar,
forstöðumanns innkaupa- og
markaðsdeildar, hafa móttökur
almennings við þessari þjónustu
farið fram úr björtustu vonum
og strax á fyrstu starfsdögum
verslunarinnar varð augljóst að
mikill markaður er fýrir efni
sem þetta. Ennfremur sagði
hann að unnið yrði að því að
auka úrval þess efnis sem á
boðstólum er og jafnframt að
reynt yrði að auka fjölbreytni
efnisins þegar fram liðu stundir.
Erfitt að sérpanta „Black Death“:
„Finnst þetta
óheyrilega dýrt"
Eins og við höfúm greint
frá í Vikunni hefur ÁTVR
engan áhuga á því að taka
víntegundimar Black Death
vodka og snaps til sölu í
verslunum sínum þótt hér
sé um að ræða framleiðslu
íslendings, Valgeirs Sigurðs-
sonar í Luxemborg. Og það
sem meira er, svo virðist sem
fólki sem vill sérpanta þessar
tegundir sé gert óvenju erfltt
fyrir, allavega ef marka má
frásögn Jónasar Sigurðsson-
ar, en hann hafði samband
við Vikuna í framhaldi af
umfjöllun okkar og sagði
farir sínar ekki sléttar í sam-
skiptum við „Ríkið“.
„Eg gerði sérpöntun á Black
Death vodka og snaps í haust. Er
ég fór niður í ÁTVR til að fylla út
nauðsynlega pappíra var mér
fýrst sagt að ícoma daginn eftir
og ganga firá þessu en þá var það
ekki tilbúið þannig að það tók
mig þrjá daga að gera þessa
pöntun," sagði Jónas.
„Þeir biðja svo um að þetta sé
sent til þeirra með skipapósti
sem tekur óralangan tíma en
Valgeir sendi flöskurnar með
flugi enda var það ódýrara en að
senda þær með skipi enda að-
eins um 12 flöskur að ræða.“
Annað sem Jónas gerir at-
hugasemd við er hve óheyrilega
dýr honum þótti vökvinn er
Jónas Sigurðsson.
hann var loksins kominn til
íslands... „Hver flaska kostaði
um 240 krónum meir en sam-
bærilegt áfengi úr ríkinu og þeg-
ar ég bað um að fá að sjá sund-
urliðaða reikninga fyrir sending-
unni fékk ég það ekki. Mér þótti
nokkuð skondin útskýringin
sem einn sölustjórinn sagði mér
er ég vildi fá að sjá reikningana.
Hann tók til samanburðar tísku-
verslun niður í bæ og sagði mér
að þar fengi ég ekki heldur
sundurliðaðan reikning fyrir þá
vöru sem ég keypti.“
í máli Jónasar kom ennfremur
fram að hann telur það grund-
vallaratriði að til sé pláss fýrir ís-
lendir.ga á sínum eigin markaði
og hann skilur ckki þá óvild sem
virðist vera innan ÁTVR í garð
Valgeirs Sigurðssonar. —FRI
Ánna Margrét, ungfrú tsland tók á móti gullverðlaununum fýrlr
Svarta dauða ásamt Valgeiri í Brússel í þekktri vínsamkeppni í
sumar. Valgeir hlaut sambærileg verðlaun í London í fyrra.
VIKAN 5
LJÓSM.: PÁLL KJARTANSSON